Alþýðublaðið - 18.01.1996, Síða 7
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
ALÞYÐUBLAÐIÐ
7
s k o ð a n
Rétt skal vera rétt
Athugasemd frá Bryndísi Hlöðversdóttur
í Alþýðublaðinu í fyrradag
þriðjudag 16. janúar, er dágóður
hluti blaðsins helgaður málefnum
Alþýðubandalagsins. Baksíðan er
undirlögð og vakin sérstök athygli
á málinu á forsíðu. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem blaðið dregur Al-
þýðubandalagið fram í dagsljósið
og síst skal kvarta undan þeirri um-
fjöllun. En baksíðan á þriðjudaginn
var því miður þannig úr garði gerð
að undir því verður ekki setið þegj-
andi. Þeir ágætu blaðamenn sem
gerðu samantektina ollu undirrit-
aðri miklum vonbrigðum og það
hlýtur annað tveggja að vera, að
þeir tali gegn betri vitund eða hafi
hreinlega látið plata sig. Það hefur
svo sem komið fyrir besta fólk og
verður fyrirgefið, en þar sem undir-
rituð er á meðal þeirra sem um er
fjallað verður hér drepið á nokkr-
um atriðum í umfjöllun blaðsins.
Það mætti gera fjölmargar at-
hugasemdir við frásögnina, en það
sem fyrst og fremst hvetur til svara
eru rangfærslur í tengslum við af-
greiðslu hins svokallaða álmáls og
um aðkomu einstakra þingmanna
Alþýðubandalagsins að því máli. f
grein Alþýðublaðsins segir: „Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
voru hinsvegar allir þingmenn
flokksins reiðubúnir að sitja hjá við
afgreiðslu málsins - nema Olafur
Ragnar Grímssson." Og síðar segir:
„Það eru nýjar upplýsingar að
Margrét og aðrir þingmenn sem
greiddu stækkuninni atkvæði hafi
verið reiðubúin til hjásetu, að Olafi
Ragnari undanskildum".
Hverjir sem heimildamenn
blaðsins hafa verið í þessu máli, þá
er eru þeir ekki áreiðanlegir, því
hér er farið með rangar fullyrðing-
ar. Margrét og aðrir þingmenn
svara fyrir sig hafi þeir á því áhuga
en það kom aldrei til greina af
minni hálfu að sitja hjá við af-
greiðslu álmálsins. Eg studdi samn-
inginn frá upphafi og gerði grein
fyrir atkvæði mínu við aðra um-
ræðu málsins. Hvikaði ég aldrei frá
því sjónarmiði, enda fjarri lagi að
það sé veikleiki fyrir flokk þótt
þingmenn hafi mismunandi afstöðu
til einstaka mála.
Fólki eru gerðar upp skoðanir í
þessari umfjöllun og það er slæmt.
Þannig vinnubrögð eru ekki til
sóma og þeim tilmælum er hér með
beint til höfunda greinarinnar að
vanda sig betur næst.
Bryndís Hlöðversdóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins.
Aths. ritstj.
Heimildamaður um átök í þing-
flokki Alþýðubandalagsins vegna
afstöðu til álmálsins var einn af
þingmönnum flokksins, einsog
fram kom í fréttaskýringu Alþýðu-
blaðsins. Ekki virtist ástæða til að
efast um að viðkomandi þingmaður
skýrði rétt frá, enda mátti þing-
manninum - sem óskaði trúnaðar -
vera fullljóst að blaðið myndi birta
frásögn hans. Því er það fyrst og
fremst athugunarefni fyrir alþýðu-
bandalagsmenn hvaða hag þing-
menn flokksins sjá sér í því að
dreifa ósönnum fullyrðingum.
Alltjent rennir þetta mál stoðum
undir þá meginniðurstöðu frétta-
skýringar blaðsins að ekki sé allt
með felldu í þingflokki Alþýðu-
bandalagsins.
Skírlífi kaþólskra klerka
Háskólabíó: Prestur
Aðalleikandi: Linus Roache
★★★
„En svo ég minnist á það, sem þér
hafið ritað um, þá er það gott fyrir
mann að snerta ekki konu,“ reit Páll í
fyrra Korintubréfinu, 7, 1-2. Vitna
þessi orð um, að hinir fyrstu kristnu
söfnuðir hafi sótt margt liðsmanna og
ýmis viðhorf til sértrúarsafnaða Gyð-
inga svo sem essea, sem eins konar
heimsafneitun iðkuðu og hreinsun eig-
in hugarfars. Að breyttu breytanda,
mun sú arfleifð, ásamt öðru, hafa
hnigið að upptöku ókvæni klerka inn-
an kirkjunnar. - Þrátt fyrir fyrra Róm-
verjabréfið mun sá möguleiki ekki
hafa hvarflað að kirkjufeðrunum, að
prestar tækju saman í samkynhneigð -
enda væri það ekki líka fráhvarf frá
skírlífi?
