Alþýðublaðið - 02.10.1996, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
Þýskir bókadagar
í Eymundsson
„Á sýningunni eru á milli fímm
og sex hundruð þýskir titlar. Um
helmingur af bókunum eru skáld-
skapur og hinn helmingurinn upp-
flettibækur, listaverkabækur, ævi-
sögur og fleira,“ segir Jónfinn Jo-
ensen deildarstjóri í Eymundsson í
Austurstræti, en í versluninni
stendur nú yfír sölusýning á þýsk-
um bókum. Jónfinn segir skáld-
skaparvalið einskorðast við þá höf-
unda sem fæddust seint á síðustu
öld eða fæddir eru á þessari öld.
Hann segir ástæðuna vera þá að
nægt framboð hafi verið á verkum
eldri klassískra höfunda og því
hefði þótt talið æskilegast að kynna
þá yngri.
„Venjulega er þetta dauflegur
tími á bókamarkaðnum,“ segir
Jónfínn, „en við vildum gæða hann
lífí. Það eru ein tíu ár síðan síðast
var haldin hér þýsk bókasýning og
hún var þá á Kjarvalsstöðum. Sölu-
sýning okkar hefur mælst mjög vel
fyrir og mun standa í tvær til þrjár
vikur og síðan fara fyrstu jólabæk-
urnar að koma á markað.“
Jónfinn Joensen: Viljum gæða
bókamarkaðinn lífi.
Kvöldnám-
skeið í kín-
versku og
japönsku
Á haustmisseri mun Endurmennt-
unarstofnun Háskóla íslands gangast
fyrir kvöldnámskeiðum í kínversku og
japönsku. Námskeiðin hefjast um
miðjan október og lýkur í byrjun des-
ember.
Á kínverska námskeiðinu sem er
byrjendanámskeið verða kennd undir-
stöðuatriði kínverskrar tungu, uppruni,
þróun og uppbygging rittáknanna, æf-
Nióttu þess
m*
* 4
að spara
gncenm
grein
MEÐ SPARIÁSKRIFT
Láttu spamaðinn verða hluta af daglega lífinu.
Á hverjum degi stöndum við frammi fyrir því að þurfa
að velja og hafna hvað varðar útgjöld heimilisins.
Safnast þegar saman kemur og með því að endur-
skoða eyðsluvenjumar kemur í ljós íjársjóður á flest-
um heimilum.
Lykillinn að reglubundnum sparnaði er ekki spuming
um að fóma öllum þeim gæðum sem þú hefur vanið
þig á, heldur nægir að breyta áherslum og læra að
njóta lífsins og spara tmi leið. Tækifærin til að velja
og hafna eru alls staðar. Tökum dæmi um meðal-
neyslu á gosi hjá fjögurra manna fjölskyldu:
12 lítrar af gosi á viku = 1.596 kr. x 52 = 82.992 kr.
6 lítrar af gosi á viku = 798 kr. x 52 = 41.496 kr.
Spamaður á ári = 41.496 kr.
Njóttu þess að spara
með áskrifl ,/í grœnni grein!“
HEIMILISLÍNAN
SPARILEIKUR
Þeir sem spara í Búnaðarbankanum geta
átt von á vaxtaauka sem lagður veröur inn
á sparireikninginn í árslok.
Vaxtaaukar dregnir út 1996 og 1997:
Mars 3x50.000 kr.
Júní 3x50.000 kr. og 1x150.000 kr.
September 3x50.000 kr.
Desember 3x50.000 kr. og 1x150.000 kr.
BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
TILBOÐ! Þeir sem stofna til spariáskriftar „Á grænni grein“ fyrir 1. nóvember fá skemmtilega gjöf.
ingar í skrift og framburði hljóða sem
ekki eru til í íslensku, hljóðskriftakerf-
ið, kínverska skrifuð með vestrænu
stafrófi, undirstaða í málfræði, tákn og
lestraræfingar. Leiðbeinandi verður
Hjörleifur Sveinbjörnsson en hann
nam við Pekingháskóla ’76-81. Kennt
verður á miðvikudagskvöldum.
Japönskunámskeiðin eru tvö í fram-
haldi hvort af öðru og er kennt tvö
kvöld í viku. Á byrjendanámskeiðinu
eru kennd undirstöðuatriði í málfræði,
hiragana æft, undirstöðu orðaforði
með einföldum textum og samtölum,
skriftaræfingar og japanskt ritmál les-
ið. Eftir hiragana táknin 47, lauslega
farið yfir katakana. Framhaldsnám-
skeiðið er ætlað þeim sem þegar hafa
tileinkað sér undirstöðuatriði jap-
anskrar tungu svo sem kanatáknin og
hafa einhvem orðaforða. Tekið verður
mið af stöðu hópsins. Leiðbeinandi
verður Jón Egill Eyþórsson, BA í kín-
verskum bókmenntum en hann lærði í
Japan.
Silfur í Þjóð-
minjasafni
Á sýningunni Silfur í Þjóðminja-
safni sem er í Bogasalnum og stendur
til 13. október getur að líta valda silf-
urgripi úr eigu safnsins. Þar eru munir
sem fundist hafa í jörðu eins og Þórs-
hamarinn frá Fossi og næla í Úmesstíl
sem fannst hjá Tröllaskógi, borðsilfur,
tarínu, púnsskeiðar og margs konar
búningasilfur. Þá er á sýningunni 18.
aldar faldbúningur sem átti Valgerður
Jónsdóttir biskupsfrú í Skálholti með
tilheyrandi skarti.
Silfursmíðaverkstæði Kristófers
Péturssonar er uppsett í Bogasalnum
en hann var einn síðasti silfursmiður
gamla tímans. I tengslum við sýning-
una gaf Þjóðminjasafnið út bókina
Silfur í Þjóðminjasafni eftir Þór
Magnússon þjóðminjavörð og er í
henni birt skrá um íslenska silfursmiði
sem eiga verk sín varðveitt í söfnum
og kirkjum.
Alþýðu-
blaðið