Alþýðublaðið - 28.01.1997, Page 1
■ Alþingi kemur saman á ný að afloknu þinghléi
Loks fallist á áratuga
baráttumál Alþýðuflokks
- segir Sighvatur Björgvinsson
um vætanlegt ríkisstjórnarfrum-
varp um málefni hálendisins
„Við höfum hlustað á það með at-
hygli að það sé væntanlegt frumvarp
frá ríkisstjóminni um málefni hálend-
isins. Af fréttum að dæmi virðist sem
þar sé loksins verið að fallast á tillögur
sem Alþýðuflokkurinn hefur flutt á
þingi í 25 ár um það, að allt jarðnæði
utan eignamarka einstaklinga og fé-
■ Alþ/ðublaðið
Allra leiða
leitað til að
halda útgáf-
unni áfram
„Það kom fram í máli mjög
margra flokksstjórnarfuiltrúa að
þeir vilji að leitað verði allra leiða til
að halda áfram útgfáfu Aiþýðu-
blaðsins. Við munum strax vinda
okkur í það verk, en tii þess að það
takist að halda áfram útgáfu þurf-
um við að fá nokkurt viðbótarhluta-
fé inn í reksturinn,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins, er hann var spurður um
framtíð Alþýðublaðsins.
Á fundi flokksstjórnar Alþýðu-
flokksins sem var haldinn á laugar-
daginn, var meðal annars rætt um
útgáfumál og framtíð Alþýðublaðs-
ins. Framkvæmdastjórn flokksins
var veitt umboð til að taka þá
ákvörðun um framtíð blaðsins sem
skynsamlegust þætti.
■ Opinber heimsókn for-
seta til Noregs
Blómsveigurað
styttu Ólafíu
Herra Ólafur Ragnar Grímsson og
frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
halda í opinbera heimsókn til Noregs
dagana ellefta til þrettánda febrúar. I
heimsókninni mun Ólafur Ragnar
meðal annars leggja blómsveig að
styttu Ólafíu Jóhannsdóttur og opna
íslenska bókakynningu í Norlis bóka-
versluninni. Þau munu eru boðin til
hátíðakvöldverðar með konungsfjöl-
skyldunni að kvöldi fyrsta dagsins en
daginn eftir munu þau heimsækja Ný-
listasafnið og fleiri söfn og sækja tón-
leika og snæða miðdegisverð í Ráð-
húsinu. Þann þrettánda febrúar halda
þau hjónin til Bergen ásamt konungs-
hjónunum og fara í ýmsar skoðunar-
ferðir og sækja móttöku borgarinnar í
Hákonshöll. Eftir komuna til Osló
bjóða forsetahjónin til hátíðakvöld-
verðar Á Grand Hotel en þau snúa
heim til Islands á föstudeginum, fjór-
tánda febrúar.
laga verði lýst þjóðareign. Þetta er eitt
af þeim málum sem við munum fylgja
mjög stíft eftir á þessu þingi,“ sagði
Sighvamr Björgvinsson formaður Al-
þýðuflokksins í samtali við blaðið.
Alþingi kemur saman á ný í dag og
Sighvatur taldi ofangreint mál með
þeim stærri sem kæmu til meðferðar
þingsins á næstunni.
„Það sem við jafnaðarmenn munum
síðan leggja áherslu á á þessu þingi er
- segir Kristján Gunnarsson
formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur.
„Davíð Oddsson leggst í sömu lág-
kúruna og Vinnuveitendasambandið,
að beita prósentureikningi á laun
verkafólks. Þannig geta þeir fengið út
að kröfur Verkamannasambandsins
séu háar“, sagði Kristján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Keflavíkur í samtali við Alþýðu-
blaðið. Hann var beðinn um álit á um-
mælum forsætisráðherra um kjaramál
í viðtali við Morgunblaðið. Þar segir
umræðan um hina auðlindina, það er
að segja auðlind fallvama og jarðhita.
Við erum með frumvörp um þau efni.
Þar er gert ráð fyrir að þær auðlindir
sem ekki eru á færi einstaklinga að
nýta verði lýstar þjóðareign. Síðan má
búast við að fiskveiðimáhn verði mik-
ið til umræðu. Þar að auki munum við
áfram leggja áhersíu á fjölskyldumál.
Þar á meðal aðgerðir í jaðarskattlagn-
ingu sem við teljum mjög nauðsynleg-
hann meðal annars að það sé della að
tala um að hækka kaup um mgi pró-
senta.
„En hvað fáum við út ef við snúum
þessari umræðu við og ræðum hana út
frá krónutöluhækkun. Þá eru ýtrustu
kröfur rétt rúmar 20.000 krónur. Það
er ekki ósanngjörn krafa að hækka
lægstu laun verkamanna um þá upp-
hæð. Ég er viss um að Davíð Óddsyni
þætti það ekki merkileg prósenta á
launin sín. Ut frá því ætti hann að
reikna.
