Alþýðublaðið - 05.02.1997, Page 1
i
Árangurslaus fund-
ur á Fáskrúðsfirði
um kjarasamninga
í Loðnuvinnslunni
Drógu
okkur á asna-
eyrum
„Við skrifum ekki undir samning
eins og þann sem var gerður við verk-
smiðjumar á Neskaupstað, Eskifirði,
Vopnafirði og Höfn vegna þess að
hann er óviðunandi, það er svo margt í
honum sem er algjör niðurlæging.
Enda vom þeir bara að draga okkur á
asnaeymnum", sagði Eiríkur Stefáns-
son, verkalýðsleiðtogi á Fáskrúðsfirði.
Samningafundur um kaup og kjör í
Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði
hófst síðdegis á nránudag og stóð til
klukkan sex á þriðjudagsmorgun.
„Við settum þar firam ýmsar tillögur
um breytingar á samningnum sem
gerður var við hinar loðnuverksmiðj-
umar og sögðumst alls ekki geta skrif-
að undir þann samning óbreyttan, og
mundum ekki gera það. Við ræddum
samninginn í bak og fyrir og fómm
mjög nákvæmlega yfir hann. Við
höfðum tvo starfsmenn verksmiðjunn-
ar með okkur og ég held að fulltrúar
vinnumálasambandsins hafi lært mik-
ið af að hlusta á menn sem vinna
verkin sem verið er að semja um og
skilið aðstæður betur á eftir. Þeir ætl-
uðu að skoða málið fram til klukkan
þijú í dag og koma þá hingað til okkar -
á fund“, sagði Eiríkur.
Fundurinn var haldinn síðdegis í
gær og eftir hann sagði Eirikur:
„Það varð ekki neitt úr neinu. Við
skrifuðum ekki undir það sem okkur
var boðið, en það var það sama og var
skrifað undir á Eskifirði. Vinnumála-
samband samvinnufélaga bar það fyrir
sig hér að ekki væri hægt að gera
samninga af því að búið væri að eyði-
leggja málið í íjölmiðlum. Eg spurði
hvort við ættum ekki að semja um að
fjölmiðlum verði lokað og banna að
hafa tjáskipti við fólk.
Þetta var auðvitað tilbúningur, ég
vissi strax á fyrri fundinum að þeir
ætluðu ekki að gera nokkum skapaðan
hlut í samningunum, þeir vom bara að
draga okkur á asnaeyrum. Þeir gátu
ekkert samið við okkur vegna þess að
ekki var búið að greiða atkvæði um
samningana við hina, það gaf auga
leið“, sagði Eiríkur Stefánsson.
Atkvæðagreiðsla um samningana á
hinum stöðunum verður væntanlega
um næstu helgi en Eiríkur sagði um
næsta skref í viðræðunum á Fáskrúðs-
firði: „Sáttasemjari fær væntanlega
eitthvað að höndla um málið núna“.
Akureyri
Leigjendafé-
lag stofnað
Stofnfundur Leigjendafélags Norð-
urlands verður haldinn í Alþýðuhús-
inu á Akureyri annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, klukkan 20. Fram til þessa
hafa engin slík samtök leigjenda verið
starfandi utan höfuðborgarsvæðisins.
Jón Kjartansson, formaður Leigjenda-
samtakanna, kemur á fundinn og
greinir frá starfi samtakanna og
ástandi á leigumarkaði. Mikil þörf er
talin vera á félagi leigjanda á Akur-
eyri, enda er kaupstaðurinn mikill
skólabær og fjöldi fólks á leigumark-
aði. Akureyri er eitt þeina sveitarfélga
sem greiðir ekki húsaleigubætur. Þeir
sem einkum hafa unnið að stofnun
Leigjendafélags Norðurlands eru
bræðurnir Sigurjón og Guðlaugur
Pálmasynir. Þeir hyggjast setja á stofn
leigumiðlun á Akureyri.
■ Björn Bjarnason menntamálaráðherra leggur niður nefnd um Lánasjóð íslenskra
námsmanna
Stóreinkennileg vinnubrögð ráðherra
- segir Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son formaður Stúdentaráðs.
Nefnd um endurskoðun á
frumvarpi um LÍN hefur nú
verið lögð niður en hún hefur
ekki haldið fund síðan í ágúst.
„Þetta eru stóreinkennileg vinnu-
brögð hjá ráðherra," segir Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson formaður Stúdenta-
ráðs.
