Alþýðublaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Enga hornkarla og
kerlingar!
Og ætli það sé ekki þannig að núverandi form á
íslensku flokkakerfi sé dragbftur á pólitíska umræðu
og komi í veg fyrir að nauðsynjaverk séu unnin í
stjórnmálum hér á landi.
Oft hefur verið sagf að stjómmál
séu list hins mögulega. Nútíma
afbrigði af þessari klisju er að pólitík
snúist um að gera hið nauðsynlega
mögulegt. Hið nauðsynlega er oft á
tíðum hvorki þægilegt né létt. Þess-
vegna vilja menn og flokkar helst
vera að gera annað en hið nauðsyn-
lega. Gallinn við strútshátt af því
tagi er að þar með er ekki verið að
reka neina pólitík, það ríkir kyrrstaða
eða í besta lagi er um að ræða pólit-
ískt hringsól.
Pallborð
Einar Karl
1 •' T Haraldsson
I0L.' 11 * skrifar
„Sjáum til eftir átta ár"
„Við mynduðum þessa ríkisstjóm
til átta ára. Svo sjáum við til.“ -
Þessi setning er höfð eftir fyrrver-
andi mektarmanni í Framsókn, og
gefur nokkra hugmynd um sjálfsmat
stjómarflokkanna og vantrú þeirra á
að núverandi flokkar í stjómarand-
stöðu séu líklegir til stórræða. Kjós-
endur vom sama sinnis í síðustu al-
þingiskosningum og ekkert er líklegt
til þess að breyta afstöðu þeirra
nema að jafnaðarmenn nái að fylkja
liði og sækja fram í breiðari og trú-
verðugri samfylgd í næstu kosning-
um.
Á Degi jafnaðarmanna, sem
heppnaðist vel á Hótel Borg síðast
liðinn laugardag, kom fram hjá al-
þingismönnum, borgarfulltrúum,
verkalýðsforingjum og ungliðum
verulegur áhugi á að gera það sem
nauðsyn ber til. Hinsvegar var nokk-
uð deilt um leiðir og aðferðir. Og
upp kom að sjálfsögðu hin sígilda
þræta um form og innihald.
Stefnumótun er veikur
hlekkur
I stórum jafnaðarmannaflokki
hlýtur að vera rúm fyrir ólíkar skoð-
anir. Meira rúm heldur en í litlum
flokkum. Þar eru komin rök fyrir því
að formið hafi áhrif á innihaldið.
Þeir eru hinsvegar til sem telja að
umræðan um samstarf jafnaðar-
manna eigi að vera um innihald en
ekki form. Við þessa afstöðu er hægt
að gera þá athugasemd að veikasta
hlið íslenskra stjórnmálaflokka er
einmitt pólitísk stefnumótun. Inni-
haldið er með öðrum orðum ekki
mikið, enda nýjungar í stefnumótun
og eftirfylgni á því sviði mest á veg-
um hagsmunasamtaka, ráðuneyta og
háskóladeilda. Eru ekki þingmenn
aðallega í því að bregðast við utan-
aðkomandi þrýstingi?
Það er afar brýnt verkefni að bæta
stefnumótun íslenskra stjórnmála-
flokka og efla fræðslu og uppeldis-
starf á þeirra vegum. Þama er veikur
hlekkur í okkar lýðræðiskerfi. Og
sannleikurinn er sá að flokkarnir á
vinstri kantinum eru of veikburða til
þess að geta bætt hér úr. Til þess þarf
meira afl, meiri styrk.
En jafnvel stefnumál geta orðið að
formi: „ísland úr Nató, herinn burt“.
Hvort er þetta slagorð form eða irrni-
hald? Flokkur sá sem hefur þessar
kröfur enn á stefnuskrá hefur þrisvar
sinnum tekið þátt í ríkisstjómum án
þess að minnast á þetta atriði stefnu
sinnar. Ráðherrar hans hafa fylgt
stefnu Islands í vamar- og öryggis-
málum. Og þetta slagorð hefur held-
ur ekki leitt til frjórrar umræðu og
beittrar gagnrýni á þær ákvarðanir
sem verið er að taka í sambandi við
vamarsamstarfið við Bandaríkin eða
innan Atlantshafsbandalagsins. Þetta
slagorð, svo áhrifaríkt sem það var í
sögulegu samhengi, er orðið að
kreddu og innihaldslitlu formi. Og
ekki frekar en Rússagrýlan þjónar
það lengur þeim tilgangi að halda
flokkshjörðinni saman og greina
hana frá öðrum. Sjálfsagt mætti
finna svipuð dæmi hjá hinum flokk-
unum emnig.
