Alþýðublaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
önnur siónarmið
Umræðumar um Reykjavíkurflugvöll
Hinn nýi og skelleggi ritstjóri Al-
þýðublaðsins fer mikinn í blaðinu
sfnu þessa dagana. Er ritstjórinn
þekktur af dugnaði og að kunna að
færa í stílinn eins og kallað er þannig
að umræðan passi honum og hans
skoðanabræðrum. Þannig var mál-
flutningur hans á Alþingi við um-
ræðunna um flugmálaáætlun fyrir
stuttu og þannig er málflutningur
hans í leiðara Alþýðublaðsins 21.
febrúar síðast liðinn. Þar reynir rit-
stjórinn að snúa stefnuleysi R-listans
í málefnum Reykjavíkurflugvallar
yfir á Sjálfstæðisflokkinn.
Eins og kom fram í þinginu og
hefur komið fram í blöðum þá eru
það eingöngu R-listafulltrúar sem
Pallborð i
Kristján
Pálsson
skrifar
vilja sjá breytta landnotkun í Vatns-
mýrinni og að Reykjavíkurflugvöllur
verði lagður niður á núverandi stað.
Þar dugir að nefna yfirlýsingar Guð-
rúnar Ágústsdóttur forseta borgar-
stjómar um flutning Reykjavíkur-
flugvallar úr borginni sem birtust í
Morgunblaðinu 24. október 1995,
22. og 31. október 1996 og í sjón-
varpi. Yfirlýsingar framsóknarmann-
anna Sigrúnar Magnúsdóttur borgar-
fulltrúa og Alfreðs Þorsteinssonar
borgarfulltrúa frá 1987 og 1988 og
Halls Magnússonar frá árinu 1990.
Fulltrúa Kvennalistans frá árinu
1986 og 1991. R- listinn hefureinnig
í heild sinni lagst gegn byggingu
flugstjómarmiðstöðvar á Reykjavík-
urflugvelli vegna þess að þá festist
völlurinn í sessi.
Ritstjórinn kallaði þá “pótentáta”
sem höfðu viljað Reykjavflcurflug-
völl í burt og verður því að draga þá
ályktun að R-listafúlltrúar séu í aug-
um ritstjórans “pótentátar” sem
merkir samanber orðabók “stórbokki
eða burgeisi”.
Ritstjóranum rennur blóðið til
skyldunnar þegar hann reynir að
verja borgarstjórann í þessu máli, en
staðreyndimar tala sínu máli um
skoðanir R-listamanna en á borðinu í
dag er að þrengja enn að starfsemi
flugsins í borginni með lokun hluta
af NA-SV brautinni. Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins f Reykjavík hafa
ekki að því er ég best veit ljáð því
máls að flytja eða leggja Reykjavík-
urflugvöll niður nema að síður sé.
Undirritaður þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins hefur afturámóti þá skoð-
un og er í minnihluta með hana inna
flokksins. Mín skoðun kemur til
meðal annars vegna óvissu um fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar í ljósi yfir-
lýsinga borgarfúlltrúa R- listans og
af þeirri ástæðu einni sé ekki verj-
andi að henda hátt í 2 milljörðum
króna í endurbætur og nýja flugstöð
fyrr en R- listinn hefur misst völdin í
Reykjavík.
Önnur rök eiga einnig við um
Að leggja niður Reykjavíkurflugvöll og flytja allt
flug til Keflavíkurflugvallar er því af þessum
ástæðum einum aðeins tímaspursmál
breytingar á rekstri flugvalla eins og
sú staðreynd að rekstur tveggja stórra
flugvalla er of dýr kostur fyrir þjóð
sem telur aðeins 265 þúsund manns.
Þörfin fyrir sérstakan innanlands-
flugvöll í Reykjavík fer einnig
minnkandi vegna bættra samgangna,
en við tilkomu Hvalfjarðarganga
mun farþegum til og frá Akureyri
fækka stórlega. Leiðin til Vestfjarða
styttist einnig verulega við göngin
sem og Gilsfjarðarbrú og lagfæringu
á Þorskafjarðarheiði.
