Alþýðublaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 1
Föstudagur 28. febrúar 1997 _______________________________________________Stofnað 1919____________________________________________________________28. tölublað - 78. árgangur
■ Blikur á lofti varðandi framtíð þríhliða loðnusamningsins
Segjum upp loðnusamningnum í haust!
- segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ. Vill semja við Grænlendinga eina. Norðmenn hafa skrökvað upp á sig veiði við
Jan Mayen, þó allir viti að loðnan gengur þangað ekki lengur.
“Við eigum hikstalaust að segja
upp loðnusamningnum við Norð-
menn og Grænlendinga næsta haust.
Síðan eigum við að semja við Græn-
lendinga eina, en loka á Norðmenn.
Það er viðurkennt af öllum að engin
loðna hefur gengið í lögsögu Jan
Mayen, skipstjómarmönnum og
fræðingum. En Norðmenn hafa
skrökvað upp á sig afla við eyjuna,
sem þeir tóku þó raunverulega innan
íslensku lögsögunnar samkvæmt
samningnum. Þetta vita allir. Norð-
menn eiga því engan rétt á þessari
loðnu í framtíðinni.”
Þetta sagði Kristján Ragnarson,
formaður LÍÚ, við Alþýðublaðið í
gær. En loðnusamningur þjóðanna
þriggja rennur út í haust, og verði
honum ekki sagt formlega upp fram-
lengist hann sjálfkrafa um tvö ár. í
dag er skiptingin þannig að Islend-
ingar fá 78 prósent veiðiheimild-
anna, og Norðmenn og Grænlend-
ingar sín hvor 11 prósentin. Kristján
sagði að það gæti vissulega verið
svolítil áhætta fólgin í því að hafa
Norðmenn utan samningsins, en þá
áhættu ættu menn að taka.
Kristján sagði að ástæðan fyrir því
að Norðmenn þættust hafa veitt
loðnu við Jan Mayen, sem aldrei
hefði gengið þangað, væri tvíþætt.
Annars vegar væru Norðmenn að
viðhalda tilkalli sínu til loðnunnar,
því samningurinn byggði á því að
loðnan gengi í lögsögu Jan Mayen.
Hinsvegar mættu þeir ekki veiða
nema 60 prósent af afla sínum innan
íslensku lögsögunnar, og eftir því
sem þeir skrökvuðu meiri afla upp á
sig við Jan Mayen þá gætu þeir veitt
meira innan íslensku lögsögunnar.
“Við höfum átt í ákveðnum sam-
skiptaörðugleikum við Grænlend-
inga útaf karfa og grálúðu,” sagði
Kristján. “En í tengslum við tvíhliða
samning um loðnu mætti stórlega
bæta og auka samskipti okkar við
þá.”
Guðmundur
Andri snýr aftur
Guðmundur Andri er mættur til leiks
á ný sem einn af dálkahöfundum Al-
þýðublaðsins og í blaðinu í dag skrifar
hann um ásakanir um vanhæfni Péturs
Hafsteins sem hæstaréttardómara.
Á næstu vikum munu Hrafn Jökuls-
son, ritstjóri Mannlífs, og Halldór
Guðmundsson, útgáfustjóri Máls og
menningar, verða vikapiltar Alþýðu-
blaðsins ásamt Guðmundi Andra.
Jón Baldvin
minnist Dengs
“Kína hefur tekið örari breytingum
en dæmi eru um í heimsbyggðinni.
Kína er stærsta tilraunastofa þjóðfé-
lagsbreytinga sem heimurinn hefur
nokkum tímann séð. í þessum skiln-
ingi er Deng Xiaoping að mínu mati
einhver merkasti stjómmálaleiðtogi
aldarinnar. Stefnan sem hann mótaði
og ákvarðanir sem hann tók hafa gert
meira til að breyta lífi fleiri einstak-
linga til hins betra en kannski era dæmi
um,” segir Jón Baldvin Hannibalsson í
viðtali um Kína og arfleifð Dengs. Jón
Baldvin segir Deng kerfisbundið hafa
reynt að þurrka út hina skelfilegu arf-
leifð Maós. “Hann hefur gert það með
aðferðum sem í mínum huga vekja að-
dáun, vegna þess að þar var unnið af
fýrirhyggju og þekkingu.” Sjá viðtal
við Jón Baldvin á miðopnu.