Bæði form og innihald
Expressionistar, kúbistar, súrrea-
listar og atómskáld yrðu okkur seint
sammála um að form virkaði ekki á
innihald og málefni. Jónas Hall-
grímsson tók Sigurð Breiðfjörð í
gegn fyrir rímnastaglið sem var lif-
andi að drepa alla hugsun og mein-
ingu í íslenskum skáldskap. Og ætli
það sé ekki þannig að núverandi
form á íslensku flokkakerfi sé drag-
bítur á pólitíska umræðu og komi í
veg fyrir að nauðsynjaverk séu unnin
í stjómmálum hér á landi.
Til skamms tíma hefur stjórnar-
andstaðan verið að kveða rímur i
fjórum hornum og engum verið
skemmt. Nú hafa Alþýðuflokkur og
Þjóðvaki myndað samlag um þing-
flokk og það segir strax til sín í
þróttmeiri stefnumótun og skeleggri
afstöðu sem tekið er eftir. En betur
má ef duga skal.
Niðurstaðan er sú að formið get-
ur haft áhrif á innihaldið, en má
aldrei bera það ofurliði. Umræðan
um samstarf jafnaðarmanna á
bæði að snúast um form og inni-
hald. ■
Það er Ijóst að hinir pólitísku
eldar í Hafnarfirði eru hvergi
nærri slokknaðir þó að það hafi
ekki farið mikið fyrir þeim í fjöl-
miðlum að undanförnu. í nýjum
Fjarðarpósti er greint frá því í
klausu að á fundi menningarmála-
nefndar fyrir skömmu hafi verið
lögð fram bókun um að fram-
lengja ekki ráðningarsamning
staðarhaldara i Straumi. Staðar-
haldari er Sverrir Ólafsson en
hann hefur sagt núverandi meiri-
hluta í Hafnarfirði stríð á hendur.
Lesendur Alþýðublaðsins muna
ef til vill „Dularfulla Morgunblaðs-
málið" sem er margslungið en
eitthvað á þá leið að Bjöm V.
Ólason, ungkrati í Hafnarfirði,
skrifaði nótu í Morgunblaðið þess
efnis að grein sem þar birtist, þar
sem ráðist er harkalega á fram-
göngu þeirra Ellerts Borgars
Porvaldssonar og Jóhanns
Gunnars Bergþórssonar í bæj-
arstjórn, og Björn er skrifaður fyr-
ir, sé hreint ekki eftir hann held-
ur... Sverri. Sverrir fullyrðir hins
vegar að núverandi meirihluti f
Hafnarfirði hafi neytt Björn til að
sverja af sér greinina. Ráðningar-
samningur Sverris rennur út 15.
nóvember næstkomandi en
Menningarmálanefnd á eftir að
greiða atkvæði um bókunina...
Þingsetningaræðu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar var beðið
með nokkurri eftirvæntingu en
menn hafa verið að velta því fyrir
sér hvort þar myndi bera á góma
brýn þjóðhagsleg málefni svo
sem vegakerfið. Ekki stóð Ólafur
Ragnar undir þeim væntingum en
menn veltu fyrir sér hvort forset-
inn hefði ekki verið að veita Davíö
Oddssyni forsætisráðherra du-
litla eyrnafíkju í tilefni dagsins,
þegar hann vitnaði í orð Ásgeirs
Ásgeirssonar, fyrrum forseta, sem
sagði við þingsetninguna 1952:
„Bæði flokkar og einstakir þing-
menn hafa sinn metnað sem get-
ur verið hvort tveggja, heilbrigður
og óhóflegur. Það mætti miklu
góðu koma til leiðar ef ofmetnað-
urtruflaði aldrei almenningsheill.
Lýðræðinu er hætta búin þegar
harðstjórn og einræði ná tökum á
flokkum. Þeirra er ekki síst skyldan
að vera demókratískir, ef þjóðfé-
lagið á að vera það í heild." Hvort
Davíð tók þessi orð til sín vita
menn ekki svo gjörla...
Forseti Alþingis, Ólafur G. Ein-
arsson, var endurkjörinn i
embætti í gær, einsog vænta
mátti. Hvorki fleiri né færri en 57
þingmenn greiddu honum at-
kvæði en aðeins þrír sátu hjá og
aðrir þrír voru fjarverandi. Fátítt er
að slíkur einhugur ríki millum
stjórnar og stjórnarandstöðu, og
algengara að stjórnarandstaða
sitji hjá eða greiði öðrum atkvæði.