Að leggja niður Reykjavíkurflug-
völl og flytja allt flug til Keflavíkur-
flugvallar er því af þessum ástæðum
einum aðeins tímaspursmál og því
skynsamlegra og setja 1,5 milljarða
króna f breikkun Reykjanesbrautar
og auka hámarkshraðann þar upp í
110 kílómetra á klukkustund. Þar
með næst það markmið að álfka
langur tími fari í að keyra frá miðju
höfuðborgarsvæðinu til Leifsstöðvar
og í dag fer í að keyra á Reykjavíkur-
flugvöll.
Höfundur er alþingismaður
og samgöngunefndarmaður.
Hrafn Jökulsson gerír það
ekki endasleppt í heimi
fjöimiðlanna. Hann tók við
Mannlífi eftir að Þórarinn
Jón Magnússon flutti sig um
set, og stýrimaður á skútinni
með Hrafni var þaulreynd
blaðakona Guðrún Kristjáns-
dóttir. Árangurinn tvímenn-
inganna hefur ekki látið á sér
standa, því upplag Mannlífs,
um tfu þúsund eintök, er nú
uppselt hjá forlaginu. Næsta
hefti mun þó áreiðanlega
vekja enn meiri eftirtekt, því
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum mun það valda ira-
fári bæði í stétt íslenskra
klerka og undirheima....
Þeir sem verst koma út úr
yfirtöku íslenska útvarps-
félagsins á hinni lánlitlu Stöð
3 voru yfirmennirnir fimm sem
fóru nánast i skjóli nætur af
Stöð 2 yfir á litla keppinautinn.
Óvíst er um framtíð þeirra inn-
an hins nýja risa. Magnús
Kristjánsson, sem varð
stjónvarpsstjóri á Stöð 3 er
þegar búinn að taka pokann
sinn. Ljóst var að ekki var
möguleiki á nokkrum sáttum
með honum og Jóni Ólafs-
syni, enda var handtakið stutt
og brosið beiskt á skjánum,
þegar Jón kom að taka
stassjónina yfir...
Eftir aö fimmmenningamir
fóru yfir á Stöð 3 færðist
meiri ábyrgð yfir á tvo trúnað-
armenn þeirra Sigurjóns Sig-
hvatssonar og Jóns Ólafs-
sonar sem eftir sátu. Þetta
eru þeir Páll Baidvin Bald-
vinsson sem er æskuvinur
Sigurjóns og var með honum f
bókmenntafræði í Háskólan-
um á sínum tíma, og Hregg-
viður Jónsson sem nú er
orðinn stjórnarformaður ís-
lenskrar margmiðlunar. Þeir
tveir unnu tæknivinnuna fyrir
Jón Ólafsson meðan á samn-
ingunum stóð og voru með
honum í för þegar hann fór og
tók við Stöð 3. I dag eru þeir
meðal valdamestu innanbúð-
armanna sjónvarpsrisans...
Atburðarrásin var svo hröð
þegar samruni sjónvarps-
stöðvanna átti sér stað, að
jafnvel lykilmenn í röðum hlut-
hafa höfðu tæpast pata af
hvað var að gerast. Þannig
var einn af stærstu hluthöfun-
um Árni Samúefsson bíó-
kóngur staddur í Los Angeles
og vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið. Nöturieg kald-
hæðni sögunnar birtist í því,
að í Los Angeles var hann
staddur á kaupstefnu að
kaupa inn kvikmyndir. Fyrir
hverja? Bíóin sín og svo auð-
vitað fyrir Stöð 3....
r
AAIþingi fyrir skömmu báru
þeir Guðmundur Hall-
varðsson úr Sjálfstæðisflokki
og Framsóknarmaðurinn
Guðni Ágústsson fram fyrir-
spum um lýsingu vegarins yfir
Hellisheiði. Af þvi tilefni heyrð-
ist þessi vísa á göngunum:
Dimmt er yfir Hellisheiði,
helst er á því von,
að vegalausum götu greiði,
Guðni Ágústsson.
hinomggin
"F»rS»de" eflir Gary Lareon
Jason ívarsson, kennari.