Keppinautar en þó samherjar.
Rúnar Geirmundsson og Gunnar Ingi Gunnarsson bera saman bækur sín-
ar við upphaf aðalfundar Alþýðuflokksfélags Reykjavfkur. Fundurinn var sviptingasamur og fóru leikar svo að Gunnar Ingi, sitjandi formaöur, dró fram-
boð sitt til baka á fundinum, og Rúnar var kjörinn formaöur félagsins.
■ Harðar umræður um öryggi skipa á Alþingi
Fjöldi skipa virðast
hreinar dauðagildrur
- segir Kristján Pálsson og krefst þess að samgöngumálaráðherra birti
lista yfir 191 skip sem vitað er að standast ekki öryggiskröfur.
“Ég krefst þess að samgöngumála-
ráðherra birti lista yfir 191 skip sem
ekki standast öryggiskröfur í dag. Ég
geri þessa kröfu vegna þeirra sjó-
manna sem þar era og fjölskyldna
þeirra. Ég hef óskað eftir þessum lista
en ekki fengið. Hvað veldur því?”
Þessa kröfu setti Kristján Pálsson
fram í utandagskráramræðu sem
hann efndi til á alþingi um öryggi
sjómanna, og kom til harðra orða-
skipta milli hans og Halldórs Blöndal
samgöngumálaráðherra, sem reiddist
málflutningi þingmannsins.
Kristján Pálsson sagðist hafa
skelftlegar upplýsingar um ástand
skipaflotans. Hann rakti að nýleg út-
tekt á stöðugleika skipa hefði leitt í
ljós, að um 80 prósent tréskipa undir
15 metrum að lengd stæðust ekki
kröfur um öryggi, um 52 prósent tré-
skipa 15 til 24 metra og um 28 pró-
sent málmskipa 15 til 24 metra. Af
þeim 728 skipum sem hefðu verið
skoðuð hefðu því 191 ekki skip stað-
ist lögbundnar öryggiskröfur.
“Þetta era einhverjar verstu fréttir
sem ég hef fengið,” sagði Kristján
Pálsson og kvað þetta ótrúlega stöðu.
“Er þetta ef til vill aðeins toppurinn á
ísjakanum? Fjöldi skipa virðast vera
hreinar dauðagildrar. Málið er
grafalvarlegt og grípa verður til að-
gerða strax. Ég spyr ráðherrann:
Hvaða aðgerða ætlar hann að grípa
til?”
I umræðunni kom fram hjá Stefáni
Guðmundssyni þingmanni Frarn-
sóknarflokksins, sem sæti á í sam-
göngunefnd, að hann myndi hlutast
til um að málið yrði þegar í stað tek-
ið upp innan nefndarinnar.
Rúnar Geirmundsson
kjörinn formaður
Þrjár konur efstar í stjórnarkjöri
Rúnar Geirmundsson var kos-
inn formaður Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur á miklum hitafundi á
miðvikudagskvöldið.
Uppstillinganefnd gerði tillögu
um að sitjandi formaður, Gunnar
Ingi Gunnarsson, heilsugæslu-
læknir, gegndi embættinu áfram.
Gylfi Þ. Gíslason, yngri, gerði
hinsvegar tillögu um Rúnar Geir-
mundsson, og ljóst var að hann
hafði talsverðan stuðning á fund-
inum.
Rúnar hélt framboði sínu til
streitu og eftir nokkrar umræður á
fundinum ákvað Gunnar Ingi að
draga framboð sitt til baka, og
kvaðst gera það til að efla ein-
drægni í félaginu. Nokkrir fundar-
manna efuðust um að hann gæti
dregið framboðið til baka, en eftir
stutt fundarhlé var lýst sjálfkjöri
Rúnars.
Mikil umskipti urði í stjóm-
inni, og ekki náðu allir af lista
uppstillinganefndar kjöri. Þrjár
konur urðu hæstar í kosningunni,
þær Ásgerður Bjamadóttir,
Magnea Marinósdóttir og Kol-
brún Bergþórsdóttir. Auk þeirra
náðu kjöri Kristinn Ásgeirsson,
Ingvar Sverrisson og Börkur
Gunnarsson. Stjómin hefur ekki
ennþá skipt með sér verkum, en
mun hittast næstu daga til að gera
það.