Alþýðublaðið - 23.01.1997, Síða 4
T
4
ALPÝÐUBLAÐD
b æ i u r
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
■ Hvaða bækur njóta mestra vinsælda á bókasöfnum?
w
Ast, spenna
& Steinunn
Undanfarin ár hefur Hrafn Harð-
arson, bókavörður á Bókasafni
Kópavogs, haldið lista yfir þær bæk-
ur sem mest eftirspurn er eftir á
safninu. Listinn yfir vinsælustu
bækur ársins 1996 birtist hér og ætti
að gefa nokkra mynd af vinsældum
bóka og höfunda. Rétt er að taka
fram að jólabækur síðasta árs eru
ekki á listanum enda em þær rétt að
komast í gagnið um það bil sem ár-
inu er að Ijúka.
Það er hinn geysivinsæli Stephen
King sem trónir í efsta sæti listans
og erlendir spennu- og ástarsagna-
höfundar raða sér í sætin þar á eftir.
Steinunn Sigurðardóttir kemur
Hjartastað í 8. sæti yfir vinsælustu
bækurnar, Grandavegur Vigdísar
Grímsdóttur er í 17.-18. sæti, en þær
íslensku bækur sem þar koma á eftir
em Englar alheimsins eftir Einar Má
Guðmundsson og María eftir Ingólf
Margeirsson sem em í 37.-42. sæti
ásamt erlendum afþreyingarbókum.
Samkvæmt listanum eiga erlendar
skáldsögur mun meiri vinsældum að
fagna en þær íslensku, en íslensku
skáldsögurnar njóta þó meiri hylli
safngesta en ævisögur, sem eru
furðu fyrirferðalitlar á listanum. Ut-
lán ljóðabóka em í dræmasta lagi,
og em það helst ljóðabækur ætlaðar
böm sem sóst er eftir.
Til gamans má geta þess að á
Bókasafni Kópavogs voru 161.000
bækur lánaðar út á síðasta ári og
áætlað er að gestir safnsins hafi ver-
ið um 100.000.
Gamli góði Stephen King á þá bók sem mest eftirspurn
er eftir á Bókasafni Kópavogs.
- GT<-2 .!:! ibíii ..S.'.iir,J
I
Rekstrarvörur bjóða nú stofnunum og fyrirtækjum nýja og
| byltingarkennda lausn til að loka óhreinindin úti. Leitið
I upplýsinga hjá hreinlætisráðgjöfum og sölumönnum
I okkar.
Rekstrarvörur, Réttarhálsi 2,
110 Reykjavfk, Sími: S87 5554 Fax: 587 7116
Steinunn Sigurðardóttir á
vinsælustu íslensku bók-
ina, Hjartastað.
Fjallganga Tómasar Guð-
mundssonar heiilar enn
og er sú Ijóðabók sem
mestra vinsælda nýtur.
Þrjár bækur Þórarins Eld-
járns eru á lista yfir tíu
vinsælustu Ijóðabækurn-
ar.
Börnin sækja í bækur Ið-
unnar Steinsdóttur en
þrjár barnabækur eftir
hana eru á iistanum yfir
tuttugu vinsælustu ís-
iensku bækurnar.
Vinsælustu bækurnar
1) Stephen King: Örlög
2) Leona Karr: Lífvörðurinn
3) Laura Gordon: Mánaglóð
4) Merline Lovelace: í hita næturinnar
5) Cassie Miles: Á hálum ís
6) Elane Osborn: Draumsýn
7) Mary Higgins Clark: Vökult er vargsaug-
að
8) Steinunn Sígurðardóttir: Hjartastaður
9-11) Linda Howard: Hitabylgjan
Emilie Richards: Ástir lans
Danielle Steel: Vængir ástarinnar
12-14) Anders Jacobsson og Sören Ols-
son: Fleiri athuganir Berts
Kim Cates: Verndarenglar
Karen Leabo: Út í bláinn
15) M.J. Rodgers: Lykill að fortíð
16) Kay David: Ung og ástfangin
17-18) Mary Higgins Clark: Dansað við
dauðann
Vigdís Grímsdóttir: Grandavegur 7
19-24) Cathy Gille Thacker: Réttarhöldin
Rebecca York: Svikin loforð
Maris Soule: Ljónshugur
Dee Holmes: Barnshvarf
Bverly Barton: Flóttamaðurinn
Margaret 0’Neil: Hamingjudraumar
Vinsælustu íslensku verkin
1) Steinunn Sigurðardóttir: Hjartastaður
2) Vigdís Grímsdóttir: Grandavegur 7
3-4 Einar Már Guðmundsson: Englar
alheimsins
Ingölfur Margeirsson: Maria
5-6) Smári Freyr Jóhannsson og Tómas
Gunnar Víðarsson: Ufsilon
Kristín Ómarsdóttir: Dyrnar þröngu
7) Karl Sigurbjörnsson: Hvað á barnið að
heita?
8) Ólafur Jóhann Ólafsson: Sniglaveislan
9) Einar Kárason: Þar sem Djöflaeyjan rís
10) Iðunn Steinsdóttir: Ævar á grænni
grein
11) Böðvar Guðmundsson: Híbýli vind-
anna
12-13) Iðunn Steinsdóttir: Snuðra og
Tuðra og fjóshaugurinn
Guðrún H. Eiríkssdóttir: Röndóttir spóar
fljúga aftur
14-15) Hallgrímur Helgason: Þetta er allt
að koma
Gunnhildur Hrólfsdóttir: Svarta nöglin
16) Kristín Steinsdóttir: Akrakadabra
17) Einar Kárason: Gulleyjan
18) Ólafur Gunnarsson: Tröllakirkja
19-21) Iðunn Steinsdóttir: Snuðra og
Tuðra láta gabba sig
Jónína Leósdóttir: Þríleikur
Súsanna Svavarsdóttir: Skuggar vögguvís-
unnar
Vinsælustu Ijóðabækurnar
1) Tómas Guðmundsson: Fjallganga
2) Gegnum Ijóðmúrinn
3) Þórarinn Eldjárn: Heimskringla
4-6) Páll J. Árdal: En hvað það var
skrýtið
Vísnabókin
Þórarinn Eidjárn: Óðfluga
7) Vísnabók Iðunnar
8-9) Þórarinn Eldjárn: Litarím
Ragnheiður Gestsdóttir: Klappa saman lóf-
unum
10) Hákon Aðalsteinsson: Oddrún