Davíð snýst enn á sveif með Vinnu-
ar. Það er auðvitað þáttur í fjölskyldu-
stefhu að vinnuumhverfi ljölskyldunn-
ar sé þannig, að ef fólk leggur á sig
aukna vinnu hverfi það ekki allt í
skatta eða það tapi greiðslum úr fé-
lagslega kerfmu sem á að styðja við
bakið á einstaklingunum. Þá má búast
við að kjaramálin verði ofarlega á
baugi á Alþingi sem annars staðar í
þjóðfélaginu," sagði Sighvatur Björg-
vinsson.
veitendasambandinu í hræðsluáróðri
um að við séum að tala okkur í verk-
fall. Þetta er ótrúlega ósmekkleg um-
ræða. Við tölum ekki fólk í verkfall.
Fólk beitir verkfallsvopninu í neyð og
það rekur greinilega að því að sú neyð
sé að skapast að fólk verði að fara að
huga að vopnum sínum. Það mun eng-
inn samþykkja að fara heim með
1.500 til 2.000 krónur, eins og nú er
boðið af VSÍ, til jress að mæta aukn-
um álögum í heilbrigðiskerfi, auknum
álögum sem sveitarstjórnir eru að
leggja á okkur og hinum ýmsu hækk-
unum sem hafa orðið víðsvegar,"
■ Samstarf Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags
Evrópumálin
langerfiðust
viðureignar
- segir Svavar Gestsson. „Engin
kúvending í utanríkismálastefnu
Alþýðubandalagsins."
„Það sem Margrét Frímannsdóttir
segir, og er alveg rétt, er að þessi mál
eru óhjákvæmilega á dagskrá íslensku
þjóðarinnar," sagði Svavar Gestsson
þingmaður Alþýðubandalagsins að-
spurður um þær áherslur sem formaður-
inn lagði f utanríkisstefnu flokksins á
miðstjómarfundi um helgina. Þar þótti
sem mörgum Margrét Frímannsdóttir
væri að opna fyrir umræðu sem h'tt hefur
borið á í Alþýðubandalaginu, þar á með-
al um hugsanlega aðild íslands að Evr-
ópusambandinu. Ekki tókst að ná tali af
Margréti í gær.
„Við emm að ræða J)essi mál og það
er ekkert nema gott um það að segja,“
sagði Svavar. „Ég hef ekki trú á að kú-
vending verði í stefnu flokksins í utan-
ríkismálum, enda var hún ítrekuð á
fundinum. En það er nauðsynlegt að
ræða J)essi mál meðal annars til að skapa
skýrar línur í viðræðum við Alþýðu-
flokkinn. Mér er engin launung á því að
ég tel Evrópumálin þar langerfiðust við-
ureignar því þau verða aðalátakamál
kosninganna 1999.“ En verður kosn-
ingabandalag vinstri flokkanna fyrir
næstu kosningar? „Það gerist allavega
eitthvað," svaraði Svavar Gestsson.
■ Lítið gerist á fundum hjá
sáttasemjara
Menn heilsast
og kveðjast
Enn hefur lítið gerst í samningamál-
um í Karphúsinu. Menn hafa komið þar
saman á stutta fúndi, nánast til J)ess að
heilsast og kveðjast, að því er Eh'sabet
Ólafsdóttir, ritari hjá sáttasemjara upp-
lýsti í samtali við blaði. Engir fundir
voru þar um helgina en í gær komu
þangað meinatæknar, flugmenn, og
mjólkuríræðingar til að heilsa uppá við-
semjendur sína. f dag er von á nefnd
Matvís klukkan 9. Matvís er nýtt sam-
band þjóna, kokka, bakara og kjötiðnað-
armanna. Einnig verða fundir með
samninganefndum fréttxunanna ríkisfjöl-
miðla, Samiðnaðar og Alþýðusamband
Austurlands. Á morgun koma flugvirkj-
ar til fundar, röntgentæknar, Landssam-
band lögreglumanna, Útgarður, ásamt
Félagi félagsvísindamanna og Kjarafé-
lagi viðskipta- og hagfræðinga. Verka-
mannasambandið og starfsmenn SR-
mjöls ætla einnig að rabba við sína við-
semjendur. „Ennþá er þetta rétt eins og
venjulegur vinnustaður, en eftir að J)essi
vika er liðin má fara að búast við að
álagið fari að aukast“, sagði Elísabet.
sagði Kristján ennfremur.
„Davíð Oddssyni væri hollast núna
að kynna sér raunveruleg kjör lág-
launafólks. Góðærið hefur enn ekki
komið til hinna lægst launuðu. Aðrir í
þjóðfélaginu hafa notið góðs af góð-
ærinu sem hann hefur svo oft lýst.
Nú er komið að verkafólki að fá til
baka það sem það fómaði til að ná
stöðugleikanum. Á honum hafa fyrir-
tækin grætt milljarða, sem mörg hver
fara með úr landi. Nú er komið að
verkafólkinu og það vill ekki fá neina
smáaura", sagði Kristján Gunnarsson.
Alþýðuflokkurinn hélt fjölmennan flokksstjórnarfund í Gaflinum í Hafnarfirði á laugardaginn. Þetta var fyrsti fund-
ur nýkjörinnar flokkssstjórnar og þar var einkum rætt um sameiningarmál og flokksmál, þar á meðal útgáfumál.
Hér má sjá hluta fundarmanna. -Sjá nánar í opnu. Ljósm. E. Ól.
■ Ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráðherra um kjaramál vekja hörð viðbrögð hjá verkalýðsforystunni
Davíð leggst í sömu lágkúruna og VSÍ