Alþýðublaðið - 24.01.1997, Blaðsíða 1
■ Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að stjórnarmaður sem tók sæti í
nefnd um landbúnaðarmál sé þar ekki á vegum ASÍ
Sit þar ekki sem fulltrúi ASÍ
■ Hvalveiðinefnd sjávarútvegsráðherra
skilar áliti á næstunni
Leggur til að hval-
veiðir verði leyfðar
-segir Björn Snæbjörnsson
formaður Verkalýðsfélagsins
Einingar á Akureyri og segist
sitja í nefndinni sem neytandi.
„Það er rétt að ég tók sæti í
nefndinni," sagði Björn Snæbjörns-
son í samtali við Alþýðublaðið. „Ég
er neytandi í þessu landi og skorast
ekki undan því.“
Ráðherra hefur skipað Bjöm sem
fulltrúa neytenda í nefnd um land-
búnaðarmál, sem Alþýðusambandið
hefur dregið fulltrúa sinn úr, en
Björn á bæði sæti í miðstjórn og
sambandsstjórn Alþýðusambands-
ins. „Ég er þama inni sem einstak-
lingur og er sjálfur úr blómlegu
landbúnaðarhéraði, en sit þar ekki
sem fulltrúi Alþýðusambandins eða
Einingar," sagði Bjöm.
Sambandsstjórn ASÍ samþykkti á
fundi í nóvember að draga fulltrúa
sína úr öllum nefndum landbúnað-
arins vegna óánægju með störf
nefndanna.
„Það var ákvörðun sambands-
stjórnar að draga sig úr þessum
nefndum, en ég var sjálfur á móti
og greiddi atkvæði gegn því. Það
kemur þessu máli hinsvegar ekkert
við. Ég vildi sjálfur gera að tillögu
minni að fresta úrsögninni um eitt
ár og sjá hvort ekki miðaðist
áfram,“ sagði Björn Snæbjömsson.
Sambandsstjórnin hefur sent frá
sér svohljóðandi yfirlýsingu: „Sam-
bandsstjórn ASf lýsir því hér með
yfir að viðkomandi fulltrúi er ekki
talsmaður sambandsins í landbún-
aðarmálum og störf hans þar því á
ábyrgð hans sjálfs og þess ráðherra
sem skipaði hann.“
„Ég er feginn að þessi tillaga
kom fram á fundinum og greiddi
henni sjálfur atkvæði mitt. Menn
vildu einfaldlega hafa þetta á
hreinu og í samþykktinni felst eng-
in vandlæting og það er enginn
ágreiningur í gangi," sagði Björn
Snæbjörnsson.
,Ég er að bíða eftir skýrslu nefndar-
innar sem sjávarútvegsráðherra skip-
aði í málið, hún er víst alveg að koma
og ég ætla að sjá hvað ráðherra gerir í
framhaldi af henni,“ sagði Guðjón
Guðmundsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins á Vesturlandi í samtali við
Alþýðublaðið. Guðjón er eindregið
þeirrar skoðunar að hefja beri hval-
veiðar á nýjan leik. Hann var spurður
hvort hann vissi hverjar niðurstöður
neíhdarinnar em.
„Nei, ég veit það ekki, en mig grun-
ar að lagt sé til að veiðarnar verði
teknar upp aftur. Ef svo er, geri ég ráð
fyrir að ráðherra leggi fram þings-
ályktunartillögu þess efnis. Það er
auðvitað miklu betra að tillagan komi
ffá ráðherra. Ef hún kemur ekki þaðan
tel ég víst að ég og aðrir þingmenn
sem hafa áhuga á málinu leggjum
fram tillögu um að veiðamar hefjist að
nýju“, sagði Guðjón Guðmundsson.
Björn: Ég er neytandi og skorast ekki undan því.
Þú færð meira
lyiir minna verð
Þorrabakki,
350 gr.
Þorrabakki
ósúr, 350 gr.
Ömmu-
rúghrauð
Ömmu
llatköhur
Octkerl
Hartöfiumús.
220 gr.
Egils Pilsner
0,5 Itr dós
Egils Bergratn
Egils KrislaH m/sítrónubragði
Egils Kristall m/cplabragði
Egils íóborg léttöl
0,5 Itr dós
og gæðin koma í ljós