Þessi vel gerða og vel leikna breska
kvikmynd fjallar um þetta „vanda-
mál“. Ungur kaþólskur prestur,
skyldurækinn, góðviljaður, sem fram
leggur sig í störfum sínum, fellir hug
til ungs samkynhneigðs manns og
leggur lag sitt við hann. Er hann tíma-
bundið (?) sviptur prestsstarfi.
Har. Jóh.
Lausum hala íAfríku?
Bíóborg: Ace Ventura:
IMáttúran kallar
Aðalleikendur: Jim Carrey,
__________lan McNeice____________
★★★
Uppsnuðrari týndra gæludýra, „Ace
Ventura" er kvaddur til Afríku. Ætt-
flokkur hefur glatað vemdardýri sínu
og tákni, hvítri leðurblöku. Nema leð-
urblakan finnist getur ekki orðið af
giftingu elstu dóttur ættarhöfðingjans.
Slíkt „heitrof" gæti leitt til hinna
hörmulegustu vandræða. Mikið er
þannig í húl'i. - Þótt hitinn í Afríku
virðist stíga „Ace Ventura" til höfuðs,
þannig að stundum virðist ekki vita í
hvom fótinn skuli stigið, höndlar hann
leðurblökuna að lokum og kemur upp
um svikahrappa. - Öðrum fremur
mun mynd þessi ætluð stráklingum
10-19 ára gömlum. Og viðtökur henn-
ar í Bandaríkjunum sýna að Jim Carr-
ey á dálæti þeirra sem fyrr.
Har. Jóh.
Ut og suður
Það er með ólíkindum að Davíð Oddsson skuli
ekki greina þá möguleika sem við eigum með
smáríkjum Evrópu til að hafa öflug áhrif á þró-
un og skipan framtíðarinnar.
Eftir nokkurt hlé sér íbúi kjallarans
ástæðu til að setja nokkur orð á blað í
samræmi við gefið íyrirheit um að láta
í ljós skoðun á viðhorfi landsbyggðar-
manns til höfuðborgarbúans ásamt
ýmsu öðru.
Hve dýrlegar eru perlurnar
Ekki er verið að hugsa um Perluna
sem Davíð lét setja ofan á tanka hita-
veitunnar í Öskjuhh'ð, sjálfum sér sem
minnismerki og Reykjavík til prýði
heldur er átt við náttúruperlur höfúð-
borgarinnar.
Það sem fyrst kemur í hugann er að
græn svæði borgarinnar eru að verða
skemmtilegri með hverju árinu sem
líður og fslendingum verður æ ljósari
nauðsyn þess að allt þéttbýli þarf á
fallegum útivistarsvæðum að halda.
Unnt er að eyða dögum í skoðun á
svæðum í borginni og í næsta ná-
grenni hennar. Ahrifamesta svæðið er
Heiðmörkin með endalaus tilbrigði
náttúrunnar með samspili við smekk-
legan árangur mannshandar í formi
fallegra gróðurreita, göngustíga, þægi-
legra rjóðra, og vel merktra göngu-
leiða með leiðbeiningum.
Næst er til að taka frábært útivistar-
svæði sem er Elliðaárdalur með
gönguleiðum við hæfi hvers og eins,
hvort sem áhugi er fyrir stuttum
skokktúrum á þægilegum stígum á
sléttu landi eða ef vilji er fyrir þrek-
þjálfun í ásum og brekkum; allt þetta
er til staðar. Skógarstígar eru notaleg-
ir, með opnum svæðum þar sem unnt
er að fylgjast með endalausum straumi
bifreiða eftir æðakerfi borgarinnar án
þess að heyra umferðarniðinn eða
finna mengunina af þessum þarfasta
þjóni fslendingsins. Ef óskað er langra
göngutúra er gönguleiðin frá Elliðaár-
vatni, niður dalinn í Fossvog, yfir
göngubrú yfir Kringlumýrarbraut og
alla leið að náttúruperlum Seltjamar-
ness, sú leið sem unnt er að komast á
auðveldan máta gangandi eða á reið-
hjóli og finna fyrir hvort sem óskað er
návistar lands - eða sjávargróðurs.
Öskjuhlíðin er hluti af perlum borgar-
Kjallarabúinn I
i 1
innar og þessu til viðbótar má nefna
fjölmargt annað svo sem Laugardalinn
og umhverfi austurhluta borgarinnar,
einnig má nefna Korpúlfstaðarsvæðið,
Grafarholtssvæðið, að ógleymdri Við-
ey og hafnarsvæðunum sem eru að
verða til fyrirmyndar hvað varðar um-
gengni og skipulag.
Allt gott?
