Alþýðublaðið - 29.01.1997, Side 1

Alþýðublaðið - 29.01.1997, Side 1
■ Hafnarfirðingar vilja fá hluta af arði Hitaveitu Reykjavíkur í sinn hlut Neita að taka þátt í kostnaði við Perluna ■ Sjúkraliðafélag íslands Mótmælir harölega tregðu til samninga „Við ætlum að kanna rétt okkar og athuga hvort við eigum ekki, sam- kvæmt samningi okkar við Hitaveitu Reykjavíkur, rétt á arðgreiðlum," sagði Ingvar Viktorsson bæjarstjóri í Hafnarfirði í samtali við Alþýðublað- ið. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði munu þeirrar skoðunar að þeim hafi verið gert að taka þátt í að greiða íjárfest- ingar vegna Perlunnar og vilja ekki taka á sig þann kostnað. Hafnarfjarðarbær telur sig eiga rétt á 32 milljóna arðgreiðslu frá Hitaveitu Reykjavík vegna hagnaðar hennar á árunum 1992- 1995. Samkvæmt skýrslu Eyjólfs Sæmundssonar, sem er tengiliður Hafnarfjarðarbæjar og Hitaveitunnar, hafa Hafnfirðingar greitt borgarsjóði Reykjavíkur um 250 milljónir króna með afgjaldsgreiðslum til Hitaveitunnar síðustu fimm árin. Eyjólfur telur að samkvæmt samningi skuli Hafnarfjarðabær njóta hluta arðs Hitaveitunnar þegar hann er kominn yfir ákveðin mörk. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur skipað nefnd til að fjalla um samskipti bæjarins og Hitaveitunnar og endur- skoða samninginn þeirra í milli. Nefndin hefur ekki komið saman enn- þá. Alfreð Þorsteinsson, formaður stjómar Veitustofnana I^eykjavíkur, sagðist í smatali við blaðið vera undr- andi á hvemig Eyjólfur hefði komist að þessari niðurstöðu. Hann sagði að það væri rétt að samningurinn kvæði á um að ef tekjur Hitaveitunnar næðu ákveðnu marki, skyldi Hafnafjarðar- bær fá í sinn hlut ákveðinn hluta þess sem færi þar fram yfir. Hins vegar ■ Gjaldþrot Miðils Kröfur nema Gjaldþrotaskiptum er að ljúka í þrotabúi Miðils ehf sem gaf út Helg- arpóstinn. Kröfureru uppá 13 milljón- ir króna, þar af er Gjaldheimtan stærsti kröfuhafinn, en hún lækkaði upphaflegar kröfur um sjö milljónir. Á hæla hennar fylgir Tollstjórinn í Reykjavík en kröfur annarra nema 13 milljónum lægri upphæðum, þar má nefna nokk- urar launakröfur fyrrum starfsmanna fyrirtækisins. Eignir hafa ekki verið lagðar saman en samanstanda aðallega af útistandandi reikningnum vegna áskrifta og auglýsinga, að sögn Sigur- mars K. Albertssonar skiptastjóra þrotabúsins. hefðu tekjuafgangurinn aldrei náð að verða hærri en sem nemur um þriðj- ungi þeirrar upphæðar sem þarf til að til arðgreiðslu komi, samkvæmt samn- ingnum. Samkvæmt heimildum blaðsins snýst málið um að Hafnfirðingar telja að fjárfestingar Hitaveitunnar, meðal annars í Perlunni, og rekstrartap á henni séu færðar á rekstrarreikning Hitaveitunnar og þannig sé tekjuaf- gangi haldið niðri. Þeir telja sér hins vegar ekki skylt að taka þátt í því æv- intýri og vilja sjá hvemig reikningam- ir standa þegar allt slíkt hefur verið hreinsað út. Alþingi kom saman á ný í gær og þingmönnum höfðu um margt að tala eins og gefur að skilja. Ekki vitum við hvort Bryndís Hlöðversdóttir og Össur Skarphéðinsson eru að ræða um samvinnu A-flokkanna eða ekki, en umræðuefnið er greinilega háalvarlegt. Ljósm. E. Ól. Fundur trúnaðarmanna, kjaramála- nefndar og framkvæmdastjómar Sjúkra- liðafélags íslands sem haldinn var í gær mótmælir harðlega tregðu samninga- nefndar íjármálaráðherra og Reykjavík- urborgar til samninga við launþega. „Trúnaðarmannafundur SLFI hafnar algjörlega hugmyndum fjármálaráð- herra og fulltrúa Reykjavíkurborgar um aukið forstjóraveldi til geðþóttaákvarð- ana um kjör starfsmanna sinna, án af- skipta launþegahreyfingarinnar. Vísvit- andi er að því stefnt með forstjóraveldi fjármálaráðherra að afnema samræmda kjarasamninga