Alþýðublaðið - 12.02.1997, Side 7
I
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRUAR 1997
ALÞYÐUBLAÐIÐ
f r é t t i
■ Haröar deilur um arðgreiðslur Landsvirkjunar
Eftirlit hert með
Landsvirkjun
Fallist á sjónarmið jafnaðar-
manna um aukið hlutverk
ríkisendurskoðunar og
Samkeppnisráðs
Þingflokkur jafnaðarmanna greiddi
í gær atkvæði með frumvarpi ríkis-
stjómarinnar um Landsvirkjun, sem
meirihluti Reykjavíkurlistans í borg-
arstjórn lagði kapp á að hlyti af-
greiðslu á Alþingi. Frumvarpið fól í
sér að eigendum fyrirtækisins,
Reykjavíkurborg, Akureyri og ríki,
yrði í framtíðinni greiddur arður af
hlut sínum. Alþýðubandalagið lagðist
hart gegn frumvarpinu, þar sem það
taldi að það leiddi til hærra orkuverðs.
Guðmundur Ámi Stefánsson studdi
frávísunartillögu Alþýðubandalags-
ins, en sat síðan hjá við afgreiðsluna.
Svavar Gestsson mælti harkalega
gegn fmmvarpinu, taldi það leiða til
hækkaðs orkuverðs, og mótmælti
harkalega að ekki væri gert ráð fyrir
því að Alþingi kysi fulltrúa í stjórn
Landsvirkjunar. Hann gaf ekki mikið
fyrir bókun, sem borgarstjóri, iðnað-
arráðherra og bæjarstjórinn á Akur-
eyri höfðu skrifað undir, þar sem sagt
var skýmm stöfum að lækkun orku-
verðs hefði forgang umfram arð-
greiðslur til eigendanna. “Hversvegna
eru menn þá ekki reiðubúnir til að
staðfesta það í lagaákvæði?” spurði
þingmaðurinn.
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður
jafnaðarmanna, sagði að verulega
hefði verið komið til móts við sjónar-
mið þeirra, og því hefðu jafnaðar-
menn með góðri samvisku getað stutt
frumvarpið. En hún var talsmaður
þeirra í iðnaðamefnd, sem fjallaði um
málið.
“Við höfðum fmmkvæði að því að
breytingartillögum sem fólu í sér að
starfsemi Landsvirkjunar félli undir
samkeppnisráð og að ríkisendurskoð-
un hefði nauðsynlega endurskoðunar-
Jóhanna Sigurðardóttir: Verulega komið til móts við sjónarmið jafnaðarmanna um aukið eftirlit með Landsvirkj-
Borgarstjóri heldur fundi
Svavar Gestsson: Óttast að orkuverð til neytenda hækki vegna þessara
breytinga.
of eftirlitsmöguleika gagnvart Lands-
virkjun. Á þetta féllst meirihlutinn.
Auk þess verður lögð fram bókun við
þriðju umræðu, sem er undirrituð af
iðnaðarráðherra, borgarstjóra og bæj-
arstjóranum á Akureyri, þar sem
kemur fram að um það sé sammæli
að það sé forgangsverkefni að raun-
verð á raforku geti lækkað,” sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir.
Félagsfundur
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur fé-
lagsfund laugardaginn 15. febrúar 1997 á Tilver-
unni, Linnetsstíg 1, Hafnarfirði, kl. 12.00-14.00.
Gestir furidarins og framsögumenn verða þær
Rannveig Guðmundsdóttir og Svanfríður Jón-
asdóttir alþingismenn.
Umræðuefni: Hvað er að gerast á Alþingi?
Síðan eru frjálsar umræður og framsögumenn
svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri: Unnur Hauksdóttir.
í hverfum borgarinnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri, mun halda hverfafundi með
íbúum Reykjavíkur á næstu dögum og
vikum. Fyrsti fundurinn var á mánu-
dagskvöld, 10. febrúar, í Félagsmið-
stöðinni Fjörgyn með íbúum Grafar-
vogshverfa.
Næstu fundir verða í Árseli 24.
febrúar, Langholtsskóla 27.febrúar,
Gerðubergi 3. mars, Ölduselsskóla 10.
mars, 13. mars í Réttarholtsskóla og í
lokin verða tveir fundir í Ráðhúsinu
24. mars og 7. apríl. Á fundunum ræð-
ir borgarstjóri framkvæmdir og áætl-
anir í hverfinu. Síðan verða opnar um-
ræður og fyrirspurnir með þáttöku
fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Á öllum fundunum verða
settar upp teikningar af fýrirhuguðum
framkvæmdum í hverfunum ásamt
ýmsu fróðlegu og myndrænu efni sem
íbúar í viðkomandi hverfi kunna að
hafa áhuga á.
Jafnaðarkonur
Annar “súpufundur” vetrarins verður haldinn 13. febrúar kl. 19.00-21.00 í Vín-
kjallaranum á Hótel Borg.
Marita Petersen þingmaður jafnaðarmanna í Færeyjum flytur erindi um stöðu mála í
heimalandinu.
Allir fyrri “súpufélagaF hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga.
Allar konur velkomnar!
1907-1997
Verkamannafélagið Hlíf
sendir félagsmönnum sínum og velunnurum bestu
kveðjur og þakkir fyrir gjafir og árnaðaróskir í tilefni
af 90 ára afmæli félagsins.
Þið gerðuð okkur afmælið ógleymanlegt.
Megi framtíð ykkar vera björt og hamingjurík.
Lifið heil!
Sigurður T. Sigurðsson,
formaður Hlífar.