Alþýðublaðið - 07.05.1996, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
7
3 ó I i t í k
■ Sveitarstjórnarkosningar á Bretlandi
íhaldið á botninum
og Blair á toppnum
-segir Jón Ormur Halldórsson dósent. íhaldsmenn óttast mest
það sem Frjálslyndir geta vænst.
„Úrslitin eru í rauninni ekki
óvænt, þau eru í samræmi við það
sem maður bjóst við og skoðana-
kannanir hafa sýnt um langa hríð,“
segir Jón Ormur Halldórsson dó-
sent um úrslit í sveitarstjómarkosn-
ingunum á Bretlandi, sem fram fóru
2. maí síðastliðinn en kosningarnar
voru þær síðustu sem fram fara í
Bretlandi fyrir þingkosningar sem
haldnar verða fyrir mitt næsta ár.
„Þetta er versta útkoma íhalds-
flokksins hingað til en mjög svipuð
og í kosningum af þessu tagi í
nokkur ár. Flokkurinn virðist finna
hvern botninn á fætur öðrum til að
sökkva til og er greinilega ekki bú-
inn að komast yfir það versta eins
og vonast var til,“ segir Jón Ormur
og telur stöðu John Major forsætis-
ráðherra mikið umtalsefni í fram-
haldi af þessum úrslitum.
„Það eru tvær mismunandi skoð-
anir í gangi um afdrif Major. Sumir
halda því fram að hann muni gefast
upp núna og Michael Heseltine
muni taka við og reyna kosningar
jafnvel í haust. Önnur skoðun er sú
að Major haldi áfram svo flokkur-
inn klofni ekki. Major hefur líka
sýnt að hann er harður í horn að
taka þegar kemur að kosningabar-
áttu, hann rak síðustu kosningabar-
áttu af miklu meiri hörku en nokkur
átti von á og stóð sig mjög vel.
Annars er þetta spurning sem eng-
inn getur svarað nema kannski John
Major sjálfur og Heseltine hefur
sagt að það sé út í hött að hann taki
sjálfur við.“
Jón Ormur segir jafnframt að
staða Verkamannaflokksins og leið-
toga hans, Tony Blair, geti ekki
orðið sterkari. „Blair er búinn að ná
þeim tindi sem nokkur maður getur
náð. Það er enginn formaður eða
leiðtogi Verkamannaflokksins sem
hefur ráðið eins yfir flokknum og
hann í marga áratugi. Margir spá
því að ósættið innan flokksins muni
koma betur í ljós þegar nær dregur
kosningum. Það eru margir ósáttir
við hvað Blair er mikið til hægri,
og eins með hvað hann sýndi mikil
einræðistilþrif við að móta stefnu
flokksins. Hugsanlega veldur það
vaxandi óánægju en ég held hins
vegar að það sé almenn sátt um að
þeir verði að vinna kosningarnar
hvað sem það kostar. Það er frekar
að maður búist við átökum innan
flokksins eftir kosningar, þegar
hann er kominn í ríkisstjórn“.
En hver er pólitík Blair?
„Pólitík hans vefst eiginlega fyrir
honum sjálfum. En það má segja að
hann sé dæmi um mann sem reynir
að vera sósíalisti eftir að vera þó
búinn að kasta frá sér flestu sem
greinir hann frá miðjuflokknum.
Hann stendur algjörlega innað
miðju og hans pólitík er greinilega
sú að láta það þjóðfélagskerfi sem
er í gangi í Bretlandi virka betur.
Hann ætlar ekki að gera neinar stór-
breytingar á tekjuskiptingu í Bret-
landi, hann ætlar ekki að grípa til
mjög hárra skatta til að dreifa tekj-
unum jafnar, hann ætlar ekki að
stórlega auka opinbera þjónustu,
hann ætlar ekki að þjóðnýta fyrir-
tæki, hann ætlar heldur ekki að
einkavæða fleiri fyrirtæki en gert
hefur verið og hann ætlar ekki að
láta opinbera heilbrigðisþjónustu
brotna meira niður en gert hefur
verið og ekki að einkavæða
menntakerfið meira en gert hefur
verið. Það má því segja að hann
ætli að frysta það sem er og láta
það virka betur en það gerir núna.
Stefna hans er því augljóslega ekki
mjög róttæk,“ segir Jón Ormur. Að-
spurður um mat á stöðu Frjáls-
lyndra demókrata lýsir Jón Ormur
henni þannig.
„Frjálslyndir unnu rnjög stóran
sigur í sfðustu viku en þeir hafa oft
og tíðum unnið mjög stóra sigra í
sveitarstjórnarkosningum þótt þeir
tapi í þingkosningum. Hins vegar er
athyglisvert að flokkurinn bætti
mestu fylgi við sig í þeim kjördæm-
um þar sem hann á möguleika á að
koma þingmönnum að. Á stórum
svæðum á sunnan- og vestanverðu
Bretlandi urðu frjálslyndir næstir á
eftir íhaldsmönnum en ekki Verka-
mannaflokkurinn. Þannig að þeir
sem vilja frjálslyndum vel vona að
þótt hann bæti ekki við sig fylgi,
geti hann verið í þeirri stöðu að
geta bætt við sig einhverjum tugum
þingsæta, vegna þess að fylgi hans
verði fyrst og fremst bundið þeim
sætum sem hann á möguleika á, út
af því sem menn kalla taktíska at-
kvæðagreiðslu. Þeir sem vilja
Ihaldsflokkinn út fara þá ekki yfir í
Verkamannaflokkinn heldur Frjáls-
lynda. Þetta er það sem íhalds-
flokkurinn óttast meira en flest ann-
að og það sem Frjálslyndi flokkur-
inn virðist mega vænta nú eftir
þessar kosningar frekar en áður“. ■
Staða framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs íslands er
laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa haldgóða
þekkingu á rekstri, stjórnun og kvikmyndum og reynslu
og hæfni í alþjóðlegum samskiptum. Æskilegt er að um-
sækjendur hafi lokið háskólaprófi og hafi gott vald á
ensku og einu Norðurlandamáli. Staðan verður veitt frá
1. september 1996. Umsóknir, merktar 96040184, ásamt
upplýsingum um menntun, starfsferil og annað það
sem máli skiptir, sendir menntamálaráðuneytinu fyrir 1.
júní 1996. Óskir um nafnleynd eru ekki teknartil greina.
Menntamálaráðuneytið, 29. apríl 1996.
utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu
Utankjörfundaratkvæðagreiðala vegna kjörs forseta ís-
lands sem fram fer 29. júní nk. er hafin og fer fram hjá
sýslumönnum og hreppstjórum, svo og í sendiráðum
og hjá ræðismönnum Islands erlendis.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 6. maí 1996.
Auglýsing um
Slátur hús, kj ötv innslur
VIGTARMENN
Námskeið til löggildingar vegtarmanna í kjötiðnaði verða haldin:
á Egilsstöðum dagana 13. og 14. maí 1996
á Akureyri dagana 29. og 30. maí 1996
og í Reykjavík dagana 3. og 4. júní 1996.
Námskeiðinu lýkur með prófi
Skráning þátttakenda og allar nánari upplýsingar í
síma 568-1122.
Löggildingarstofan