Alþýðublaðið - 23.01.1997, Síða 6
6
ALÞVÐUBLAÐÐ
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
s k i I a b o ð
Daði Kolbeinsson óbóleikari, Jos-
eph Ognibene hornleikari og
Hörður Áskelsson organisti Hall-
grímskirkju leika fjölbreytta tón-
list sem spannar tímann frá bar-
okk til rómantíkur. Á meðal höf-
unda eru Telemann, Loeillet, Al-
binoni, Saint-Saens, StrauB og
Rheinberger.
Verkin sem þeir félagar hafa
valið til flutnings eru flest upp-
runarlega fyrir aðra hljóðfæra-
skipan, orgelþátturinn er umrit-
un á þætti strengjasveitar eða pí-
anós. Um helmingur verkanna er
frá barokktímanum.
JAFNAÐARKONUR -
JAFNAÐARKONUR
Nú róum við á betri mið og tökum á ný upp okkar
skemmtilegu „súpufundi".
Fyrsti fundurinn verður haldinn fimmtudagínn 23.
janúar n.k. kl. 19-21 á Litlu Brekku í Banka-
stræti og er yfirskrift hans
Úr djúpinu.
Á boðstólunum verður bæði andlegt og líkamlegt
sjávarfóður. Ágúst Einarsson, alþingismaður og pró-
fessor, flytur fræðsluerindi um sjávarútveg íslands í
nútíð, fortíð og framtíð.
Eindregið er mælst til þess að allir fyrri fastagestir
„súpufundanna" mæti - og þeir taki nýjar konur
■ Listvinafélag
Hallgrímskirkju
Samleikur
á óbó, horn
og orgel
Á sunnudaginn klukkan 17
heldur Listvinafélag Hallgríms-
kirkju óvenjulega tónleika með
samleik á óbó, horn og orgel.
Kristbjörg Kjeid og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum
■ Þjóðleikhúsið
r
með.
Næstu fundir eru áætlaðir: 13.2., 13.3., 10.4. og 15.5.
Allar konur eru velkomnar!
Stjórn Sambands Alþýðuflokkskvenna
I hvítu myrkri
Framkvæmdastjórn SUJ
Haldinn verður framkvæmdastjórnarfundur SUJ
Fimmtudaginn 23. janúar
í Alþýðuhúsinu Reykjavík
Hverfisgötu 8-10
klukkan 17.30.
Framkvæmdastjóri
Um næstu helgi hefjast á
ný sýningar á leikriti Karls
Ágústs Ulfssonar, í hvítu
myrkri, á Litla sviði Þjóð-
leikhússins. Sýningar hafa
legið niðri um nokkurra
vikna skeið, meðal annars
vegna meiðsla eins leikarans.
I hvítu myrkri var frumsýnt
snemma hausts á liðnu ári,
sterkt og áhrifamikið verk
sem hlaut feiknarlega góðar
viðtökur og aðsókn.
Sögusvið verksins er ein-
angrað sjávarpláss þar sem
aðkomufólk verður innlyksa
í aftakaverði eitt vetrarkvöld.
Eftir því sem nóttin líður
sækja skuggar fortíðarinnar
fram í dagsljósið.
Leikendur eru Kristbjörg
Kjeld, Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Þröstur Leó Gunnars-
son, Magnús Ragnarsson,
Sigurður Skúlason og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir. Leik-
stjóri er Hallmar Sigurðsson
en höfundur leikiþyndar og
búninga er Stígur Steinþórs-
son. Ásmundur Karlsson
hannaði lýsingu.
Flokksstjórn A Fyrsti fundur nýkjörinnarflokksstjórnarverð- Iþýðuflokksins 2. FLOKKSMÁL:
ur haldinn þann 25. janúar kl. 12.00 í Gaflin- Flokksskrifstofa og flokksstarf
um Hafnarfirði, Dalshrauni 13. Fjármál
Gestur fundarins verður Margrét Frímanns- Útgáfumál
dóttir formaður Alþýðubandalagsins og mun Reglulegir fundir flokksstjórnar
hún ávarpa fundinn kl. 13.00.
Allirflokksstjórnarmenn eru hvattirtil að 3. T1LLÖGUR SEM VÍSAÐ VAR
mæta á þennan fyrsta fund. TIL FLOKKSSTJÓRNAR:
Um aðskilnað ríkis og kirkju
Dagskrá Um kjör forsætisráðherra í beinum kosningum
1. SAMSTARF
JAFIMAÐARMANNA 4. ÖNNUR MÁL
Verkefnið „Samstarfjafhaðarmanna"
Stö rf viðræðunefndar Um kvöldið verðurhaldið þorrablót í Fjörukránni.
Frumkvæði ungsfólks Borðapantanir íFjörukránni ísíma 565-1890. Miðaverð erkr. 2.500. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
Alþýðuflokksins.
Sigríður Gröndal sópran er meðal
þeirra listamanna sem koma
fram á Mozartkvöldinu.
Mozartkvöld
íGerðubergi
í tilefni þess að 27. janúar 1756
kom í heiminn eitt merkasta tón-
skáld sögunnar, Wolfang Antade-
us Mozart, verða tónleikar í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi að kvöldi þess sama dags.
Flytjendur á tónleikunum eru
þau Laufey Sigurðardóttir, fiðlu-
leikari, Sigríður Gröndal sópran,
Daníel Þorsteinsson píanóleikari,
Guðmundur Kristmundsson ví-
óluleikari og Richard Talkowsky
seni leikur á selló.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt og má nefna að flutt verður
úrval laga afmælisbarnsins fyrir
sópran og píanó við þýsk, frönsk
og ítölsk ljóð. Tónleikagestum
gefst kostur á að njóta veitinga að
hætti Vínarbúa, en þar bjó Moz-
art tíu síðustu ár stormasamrar
ævi sinnar. Miðasala er í Gerðu-
bergi.