Alþýðublaðið - 22.01.1997, Qupperneq 1
■ Fundahrina framundan hjá sáttasemjara. Ný lög um stéttarfélög og vinnudeilur
virðast ekki hafa skilað árangri í þá átt að flýta fýrir samningaviðræðum
Duga ekki til að draga
fram efnislegar viðræður
sáttasemjari
„Stefnt er á að fyrstu samninga-
fundimir verði á morgun og föstudag-
inn“, sagði Þórir Einarsson, ríkissátta-
semjari, þegar blaðið leitaði frétta hjá
honum um stöðu samningamálanna.
Sáttasemjari segir að ný lög um stétt-
arfélög og vinnudeilur hafi ekki dugað
til að draga fram efnislegar viðræð-
ur.“Málin sem tilkynnt hafa verið em
■ Ráðhúsið
Lestrarhátíð
og verðlauna-
veiting
Samhliða storu norrænu lestrar-
keppninni var haldin lestrarmagns-
keppni í grunnskólum Reykjavíkur.
Mikil þátttaka var í keppninni og gríð-
arlega mikið lesið af bókum, að með-
altali mest í 12 ára bekkjum.
A morgun klukkan 16 verður lestr-
arhátíð og verðlaunaafhending í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Þar verða þeim
bekkjum sem lásu að meðaltali flestar
blaðsíður veitt sérstök verðlaun. Öll-
um nemendur vinningsbekkja er boðið
til hátíðarinnar. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri afhendir verð-
launin, ávörp verða flutt, kórsöngur,
upplestur og kappræður milli stráks og
stelpu úr 10. bekk Réttarholtsskóla.
■ Stjórn Sjúkra-
húss Reykjavíkur
íhugar að
setja reglur
um samskipti
við fjölmiðla
„Við emm að íhuga hvernig verði
komið á framfæri við ljölmiðla þeim
fréttum sem við viljum að verði vakin
athygli á. Einnig að þegar fjölmiðlar
leita frétta af einstökum málum hjá
Sjúkrahúsinu sé nokkuð skýrt til hvers
á að leita og svo framvegis", sagði
Kristín Á. Ólafsdóttir, formaður
stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur í
samtali við blaðið.
ekki öll komin hingað, en þau em nú
að korna hvert af öðru“.
Rafiðnaðarsambandið sleit samræð-
um við vinnuveitendur um fyrirtækja-
samninga á sameiginlegum fundi for-
ustumanna verkalýðssamtakanna við
vinnuveitendur. Þar með var slitið
samræðum um þennan þátt samninga
verkalýðsfélaganna, að minnsta kosti
hafa þeir ekki mætt til írekari fundar-
halda um málið, hvort sem það er end-
anlegt eða r samúðarskyni við Rafiðn-
aðarsambandið og verði þá tekið upp
aftur, gat sáttasemjari ekki fullyrt um.
Nú hafa flest eða öll félögin sem
era á hinum almenna markaði vísað
samningamálun sínum til sáttasemj-
ara. I þvr sambandi var Þórir spurður
um hvort þátturinn um samræður aðila
í nýjum breytingum á lögunum um
stéttarfélög og vinnudeilur nái ekki til-
gangi sínum. „Þau virðast ekki duga
til þess að kalla fram efnislegar við-
ræður“.
Sáttasemjari var spurður hvernig
viðræðumar færu af stað. „Ætli við
förum ekki rólega af stað og látum
vinnudaginn nægja, en svo má búast
við að hert verði á eftir því sem málin
þróast og sjálfsagt verða dagarnir
langir áður en lýkur“, svaraði Þórir
Einarsson.
KÍKT Á ÚTSÖLU. Á meðan verkalýðsforingjar og vinnuveitendur þjarka um kjarasamninga standa útsölur sem
hæst og margir leggja þangað leið sína til að drýgja krónurnar í buddunni. Ljósm. E. Ól.
Guðmundur J.
Guðmundsson
sjötugur
Einn litríkasti verkalýðsleiðtogi ís-
lendinga á þessari öld, Guðmundur J.
Guðmundsson, fyrrverandi formaður
Dagsbrúnar, er sjötugur í dag. Al-
þýðublaðið óskar afmælisbarninu
innilega til hamingju með daginn og í
tilefni afmælisins leitaði blaðið til
nokkurra samferðamanna Guðmundar
og bað þá að rifja upp minningar frá
kynnum sfnum af honum.
Meðal þeirra er Jón Baldvin Hanni-
balsson, fyrrverandi formaður Al-
þýðuflokksins, og í ffásögn hans er að
finna þessa sögu:
„Sagan segir að á ríkisstjómaráram
Gunnars Thoroddsens hafi þau setið
saman við borð í þingveislu, dr.