“Mér virðis eins og Stöð 2 hafi
gleypt Stöð 3. Ég sé ekkert óeðli-
legt við það, því að landið ber
ekki fleiri sjónvarpsstöðvar.”
Egill Bjarkason, verkamaður.
“Mér sýnist eins og það sé ekki
markaður fyrir fleiri stöðvar en
jressar sem eru fyrir.”
Ámundi Sigmundsson,
verslunarmaður.
“Mér líst vel á hana, það er eng-
inn markaður fyrir Stöð 3.”
Hlín Jóhannesdóttir, nemi.
“Eins og er líst mér vel á hana. en
ég er nú ekki dómbær á hvort
eitthvað sé óeðlilegt við þessa
hluti.”
Lovísa Jóhannsdóttir,
verslunarmaður.
“Ég er svolítið efins, þetta er oið-
ið of mikið bákn á einni hendi.”
i
3
“Frumhlaup hins óreynda
hæstaréttarlögmanns Hreins
Loftssonar stafar af bersýni-
lega af því að hann hefur
hvorki haft manndóm né sann-
færingakraft til þess að koma
vitinu fyrir ólöglærðan hús-
bónda sinn. Sá einþykki kaup-
sýslumaður hefur ekki viljað
átta sig á því, hve vafasöm og
glær hegðun hans í viðskiptum
var. Kaup á tveimur fyrirtækj-
um, gerð í þefm tilgangi að
snuða samfélagið um millj-
ónatugi í opinberum gjöld-
um.”
Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlög-
maður tekur upp hanskann fyrir Pétur Kr
Hafstein, dómarann sem allir deila við.
Coca Cola veldið fær það óþvegið i grein-
inni, “Noblesse oblige,” eða tignin skyldar.
Mogginn í gær.
“Vafi leikur á hvort útgáfa
Þjóðviljans á veraldarvefnum
stenst lög.”
Allir vildu Lilju kveðið hafa. Nú deila ungir
thaldsmenn og allaballar um eignarrétt á
Þjóðviljanum. DT (gær.
“Forstjórinn farinn úr landi og
fyrirtækið hætt.”
Terry Bissell, breskur skúrkur, hefur yfir-
gefið landið eftir að hafa selt dvalarrétt t
einu hótelherbergi fyrir 25 milljónir króna,
kaupendur eiga engan eignarétt. DV í gær
Karlmenn hafa löngum haft
orð á því að konur séu mál-
gefnari en karlar og nú hafa
ástraiskir vísindamenn tekið
undir þetta og gert tilraun til
að skýra ástæðuna. Hún sé sú
að málstöðvar í heila kvenna
séu stærri en karla.
Forsfðufrétt i MÐL í gær
“Einu sinni var blað ykkar,
Mogginn, kallaður danski
moggi, það var þegar danskir
kaupmenn áttu þar hlutabréf,
síðar kom til enski moggi, það
þótti víst haldbetra að vera
breskur en þýskur, þá kom
bandarískur moggi. Eftir stríð.
Og nú er það, hver veit hvað.
Kjartan Helgason ellilifeyrisþegi er ekki
hress með þau ummæli Leifs Sveinssonar
lögfræðings um að hann, (Kjartan) væri
uppáhalds kreppukomminn sinn. Kjartan
svarar þvi Leifi í MBL í gær.
Atvinnurekandi skilur eftir sig
skuldaslóð upp á hundruð þús-
unda. Gefur fólkinu langt nef
og vísar á ábyrgðarsjóð launa.
Lögfræðingur Oagsbrúnar
mun krefjast opinberrar rann-
sóknar.
Fyrirsögn í DV ( gær.
Ég spies spora framhjá ferðaskrif-
stofu með myndum af stöðum þar
sem Simin Spies væri líklegur til að
halda til núna. Eitt andartak tek ég
eftir því hvar andlit mitt speglast í
rúðunni og ég sé hvemig ég kasta til
höfðinu til að fá toppinn ffá augun-
um. Alveg eins og mamma gerir.
Jafnvel hér í útlandinu læðist hún
aftan að mér.
Gerður Kristný t bók sinni Regnbogi i
póstinum sem kom út nú fyrir síöustu jól.