„Bjöm Bjamason setur á laggimar
nefhd til að endurskoða þessi lög með
þáttöku námsmanna en áður en nefnd-
in lýkur störfum leggur hann hana
niður. Nefiidin hafði ekki lokið við að
ræða helming þeirra mála sem lágu
fyrir en hún hefur ekki komið saman
síðan í ágúst. Þetta em sjálfsagt pólit-
ísk vonbrigði Bjöms í hnotskum, hann
er ekki sáttur við að hafa orðið undir í
þessu máli. Þorvaldur Búason niður-
skurðarmaður ráðherra og formaður
nefhdarinnar hefur kannski ekki treyst
sér til að starfa eftir þeirri línu sem
formenn stjórnarflokkanna höfðu
komið sér saman um en hún var að
lækka endurgreiðslubyrði og koma á
samtímagreiðslum lána,“ sagði Vil-
hjálmur.
„Þetta veldur því óhjákvæmilega
að við fáum ekki að koma að þessu
máli með þeim hætti sem er kveðið á
um í stjómarsáttmála. Við spurðum
ráðherra því hvernig við ættum að
koma að endanlegri gerð frumvarps-
ins því það era fjölmargir aðrir þætt-
ir í lögum um Lánasjóðinn sem betur
mættu fara en samtímagreiðslur og
greiðslubyrði. Ráðherra hefur sent
okkur bréf og beðið um athugasemd-
ir frá okkur og þær eiga að berast
honum fyrir áttunda febrúar. Við
munum senda honum heildstætt
lagafrumvarp og greinargerð þar að
lútandi. Ef frumvarpið á að fara í
gegn á þessu þingi, sem er nauðsyn-
legt svo að lögin megi taka gildi á
næsta skólaári verður það að liggja
fyrir í mars. Þangað til verðum við
að treysta orðum forsætisráðherra
um samtímagreiðslur og minnkandi
greiðslubyrði,“ sagði Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson.
■ Ný skoðanakönnun Gallups á fylgi stjórnmálaflokkanna sýnir mikla uppsveiflu á
fylgi Alþýðuflokksins
Fylgishrun Framsóknar
í Reykjavík og á Reykjanesi
- Alþýðuflokkurinn með næstmestfylgi á landinu í heild.
Niðurstöður nýrrar skoðanakönnun-
ar Gallups sýna fylgishrun Framsókn-
arflokksins í Reykjavík og Reykjanes-
kjördæmi. í Reykjavík fær flokkurinn
8,3% atkvæða en fékk 14,9% í þing-
kosningunum 1995. f Reykjaneskjör-
dæmi mælist fylgi Framsóknarflokks-
ins nú 11,6%, en í kosningunum fékk
flokkurinn 21% atkvæða. Fylgi Fram-
sóknarflokksins á landinu í heild mæl-
ist nú 17,7%, en við síðustu Alþingis-
kosningar fékk flokkurinn 23,3% at-
kvæða. Fylgishrunið í þessum tveimur
kjördæmum kemur illa við forystu
flokksins, sem hefur haldið því fram,
að neikvæð áhrif umræðu um stóriðju
og landbúnaðarmál hafi dregið fylgi
flokksins og þá fyrst og fremst á
landsbyggðinni.
Fylgi Alþýðuflokksins mælist nú
20,6% á landsvísu, en flokkurinn fékk
11,4% atkvæða í síðustu kosningum. f
Reykjavík hefur fylgið aukist úr
11,4% í kosningunum 1995 í 23,1%. í
Reykjaneskjördæmi mælist fylgi
flokksins 24,8% í könnun Gallups, en
var 15,8% í kosningunum. Alþýðu-
flokkurinn er með næstmest fylgi allra
stjómmálaflokkanna á landsvísu.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með
heldur meira fylgi en í síðustu kosning-
um þegar hann var með 37,1% fylgi.
Nú er fylgi flokksins 39,9% á landsvísu
samkvæmt skoðanakönnun Gallups.
Flokkurinn bædr nokkra við sig bæði í
Reykjavík og á Reykjanesi.
Alþýðubandalagið fær 17,5% fylgi á
landinu í heild í könnuninni, en var með
14,3% í kosningunum. Flokkurinn bæt-
ir við fylgi sitt bæði í Reykjavík og á
Reykjanesi. Fylgi KvennaÚstans heldur
áfram að minnka. Listinn fékk 4,9% at-
kvæða í síðustu kosningum en fylgið
mælist nú 3,9%. Fylgi Þjóðvaka á land-
inu í heild er 0,5% samkvæmt könnun
Gallups, en var 7,1% við síðustu kosn-
ingar.
Könnunin var framkvæmd dagana
24. til 30. janúar. Úrtakið var 1.200
manns á aldrinum 15 - 75 ára, en þessi
hluti náði til 18 ára og eldri. Svarhlut-
fall var 72,6%.
TALAÐ YFIR TÓMUM STÓLUM. Það var afskaplega fámennt í þingsal í gærdag meðan Hjörleifur Guttormsson stóð í pontu og hélt ræðu um mál tengd
Landsvirkjun. Það var meira að segja svo fámennt að þeir fáu sem hlustuðu náðust ekki á myndina með ræðumanni.
-Fróttir af Alþingi á baksíðu.
Ljósm. E. Ól.