í fyrra voru alþýðuflokksmenn ein-
ir stjórnarandstæðinga um að
kjósa Ólaf í embættið en nú virðist
það hafa verið dagskipan i öllum
flokkum. Vinsældir Ólafs meðal
þingmanna koma hinsvegar ekki
á óvart, enda þykir hann rögg-
samur og úrræðagóður í emb-
ætti...
Nokkrar bollaleggingar voru í
blaðamannastúkunni við
þingsetninguna en glöggir frétta-
haukar Bylgjunnar og Stöðvar 2
fylgdust grannt með og tóku eftir
því að einn ráðherra ríkisstjórnar-
innar vantaði við setninguna.
Þeim var alveg fyrirmunaö að
koma því fyrir sig hver þaö eigin-
lega væri þar til þeim var vinsam-
lega bent á að sá sem vantaði héti
Þorsteinn Pálsson og væri fyrr-
verandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins...
Hefur þú áhuga á pólitík?
Guðlaug Þóra Marinós-
dóttir skrifstofumaður: Já,
og ég held að þetta verði mjög
spennandi vetur í pólitíkinni.
Charlotta Oddsdóttir
nemi: Nei, mér finnst hún
hundleiðinleg.
Jón Sigtryggsson nemi:
Já, sérstaklega þegar ný fram-
boð koma fram.
Hlynur Guðjónsson fram-
kvæmdastjóri: Já, hug-
myndafræðin heillar.
Heiðrún Hailgrímsdóttir
vegfarandi: Voðalega tak-
markað, nema þegar eitthvað
spennandi er að gerast.
JÓN ÓSKAR
e n n
Að karpa um það sýknt
og heilagt hvað sé skemmtilegt
og ekki skemmtilegt í sjónvarpi
og útvarpi finnst mér harla
vonlaus umræða.
Enn og aftur fer fjölmiölarýnir Dags-Tímas
á kostum. Óneitanlega frumleg yfirlýsing í
pistli sem ætiaö er aö gagnrýna fjölmiöla.
DT í gær.
Akurnesingar hafa löngum
státað af góðum knattspyrnu-
mönnum og ekki óeðliiegt að þeir
geri sér vonir um að nýtt gullald-
artímabil sé runnið upp hjá knatt-
spyrnumönnum á Akranesi.
Þeir Moggamenn vega og meta árangur
á annan máta en gengur og gerist.
í leiðara í gær.
Það var heldur brjóst-
umkennaniegt að sjá KR-inga
ganga niðurlúta frá leikvanginum
að leiknum loknum. Er ekki æski-
iegt að leiknum Ijúki með meiri
reisn þótt hann tapist?
Góðmennskan er Víkverja í blóð borin en
hann hafi ekki farið á völlinn frá 1948 þar
til nú um helgina. Mogginn í gær.
Við vesturbæjaraðalinn
er aðeins eitt að segja:
vitlaust KaRma.
Stefán Jón Hafstein er ófeiminn við
að gera tilraunir með það í leiðurum sínum
hvernig hið ritaða orð getur sem best náð
til fjöldans. DT í gær.
Lengi hefur verið talað
um að vaxarbroddurinn í
þjónustu kirkjunnar sé alls
kyns sérþjónusta og geysimargir
sérþjónustuprestar eru núna
að störfum. Embættið er ein
sérþjónustan enn.
Sr. Flóki Kristinsson er ánægður með
aö fá að móta íslenskt kristnihald í Evrópu.
Mogginn í gær.
Þegar blessað sumarið
þokar fyrir haustinu og skamm-
degisdrunginn gerir vart við sig í
kviðarholinu koma leikhúsin eins
og Ijós inn í haustmyrkrið.
Kristín Steinsdóttir rithöfundur furðar sig á
því af hverju ekki eru fleiri konur sem skrifa
fyrir leikhúsið en raun ber vitni. Spyr sá
sem ekki veit. DV í gær.
f ó b o I t i
Vegir Islands
Það mun taka fimm mínútur að aka
gegnum Hvalfjarðargöngin þegar þau
verða opnuð fyrir umferð árið 1999.
Á töflunni sést hve vegalengdir stytt-
ast - til dæmis verður ekki nema hálf-
tíma akstur í fótboltabæinn.
Reykjavík-Akranes
Reykjavík-Borgames
Reykjavík-Blönduós
Rcykjavík-Stykkishólmur
Reykjavík-Akureyri
•a
a>
í
I s
II
108 km 48 km
116 km 74 km
286 km 244 km
215 km 173 km
431 km 389 km