Það er því miður ekki svo. Það sem
mest ber að óttast fyrir borgarbúann
og þéttbýlið er vaxandi mengun frá út-
blæstri, rykausturinn frá malbikinu og
vaxandi hávaði. Ef borgarbúinn hefur
ekki veitt þessu eftirtekt þá má sjá
óþverrann á strætisvögnum borgarinn-
ar þegar götur em hæfilega blautar og
varla sést í hliðar strætisvagna borgar-
innar fyrir tjöru og sótmengun, og
einnig þarf ekki annað en að fylgjast
með mengunarlaginu sem sest á bfla
og bflrúður á þurrum og kyrmrn dög-
um í höfuðborginni. A kyrmm dögum
er ekki fært um gangstéttar helstu um-
ferðargatna vegna mengunar, nægir
þar að benda á umhverfi Miklubrautar
að stærstum hluta.
Jaf naðarmaðurinn!
Hvaða erindi á svona hugleiðing
inn í greinarskrif í umbóta og áminn-
ingablað Alþýðuflokksmanna? Svarið
er auðvitað að ekkert er jafnaðarmanni
óviðkomandi, hvort sem það lýtur að
harðri pólitík hversdagsins, framtíðar-
sýn næstu ára eða lífsskilyrða næstu
kynslóða. Spurning sem hinsvegar
vakir í huga Kjallarabúans er hvers-
vegna næst ekki sá árangur á fslandi
að jafnaðarmannahreyfingin sé stærsta
pólitíska hreyfingin í landinu. Því er
örðugt að svara en er þó helst að leita
skýringa í aðskilnaðinum við Alþýðu-
sambandið sem aldrei hefði átt að
verða. Pólitísk áhrif verkalýðshreyf-
ingarinnar ættu að vera í gegnum hug-
sjónastefnu jafnaðarmanna og styrkur
og áhrif á stjómun landsins og á af-
komu þegnanna væri þannig eðlileg í
gegnum velferðarkerfið íslenska sem
ber öll merki íslenskra jafnaðarmanna
frá upphafi.
Öflugasti áhrifavaldur í íslenskri
pólitík er Alþýðuflokkurinn sem ávallt
hefur, í gegnum sterka leiðtoga og öfl-
uga bakvarðasveit, haldið vöku sinni
með raunsærri framtíðarsýn og stefnu-
mörkun þrátt fyrir að hafa ekki náð
eðlilegri hlutdeild sem að mínu mati
ætti að vera um 40-45% fylgi. Al-
þýðuflokkurinn hefur alltaf verið
frumkvöðull nýrra hugmynda og haft
þannig áhrif á þjóðfélagsþróunina.
Þeir sem vilja rnuna vita að opnun
þjóðfélagsins og frjálsari viðskipta-
hættir eru verk Alþýðuflokksins og
vitna ég þar til áhrifa flokksins í hinni
títtnefndu viðreisnarstjórn og áhrif-
anna sem eru að verða lýðum ljós
vegna EES-samningsins sem er verk
Jóns Baldvins Hannibalssonar og Al-
þýðuflokksins. Það er sérkennilegt að
heyra nú forystumenn ríkisstjómarinn-
ar lýsa því yfir aftur og aftur að sá
samningur sé svo vel gerður að hann
dugi til framtíðar fyrir samskipti okkar
við Evrópuþjóðimar. Báðir flokkamir
sem nú em í stjóm vom á móti EES-
samningnum þó sjálfstæðismenn hafi í
krafti öflugra raka Alþýðuflokksins
við stjórnarmyndun samþykkt gerð
hans.
Nú standa mál þannig að forsætis-
ráðherra landsins er fyrirmunað að tjá
sig opinberlega um nauðsyn þess að
láta reyna á samninga um aðild Is-
lands að Evrópusainbandinu. Það er
hart til þess að vita að forystumaður
íslensku þjóðarinnar hefur ekki kjark
eða hugsun til þess að láta fara fram
málefnalega umræðu og skoðun á
kostum og göllum aðildar fyrir ísland.
Það er með ólfldndum að Davíð Odds-
son skuli ekki greina þá möguleika
sem við eigum með smáríkjum Evr-
ópu til að hafa öflug áhrif á þróun og
skipan framtíðarinnar.
Sjálfstæði Islensku þjóðarinnar felst
í þeim áhrifum sem við getum haft á
framtíð okkar með samskiptum við
nágrannaþjóðir okkar. An aðildar að
Evrópusambandinu erum við áhrifa-
lausir og verðum að þiggja þá mola
sem til okkar hrökkva, þær ákvarðanir
sem teknar eru á þeim vettvangi geta
haft meiri áhrif á afkomumöguleika
íslendinga en þær ákvarðanir sem
teknar af innlendum stjómvöldum. ■
Lagasafn 1995
Lagasafn 1995 sem hefur að geyma gildandi lög miðað
við 1. október 1995 kemur út 19. þ.m.
Dreifingu til bóksala og stofnana ríkis og sveitarfélaga
annast Ríkiskaup, Borgartúni 7.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 17. janúar 1996