Alþýðublaðið - 07.05.1996, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ1996
VIÐ ÞÖKKUM
VIÐURKENNINGUNA
Eimskip þakkar fyrir Útflutnings-
verðlaun forseta íslands 1996.
Verðlaunin eru viðurkenning til
félagsins fyrir þann góða árangur
sem náðst hefur við að auka veg
íslenskrar þekkingar, reynslu og
hugvits á erlendum mörkuðum.
Starfsfólk og viðskiptamenn
félagsins, hérlendis sem erlendis,
fá einnig bestu þakkir fyrir sitt
framlag.
Verðlaunagripurinn „Foss“
eftir Sólveigu Baldursdóttur.
Traust atvinnulíf er undirstaða hagsældar og velferðar
og Útflutningsverðlaun forseta íslands hafa ýtt undir
sjálfstraust og metnað íslenskra fyrirtækja til að ná árangri
á erlendri grund.
Þessi viðurkenning er öllu starfsfólki Eimskips hvatn-
ing til að gera
enn betur á
hraðferð okkar
inn í nýja öld,
öld enn meiri
breytinga og
nýrra tækifæra.
EIMSKIP
H V (IA HÚSIÐ / SÍA