Alþýðublaðið - 11.02.1997, Side 1
Þriðjudagur 11. febrúar 1997 Stofnað 1919 21. tölublað - 78. árgangur
■ l^ðnusamningurinn á Austurlandi samþykktur með naumum meirihluta
Otrúlegur heilaspuni
- segir Sigurður Ingvarsson um umæli Eiríks Stefánssonar.
Samningurinn milli Alþýðusam-
bands Austurlands, fyrir hönd starfs-
manna í loðnuverksmiðjunum á Eski-
firði, Neskaupstað, Vopnafirði og
Höfn, og Vinnumálasambandsins var
samþykktur um helgina með 35 at-
kvæðum gegn 27.
„Ég mælti með þessum samningi.
Ég taldi að meira væri ekki hægt að fá
með þessu hætti. Samningurinn var
dæmdur á þennan hátt og niðurstaðan
kemur mér ekki á óvart“, sagði Sig-
urður Ingvarsson, formaður Alþýðu-
sambands Austurlands, í samtali við
blaðamann.
Þegar Sigurður var beðinn um hans
skýringu á að munurinn var ekki mik-
ill í atkvæðagreiðslunni svaraði hann:
„Það er geysilega mikil breyting fólg-
in í þessum samningi. Hann felur í sér
mikinn niðurskurð á vinnutíma og
einnig getur hann valdið lækkun
heildarlauna ársins. Það er því eðlilegt
að menn velti þessu fyrir sér. Við
stóðum ffammi fyrir því að það er bú-
ið að samþykkja hér tilskipun Evr-
ópusambandsins um styttingu vinnu-
tímans. Slagurinn stóð því um að
reyna að koma í veg fyrir tekjulækk-
un. Það tókst ekki fullkomlega eins og
við stefndum að, en þetta er niður-
staðan", sagði Sigurður.
Þegar ummæli Eiríks Stefánssonar
voru borin undir Sigurð sagði hann:
„Þetta er ótrúlegur heilaspuni. Ekk-
ert af þessu er rétt, en það má koma
fram að Eiríkur Stefánsson var hér
hringjandi daga og nætur út í þessar
loðnuverksmiðjur að leggja að mönn-
um að fella þennan samning. Eiríkur
hefði hvenær sem er getað fengið rétt-
ar upplýsingar hjá mér.
Ég óska Eiríki og öðrum félögum
mínum í verkalýðshreyfingunni hins
besta og að þeim verði vel ágengt í
baráttunni og að þeir geti gert betri
samning".
Eiríkur Stefánsson, verkalýðsieiðtogi á Fáskrúðsfirði, um samninginn við
loðnuverksmiðjurnar.
Þá var farið í baktjaldamakk
„Bolabrögðin í þessu niáli eru til skammar fyrir
verkalýðshreyftnguna. Ég ætla ekki að segja að það
gildi um mennina sem voru að greiða atkvæði, því
að þeir voru gerðir ringlaðir. Atkvæðagreiðslan var
tafin í marga daga vegna þess að það var alveg ljóst í
byijun að hann yrði kolfelldur, og svo farið í bak-
tjaldamakk", sagði Eiríkur Stefánsson, verkalýðs-
leiðtogi á Fáskrúðsfirði, uin samþykkt loðnuverk-
smiðjusamningana á Austfjörðum. „Strákarnir í
þessum fjórum verksmiðjum voru plataðir sitt á
hvað. Það var verið að gera þeim alls konar yfirboð,
undir borðið. Þessi samningur á að vera mótandi fyr-
ir allar hinar verksmiðjumar og þær verða neyddar
til að taka sama samning.
Ég hef ömggar fréttir af því að á Eskifirði hafi ver-
ið höfð í ffammi vinnubrögð að á síðustu mínútum
fyrir atkvæðagreiðsluna hafi verið boðnir ákveðnir
hlutir, sem ekki átti að setja inn í samninginn. Svo á
að hafa verið sagt að ef eitthvað meira fengist á öðr-
um stað, þá fáið þið það líka. Það er greinilega ekki
hægt að greiða atkvæði í einum potti um svona
samninga.
Að samningurinn var samþykktur með 35 atkvæð-
um gegn 27 sýnir okkur að það er gífurleg óánægja
með samninginn.
Mitt mat á samningnum var að hann væri gjör-
samlega óaðgengilegur, þegar okkur var boðið að
skrifa undir hann, því að það voru í honum svo mikl-
ir ágallar að það varð að laga þá“, sagði Eiríkur Stef-
ánsson.
■ Alþýðublaðsútgáfan ehf. tekur við Alþýðublaðinu
Óbreytt útgáfa í hönd-
um nýrrar stjórnar
Eyjólfur Sveinsson: Blaðið tekur mið af sjónarmiðum
jafnaðarmanna og sést einnig af því að ritstjóri er ráðinn af
útgáfufélaginu og Alþýðuflokknum í sameiningu".
