Alþýðublaðið - 27.02.1997, Síða 1
■ Verkföll hefjast níunda mars og allsherjarverkfall 23 mars.
Við látum sverfa til stáls
- segir Björn Grétar Sveinsson en verði ekki samið áður fara 80 þúsund manns í verkfall. “Gengur hvorki né rekur í viðræðum.”
“Skelli verkfallið á, þá fara nær allar
samningaviðræður í bakiás,” segir
Halldór Bjömsson formaður Dags-
brúnar. “Þegar horft er yfir sviðið em
menn ekki að tala um nein einangmð
verkföll, við emm að tala um að nær
allt Alþýðusambandið er að fara í verk-
fall, um 80 þúsund manns. Það er langt
frá að þetta sé nokkur gamanleikur eða
sumarfrí,” segir Halldór. “Það getur
verið mjög erfitt að snúa ofan af þessu
þegar það er komið á fulla ferð, ég er
sammála Guðmundi Gunnarssyni í
því,”
“Það er ekki að ástæðulausu sem
formenn landssambandanna skora
sameiginlega á félögin að boða til
verkfalls. Því fylgir gífurleg alvara og
menn skyldu ekki ætla að það sé gert í
kæruleysi,” sagði Bjöm Grétar Sveins-
son, formaður Verkamannasambands
íslands. “Það gengur hvorki né rekur í
samningaviðræðunum. Kröfur okkar
em reiknaðar þvers og krass, upp og
niður og við getum ekki haldið svona
áfram. Stjómvöld mega heldur ekki
bíða. Þeirra hlutur er óaðskiljanlegur
hluti af þessari erfiðu stöðu. Ég er hissa
á að frá ríkisstjóminni hafa ekki komið
nein svör,” sagði Bjöm Grétar.
Mikið er um fundarhöld hjá Dags-
brún þessa dagana, margir vinnustaða-
fundir á hveijum degi. f gærkvöldi var
fundur í stóra samninganefndinni og
félagsfundur klukkan 13:00 í dag í
Bíóborginni. Á þessum fundum verður
farið yfir fyrirhugaðar verkfallsboðan-
ir, sem eru þessar: Verkfall hjá Mjólk-
ursamsölunni og MS-ís 9. mars, ef ekki
verður búið að semja, 12. mars hjá
hafnarfyrirtækjunum, Samskip, Eim-
skip og löndun, 16. mars hjá olíufélög-
unum og allsheijarverkfall 23. mars.
“Það er engin ástæða til að ætla ann-
að en að til verkfalla komi. Það hefur
ekkert komið fram sem bendir til ann-
ars,” segir Halldór Bjömsson. “Vilji
menn semja er það enn hægt.”
“Við látum sverfa til stáls,” segir
Bjöm Grétar Sveinsson, “það er nauð-
synlegt.”
■ Útvarpsréttarnefnd fjallar um yfirtök-
una á Stöð tvö og Stöð brjú.
Vill lögfræoilegt
mat á framsali
Árni Gunnarsson: “Skýr ákvæði um það að
óheimilt sé að versla með sjónvarpsrásir."
“Að mínum dómi era skýr ákvæði
um það að óheimilt sé að versla með
sjónvarpsrásir sem útvarpsréttar-
nefnd hefur úthlutað,” segir Ámi
Gunnarsson fulltrúi Alþýðuflokksins
í Utvarpsréttamefnd en nefndin mun
koma saman klukkan hálfníu í dag til
að fjalla um yfirtöku Stöðvar tvö á
Stöð þijú,
“Ég mun óska eftir ítarlegu lög-
fræðilegu mati á ffamsali á þessum
rásum, hvort þar hafi rétt verið að
verki staðið,” segir Ami og vildi ekki
segja meira um málið að svo stöddu.
Sjá fréttaskýringu á síðu sjö.
Æskufjör á efri árum Listakonan Svava Skúladóttir er fædd árið 1910 en
Hjörtur Guðmundsson hagleiks og uppfinningamaður árið 1928, bæði sýna þau verk sín á Nýlistasafninu
þessa dagana. Svava sýnir vatnslitamyndir og leirverk en Hjörtur það sem hann kallar uppfinningar. Hjört-
ur er mikill hagleiksmaður og það er ekki til það heimilistæki eða fjölmúlavíl sem hann getur ekki lagað
þegar iðnaðarmennirnir hafa dæmt það á öskuhaugana, Svava hefur fundið lífi sínu tilgang í listinni nú
þegar ellin hefur færst yfir með sín gráu hár. Bæði flokkast þau undir að vera æskulistafóik eða svokall-
aðir naivistar í listsköpun sinni því þau hafa enga menntun hlotið eða tilsögn í myndlist.
Hylltur af
Alþingi
Á morgun kemur Lars Emil
Johansen formaður grænlensku
landsstjómarinnar til íslands og
mun hann heimsækja þingpalla
Alþingis klukkan 15.45. Gert er
ráð fyrir að sem flestir þing-
menn verði viðstaddir og munu
þeir hylla hann með því að rísa
úr sætum. Slíkt er sjaldgæft
þegar um opinberar heimsóknir
er að ræða.
Stephansstofa
Mörður Amason hefur lagt
fram á Alþingi tillögu þess efn-
is að hér á landi verði stofnuð
skrifstofa sem sinna muni mál-
efnum Vestur-fslendinga. Hug-
myndin er sú að skrifstofan
verði kennd við Stephan G.
Stephansson og nefnd Steph-
ansstofa. Allt bendir til að hún
verði samþykkt, en það er sem
kunnugt er fremur fátítt þegar
um tillögur stjómarandstæð-
inga er að ræða. Sjá bls. 7.
Loksins! Loksins! Loksins!
Það sem allir hafa veríð að bíða eftir. Sérsmíðaðar álrímlagardínur á verði sem á engan sinn
líkan, framleiddar af Sólargluggatjöldum með sömu frábæru þjónustunni eins og alltaf.
Tökum mál - Gerum tilboð - Setjum upp.
Geríð samanburð.
Veljum íslenskan iðnað.
gluggatjöld
Skúlagötu 51 - símar 5513743 og 5515833