og afskipti verkalýðs- hreyfmgarinnar af starfskjömm og rétt- indum launþega," segir í ályktun fund- arins. „Trúnaðarmenn sjúkraliða benda á, að haldi ffam sem horfir, er ljóst að þjóðfélaginu er stefnt í harðar vinnu- deilur, sem verður ekki séð fýrir endann á. Hugmyndir forsætisráðherra að kjara- samningar í góðæri gefi ekki tilefhi til meiri en 2-3% hækkana á laun, eru gjör- samlega óviðunandi. Afrakstur slíkra g6ðaerishugip.yn4jt j^ijjtenans. svara ekki-væntingum«launþega ogrfeiða fýrr eða síðar til verkfalla með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Sjúkraliðar gera kröfu um skynsam- lega samninga, betri laun, lægri skatta, lækkun vaxta og samninga um aukinn kaupmátt. Sjúkraliðar krefjast þess að góðærið skili sér til þjóðarinnar, en ekki fárra útvalinna," segir í ályktun Sjúkra- liðafélagsins. ■ Kjaraviðræðurnar Ekki bjartsýnn á samninga ■ Væntanlegt álver á Grundartanga Tveir hreppar vænta stóraukinna tekna - segir Sigurður Ingvarsson forseti Alþýðusambands Aust- urlands , Jú, vissulega höfum við talað sam- an. Við erum búnir að hitta fulltrúa vinnuveitendanna þrisvar og nú erum við að fara á fund með þeim í Karp- húsinu. Ég get þó ekki sagt að ég hafi séð eða heyrt neitt sem vekur mér bjartsýni á að samningar séu í nánd,“ svaraði Sigurður Ingvarsson, forseti Alþýðusambands Austfjarða, fyrir- spurn blaðsins um stöðuna í samn- ingamálum fyrir austan. Sigurður staðfesti að hann og félagar hans hafi rætt aðgerðir til að knýja á um samn- ingana en vildi ekki segja hvað þar væri efst á blaði, enda væri væri ekk- ert í þá veru fullmótað. Aðspurður um hvort verkalýðshreyfingin á Austur- landi óttaðist að vinnuveitendur mundu reyna að teygja samningaum- ræður þangað til mestu annir í loðnu og síld væru búnar, svaraði hann: „Við munum ekki láta það gerast". Oddvitar sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar og norðan Hvalfjarðar, það er Skilamannahrepps, Hvalfjarðarstrand- arhrepps, Leirár- og Melahrepps, Innri Akraneshrepps og Akranesbæjar, hittust fyrir skömmu og fögnuðu væntanlegu ál- veri á Grundartanga, að því tilskildu að ströngustu mengunarvarnir verði við hafðar. Þeir telja að álverið muni auka á fjölbreyttni ( atvinnu í sveitarfélögunum og skapa þeim um leið auknar tekjur. Lang stærstur hluti beinna tekna af stór- iðjunni rennur þó aðeins til tveggja hreppanna, Skilamannahrepps, sem nú mun vera ríkastur dreifbýlishreppa á landi hér, og Hvalfjarðarstrandarhrepps. Þessir tveir hreppar skipta með sér fast- eignagjöldum af mannvirkjunum á Grundartanga og í Skilamannahreppi hef- ur risið nokkur byggð íbúðarhúsa starfs- manna Járnblendiverksmiðjunnar sem einnig gefa hreppnum tekjur í fasteigna- gjöldum og útsvari íbúanna. íbúar allra hreppanna hafa jafnan forgangsrétt til at- vinnu við iðnaðinn á Grundartanga og hafa því allir einhverra hagsmuna að gæta vegna umsvifa þar. Meðan Jóhanna Sigurðardóttir var félagsmálaráðherra vai', að sögn Sigurðar Valgeirssonar, odd- vita Leirár- og Melahrepps, uppi talsverð umræða um sameiningu sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar, en hún mun hafa lognast útaf. Einkum er það vegna þess að hrepparnir tveir, sem mestar tekjur hafa af Grundartanga, hafa ekki lengur áhuga á sameiningu. a ð nýjasta frá M c r o s o f t Microsoft Office '97 er komið auðvelda þér vinnuna Kynntu þér hvernig: Word^Excei, Power Point, Outlook og Access vinna saman í einum pakka • Samvinna hefur aukist milli forrita • Öll forritin vinna með Internetinu • Nýjungin „Outlook" gjörbreytir skipulagi og yfirsýn S í m i 563 3000 • Fax 568 8487 http://www.ejs.is • sa la@ejs . is

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.