„Við leituðum til flokksmanna eftir framlögum, sem
þurftu að vera allhá, til þess að við gætum haldið áfram að
gefa blaðið út á vegum flokksins, en fengum ekki undir-
tektir við það“, sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður Al-
þýðuflokksins, þegar Alþýðublaðið óskaði eftir að hann
segði frá aðdraganda og ástæðum þess að nú hefur Alþýðu-
blaðsútgáfan ehf. tekið við útgáfu blaðsins úr höndum Al-
prents hf.
„Að undanförnu höfum við verið að leita leiða til að
halda átfam útgáfu blaðsins, gera úrslitatilraun til að láta út-
gáfuna standa undir sér. Við leituðum til Alþýðublaðsút-
gáfunnar ehf. sem gaf blaðið út snemma á áttunda áratugn-
um og samningar tókust um að hún mundi taka við því
verki aftur. Á þeim tíma starfaði ég með þessu félagi sem
ritstjóri og ég hafði af því mjög góða reynslu. Ég vona að
þetta gangi vel“, sagði Sighvatur.
,Eins og lesendur Alþýðublaðsins hafa orðið varir við í
umræðunni að undanfömu, hefur Alþýðublaðið verið rekið
með halla og eigendur blaðsins voru komnir nálægt
ákvörðun um að leggja blaðið niður“, sagði Eyjólfur
Sveinsson, stjórnarmaður í Alþýðublaðsútgáfunni ehf.,
þegar blaðið leitaði eftir hans umsögn. „Með hliðsjón af því
að við teljum að hvergi sé hægt að gefa blað út hagkvæmar
heldur en í samstarfi við Fijálsa fjölmiðlun, vegna þeirra
tækja, aðstöðu og ýmislegs annars sem þar er fyrir hendi,
var ákveðið að gera þessa úrslitatilraun með útgáfu Al-
þýðublaðsins. Því var ákveðið að Alþýðublaðsútgáfan tæki
útgáfuna að sér, Alþýðuflokknum að kostnaðarlausu, um
ákveðinn tíma, og svo verður málið skoðað aftur á haust-
dögum eða undir lok árs. Það er auðvitað von okkar að
þessi tilraun muni takast", sagði Eyjólfur.
Aðspurður um ritstjórnarstefnu meðan á tilrauninni
stendur svaraði Eyjólfur:
„Það er rætt um að hún verði óbreytt, sem felur í sér að
blaðið tekur mið af sjónarmiðum jafnaðarmanna og sést
einnig af því að ritstjóri er ráðinn af útgáfúfélaginu og Al-
þýðuflokknum í sameiningu".
I fréttatilkynningu sem hefur verið gefin út um breyting-
amar segir meðal annars að Alþýðublaðsútgáfan ehf. sé í
meirihlutaeigu Fijálsrar tjölmiðlunar, en einnig séu meðal
hluthafa fólk úr forysturöðum Alþýðuflokksins. Stjóm fé-
lagsins skipa Sveinn R. Eyjólfsson, Eyjólfur Sveinsson og
Sighvatur Björgvinsson.
Síðastliðinn laugar-
dag hélt þingflokk-
ur jafnaðarmanna
ráðstefnu um laun-
in og réttlætið á ís-
landi. Þar ræddu
þingmenn við fram-
ámenn í samtökum
launafólks og hag-
fræðinga. Rætt er
við nokkra fundar-
gesti í blaðinu í dag
og birtar myndir frá
fundinum.
Sjá bls. 5.
Össur ritstjóri
Alþýðublaðsins
Össur Skarphéðinsson, alþingismaður, hefur tekið við sem ritstjóri Alþýðu-
blaðsins um óákveðinn tíma, frá og með deginum í dag að telja. Eins og fram
kemur annars staðar hér á síðunni tók Alþýðublaðsútgáfan ehf. við rekstri Al-
þýðublaðsins í gær. Með þessum tímamótum og aðkomu nýs ritstjóra er gerð úr-
slitatilraun til að tryggja útgáfugrundvöll Alþýðublaðsins en árangurinn verður
metinn á hausti komanda. Össur er þrautreyndur í blaðaútgáfu og hefur komið að
útgáfu ýmissa fjölmiðla undanfarin 20 ár. Starfsfólk Alþýðublaðsins fagnar
komu Össurar og væntir mikils af samstarfi við hann.
,Ég geng glaður að þessu verki," sagði Össur í samtali við Alþýðublaðið í gær.
„Alþýðublaðið á sér glæsta sögu, ekki síst undanfarin ár, og mikilvægt er að
kappkosta að halda merki þess á lofti. Ég hef áður komið að útgáfu þessa blaðs
fyrir nokkrum árum en það endaði með þeim ósköpum að það kviknaði í blaðinu.
Vonandi tekst betur til nú enda hin nýju húsakynni blaðsins vel búin slökkvitækj-
um.“