Alþýðublaðið - 27.02.1997, Page 1

Alþýðublaðið - 27.02.1997, Page 1
■ Verkföll hefjast níunda mars og allsherjarverkfall 23 mars. Við látum sverfa til stáls - segir Björn Grétar Sveinsson en verði ekki samið áður fara 80 þúsund manns í verkfall. “Gengur hvorki né rekur í viðræðum.” “Skelli verkfallið á, þá fara nær allar samningaviðræður í bakiás,” segir Halldór Bjömsson formaður Dags- brúnar. “Þegar horft er yfir sviðið em menn ekki að tala um nein einangmð verkföll, við emm að tala um að nær allt Alþýðusambandið er að fara í verk- fall, um 80 þúsund manns. Það er langt frá að þetta sé nokkur gamanleikur eða sumarfrí,” segir Halldór. “Það getur verið mjög erfitt að snúa ofan af þessu þegar það er komið á fulla ferð, ég er sammála Guðmundi Gunnarssyni í því,” “Það er ekki að ástæðulausu sem formenn landssambandanna skora sameiginlega á félögin að boða til verkfalls. Því fylgir gífurleg alvara og menn skyldu ekki ætla að það sé gert í kæruleysi,” sagði Bjöm Grétar Sveins- son, formaður Verkamannasambands íslands. “Það gengur hvorki né rekur í samningaviðræðunum. Kröfur okkar em reiknaðar þvers og krass, upp og niður og við getum ekki haldið svona áfram. Stjómvöld mega heldur ekki bíða. Þeirra hlutur er óaðskiljanlegur hluti af þessari erfiðu stöðu. Ég er hissa á að frá ríkisstjóminni hafa ekki komið nein svör,” sagði Bjöm Grétar. Mikið er um fundarhöld hjá Dags- brún þessa dagana, margir vinnustaða- fundir á hveijum degi. f gærkvöldi var fundur í stóra samninganefndinni og félagsfundur klukkan 13:00 í dag í Bíóborginni. Á þessum fundum verður farið yfir fyrirhugaðar verkfallsboðan- ir, sem eru þessar: Verkfall hjá Mjólk- ursamsölunni og MS-ís 9. mars, ef ekki verður búið að semja, 12. mars hjá hafnarfyrirtækjunum, Samskip, Eim- skip og löndun, 16. mars hjá olíufélög- unum og allsheijarverkfall 23. mars. “Það er engin ástæða til að ætla ann- að en að til verkfalla komi. Það hefur ekkert komið fram sem bendir til ann- ars,” segir Halldór Bjömsson. “Vilji menn semja er það enn hægt.” “Við látum sverfa til stáls,” segir Bjöm Grétar Sveinsson, “það er nauð- synlegt.” ■ Útvarpsréttarnefnd fjallar um yfirtök- una á Stöð tvö og Stöð brjú. Vill lögfræoilegt mat á framsali Árni Gunnarsson: “Skýr ákvæði um það að óheimilt sé að versla með sjónvarpsrásir." “Að mínum dómi era skýr ákvæði um það að óheimilt sé að versla með sjónvarpsrásir sem útvarpsréttar- nefnd hefur úthlutað,” segir Ámi Gunnarsson fulltrúi Alþýðuflokksins í Utvarpsréttamefnd en nefndin mun koma saman klukkan hálfníu í dag til að fjalla um yfirtöku Stöðvar tvö á Stöð þijú, “Ég mun óska eftir ítarlegu lög- fræðilegu mati á ffamsali á þessum rásum, hvort þar hafi rétt verið að verki staðið,” segir Ami og vildi ekki segja meira um málið að svo stöddu. Sjá fréttaskýringu á síðu sjö. Æskufjör á efri árum Listakonan Svava Skúladóttir er fædd árið 1910 en Hjörtur Guðmundsson hagleiks og uppfinningamaður árið 1928, bæði sýna þau verk sín á Nýlistasafninu þessa dagana. Svava sýnir vatnslitamyndir og leirverk en Hjörtur það sem hann kallar uppfinningar. Hjört- ur er mikill hagleiksmaður og það er ekki til það heimilistæki eða fjölmúlavíl sem hann getur ekki lagað þegar iðnaðarmennirnir hafa dæmt það á öskuhaugana, Svava hefur fundið lífi sínu tilgang í listinni nú þegar ellin hefur færst yfir með sín gráu hár. Bæði flokkast þau undir að vera æskulistafóik eða svokall- aðir naivistar í listsköpun sinni því þau hafa enga menntun hlotið eða tilsögn í myndlist. Hylltur af Alþingi Á morgun kemur Lars Emil Johansen formaður grænlensku landsstjómarinnar til íslands og mun hann heimsækja þingpalla Alþingis klukkan 15.45. Gert er ráð fyrir að sem flestir þing- menn verði viðstaddir og munu þeir hylla hann með því að rísa úr sætum. Slíkt er sjaldgæft þegar um opinberar heimsóknir er að ræða. Stephansstofa Mörður Amason hefur lagt fram á Alþingi tillögu þess efn- is að hér á landi verði stofnuð skrifstofa sem sinna muni mál- efnum Vestur-fslendinga. Hug- myndin er sú að skrifstofan verði kennd við Stephan G. Stephansson og nefnd Steph- ansstofa. Allt bendir til að hún verði samþykkt, en það er sem kunnugt er fremur fátítt þegar um tillögur stjómarandstæð- inga er að ræða. Sjá bls. 7. Loksins! Loksins! Loksins! Það sem allir hafa veríð að bíða eftir. Sérsmíðaðar álrímlagardínur á verði sem á engan sinn líkan, framleiddar af Sólargluggatjöldum með sömu frábæru þjónustunni eins og alltaf. Tökum mál - Gerum tilboð - Setjum upp. Geríð samanburð. Veljum íslenskan iðnað. gluggatjöld Skúlagötu 51 - símar 5513743 og 5515833

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.