Alþýðublaðið - 08.01.1997, Síða 1
■ Jón Baldvin Hannibals-
son um hátt verðlag og fá-
tækt
Athyglisvert
í meintu
góðæri
„Þetta eru at-
hyglisverðar stað-
reyndir mitt í
meintu góðærinu.
Þær eru einnig
áhugaverðar með
hliðsjón af full-
yrðingu forsætis-
ráðherra um að engar staðreyndir
bentu til vaxandi fátæktar í íslensku
þjóðfélagi," segir Jón Baldvin Hanni-
balsson í viðtali við Alþýðublaðið.
Hann var spurður álits á þeirri niður-
stöðu nefndar forsætisráðherra að
verðlag á matvælum væri allt að 50%
hærra hér á landi en í ESB-löndum.
Einnig var leitað eftir áliti Jóns Bald-
vins á könnun Félagsvísindastofnunar
á fátækt hér á landi þar sem nær 40%
bænda eru taldir vera undir fátækra-
mörkum. -Sjá baksíðu.
■ Bryndís Hlöðversdóttir
Tíðindi verða
ísameining-
armálum
„Eg er þess einnig fullviss að nú
muni draga verulega til tíðinda í
sameiningarmálum. Jón Baldvin
hefur lýst því yfir að Viðreisnar-
draumurinn sé búinn. Það er stór
yfirlýsing frá fyrrverandi for-
mannni Alþýðuflokksins og eins
miklum áhrifamanni í stjórnmálum
og Jón Baldvin Hannibalsson er,“
segir Bryndís Hiöðversdóttir al-
þingismaður meðal annars í viðtali
við Alþýðublaðið í dag. -Sjá bls. 5
- segir Eiríkur Stefánsson á
Fáskrúðsfirði og hveturtil aðgerða
sem fyrst: „Við erum með menn
sem blaðamenn nenna varla að
tala við."
„Allt er á leið í púra verkföll. Það
þarf ekkert að segja: Getur það verið?
Ætli? Það er öruggt. Þegar vinnuveit-
endur segja 2 til 4 prósent launahækk-
un og verkalýðshreyfmgin vill fá 30 til
40 þá leikur enginn vafi á um hvað
verður. Menn bíða bara eftir degin-
um,“ segir Eiríkur Stefánsson formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags Fá-
skrúðsfjarðar í samtali við Alþýðu-
blaðið. Hann segir alla sérkjarasamn-
inga kolfasta og sama við hvem sé
rætt: engin hreyfing. „Illu er best af
lokið. Eg segi: Það á ekkert að bíða
með að blása þetta á því verkföll eru
óhjákvæmileg."
í blaðinu í gær sagðist Grétar Þor-
steinsson forseti ASÍ vera hóflega
bjartsýnn á hvort til átaka kæmi. Ei-
ríkur segist ekki vita hvað menn eru
að tala um.
„Það er öruggt enda himinn og haf
á milli samningsaðila. Ég er öfund-
sjúkur útí að við skulum ekki eiga eins
sterka og harðsvíraða áróðursmeistara
og LÍÚ og Vinnuveitendasambandið
þar sem eru þeir Kristján Ragnars-
son og Þórarinn V. Þórarinsson.
Þeir eru óhræddir, koma ekki skjálf-
andi og titrandi og passa sig á því að
segja ekki of mikið til að móðga ekki
verkalýðshreyfinguna. Þeir móðga
hana ef þeim sýnist. Þeir eru vel aur-
anna virði sem þeir fá hjá sfnum um-
bjóðendum. En við emm með menn
sem blaðamenn nenna varla að tala
við, það er ekkert að hafa. Þeir þora
ekki einu sinni að senda vinnuveitend-
um tóninn. Þetta að tala í gátum, passa
hvert orð og vera svo varkárir að það
Eiríkur: Það þýðir engin vettlingatök
er alveg yfirgengilegt þýðir ekkert.