Gunnar og Guðrún Helgadóttir rithöf-
undur. Þá bar þar að Guðmund jaka
og konu hans í dansi. Sessunautunum
Gunnari og Guðrúnu varð starsýnt á
aðganginn þar til Guðrún fékk ekki
orða bundist og segir með undranar-
hreim í röddinni: „Hvers konar hreyf-
ing er þetta á honum Guðmundi?"
Forsætisráðherrann varð hugsi áður en
hann svaraði: „Þetta ER verkalýðs-
hreyfingin.“ -Sjá miðopnu.
■ Kvikmyndasjóður
90 milljónum
úthlutað í dag
í dag klukkan 17 verður tilkynnt
um úthlutun Kvikmyndasjóðs á
styrkjum til kvikmyndagerðar,
samtals að upphæð 90 milljónir
króna. Aldrei fyrr í sögu sjóðsins
hefur jafn hárri upphæð verið út-
hlutað, en framlag til Kvikmynda-
sjóðs var hækkað um 25 milljónir
króna við afgreiðslu fjárlaga.
Hækkunin rennur óskipt til kvik-
myndagerðar.
Sjóðnum barst að þessu sinni 161
umsókn um styrki og eru það um
50% fleiri umsóknir en venja er tíl.
Flestar umsóknir eru urn handrits-
styrki fyrir bíómyndir, eða 83 tals-
ins. Þá bárust 26 umsóknir um
framleiðslustyrki fyrir bíómyndir
og 17 umsóknir um framleiðslu-
styrki fyrir heimildarmyndir. Ein
urnsókn barst um styrk til fram-
leiðslu á teiknimynd.
Uthlutunarnefnd skipa Bjarni
Jónsson, Laufey Guðjónsdóttir og
Markús Örn Antonsson.
■ Ekkert virðist þoka í samningaviðræðum opinberra starfsmanna um nýjan kjarasamning
Þeir vilja ræða launastefnu sem
Á fundi stjómarinnar fyrir skömmu
var lagt fram minnisblað forstjóra
Sjúkrahússins um ráðningu upplýs-
ingafulltrúa og samskipti SHR við
fjölmiðla. Hugmyndin um sérstakan
upplýsingafulltrúa fyrir Sjúkrahúsið
hlaut ekki undirtektir, en fram-
kvæmdastjórn falið að vinna málið
áfram.
„Hugmyndin um upplýsingafulltrúa
fékk ekki stuðning vegna þess að við
töldum okkur hafa ýmislegt þarfara að
gera við peningana," sagði Kristín.
„En eigi að síður töldum við rétta að
athuga það vel hvort við ættum að
setja reglur um samskiptin við fjöl-
miðla og hvernig þær ættu þá að
vera.“
- segir Óiafur A. Jónsson sem
sæti á í stjórn BSRB
„Borgarstjómin vill fara sömu leið
og ríkisstjómin að búa til einhverja
launastefnu og vill ræða hana, en vill
bara ekki segja hvernig hún á að
vera“. Þetta sagði Ólafur A. Jónsson,
sem á sæti í stjóm Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja, þegar leitað var
eftir upplýsingum hjá honum um
hvemig staðan væri í samningamál-
um BSRB.
„Það virðist enginn í samninga-
nefndunum, hvorki hjá ríkinu,
Reykjavíkurborg eða Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga, vita almenni-
lega hvemig þetta á að vera, það á
bara að vera einhvem veginn öðra-
vísi. Samt vilja þeir ræða það en ekki
um kaup og kjör,“ sagði Ólafur
„Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, sjálfsagt með samþykki beggja
stjórnarflokkanna, kom á viðbótar-
launum sem ríkisfyrirtæki geti bætt
ofan á laun einstakra manna eftir
geðþótta forstjóranna. Vandi ríkisins
er nefnilega sá að það er ekki hægt
að borga láglaunafólkinu sæmileg
laun, þar er talað um þriggja pró-
senta hámarkshækkun eins og hjá
ASÍ. Forstjórarnir eiga að fá að
hygla einhverjum og borga uppbót,
ekki ertil
án þess að spyrja launadeild, fjár-
málaráðuneytið eða nokkurn mann
um það.
Þama er stóra stríðið, því að þessu
viljum við ekki una. Okkur finnst
ekkert að því að fólki séu greidd við-
bótarlaun, en við viljum fá samninga
um það en ekki að það sé á valdi ein-
hverra forstjóra sem vilja láta klóra
sér á bakinu", sagði Ólafur A. Jóns-
son.