Það þýðir engin vettlingatök heldur
koma á móti einsog komið er að
manni," segir Eiríkur og einnig að
verkalýðshreyfmgin sé á þeim tíma-
punkti að ef hún nái ekki árangri núna
er hún búin að vera.
Eiríkur óttast mest að aðgerðir drag-
ist á langinn. Hann segir verkföll til
lítils ef þú komi ekki við vinnuveit-
endur. f mars sé loðnuvertíðin búin og
þá hafi vinnustöðvun lítið að segja.
„Ef á að fara í aðgerðir á að gera það
þegar vinnuveitandinn verður fyrir
mestum erfiðleikum og þarf að losa
verkfallið sem fyrst. Það er klárt mál
að allar fiskvinnslustöðvar, allar fryst-
ingastöðvamar, allar loðnuverksmiðj-
umar vilja allt til vinna að losna við
verkfall á vertíðinni. En þá á að hóta
þeim verkfallinu en ekki eltir að þeir
era búnir að taka lungann úr vinnsl-
unni. í mars og apríl eru fyrirtækin
komin lygnan sjó og hafa efni á því að
vera róleg. Ég veit ekki hvaða áhyggj-
ur þeir í fiskvinnslunni hafa af verk-
falli þegar þeir segja að það sé bull-
andi tap á hverjum degi á þeim tíma.
Era þeir þá ekki ánægðir með að geta
lokað þessu á meðan?“ segir Eiríkur
Stefánsson.
■ Verkföll eru óhjákvæmileg að mati forvígismanna verkalýðshreyfinga á Austurlandi
Öfunda LÍÚ og VSÍ af óhrædd
um áróðursmeisturum
Tilgangurinn með notkun nikótínlyfja
er að draga úr fráhvarfseinkennum
þegar reykingum er hætt. Lyfið má því
aðeins nota að reykingum sé algjörlega
hætt. Nicorette®
tyggigúmmí inni-
■ heldur nikótín sem losnar smám saman
Nicorette® tyggigúmmí er til í 2 mg
og 4 mg styrkleika og í þremur mis-
_____________________ Algengur dagskammtur er 8-16 stk.
Nikótínið í tyggigúmmíinu getur valdið
aukaverkunum eins og t.d. svima, höfuðverk, hiksta, ertingu í munni,
koki, vélinda og meltingaróþægindum. Ekki er ráðlegt að nota
tyggigúmmíið lengur en 1 ár.
Nicorette® forðaplástur inniheldur nikótín sem frásogast með
jöfnum hraða úr forðaplástrinum í a.m.k. 16 klst. Algengustu
aukaverkanir Nicorette® forðaplásturs eru svimi, höfuðverkur,
verkir í liðum og vöðvum, einkenni sem líkjast inflúensu, kláði og
útbrot undan plástrinum, aukin svitamyndun, svefntruflanir, óróleila
og depurð. Æskilegt er að hefja meðferð með Nicorette®
forðaplástri með sterkasta plástrinum. Einn plástur er settur á að
morgni og tekinn af fyrir svefh. Setja skal plásturinn á heila, hreina,
hárlausa og þurra húð, á brjósti, hrygg, upphandlegg eða mjöðm og
skipta um plástursstað á hverjum degi. Styrkleildnn á plástrinum er
síðan minnkaður smám saman og fer það eftir nikótínþörf við-
komandi á hverjum tíma. Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá
börnum og er efhið því alls ekki
ætlað bömum. Gæta skal varúðar
hjá þcim sem hafa hjarta- og
æðasjúkdóma. Ofrískar konur og
konur með barn á brjósti eiga NicbóET ** I
ekki að nota lyfið. Lesið vandlega ■ ,5mo'X
leiðbemmgí
jar á fylgiseðli sem
fylgir hverri pakkningu lyfsins.
Framleiðandi:
Phamiacia & Upjohn, Svíþjóð.
Innflytjandi:
Phannaco hf., Hörgatúni 2,
Garðabæ.