Alþýðublaðið - 12.03.1997, Page 8
Verö í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Guðmundur Bjarnason harðlega gagnrýndur á Alþingi
vegna viðbragða eftir strand Vikurtinds
Rangt hjá ráðherra
segir Margrét Frímannsdóttir, þegar hann segir ekki ástæöu til aö kalla saman
séríræöinganefnd. Stjórnarsinnar gagnrýndu ráöherrann líka.
“Það virðist sem ráðherrann hafi
ekki vitað um tilvist og tilgang þess-
arar nefndar, sem er enn til og skipuð
ömu mönnum. Það er mjög slæmt
að hún hafi ekki verið kölluð til. Það
er gott fyrir ráðherra af slíka nefnd á
sínum snærum,” sagði Margrét Frí-
mannsdóttir, alþingismaður og for-
maður Alþvðubandalagsins, eftir ut-
andagskrárumræður á Algþingi í gær,
þar sem í ljós kom að Guðmundur
Bjamason umhverfisráðherra virist
ekki vita um tilgang sérfræðinga-
nefndar sem Eiður Guðnason, fyrr-
verandi umvherfisráðherra, skipaði
eftir mengunarslys á Ströndum á ár-
inu 1991.
Nefndinni var ætlað að koma sam-
an, ef slys yrði, til að meta mengun-
arhættu, leiðbeina um viðbrögð og
samræma aðgerðir þeirra stofnana
sem koma að. Fylgjast með og meta
árangur og gera síðan skýrslu og gera
tillögur um úrbætur. Eftir að Vikar-
tindur strandaði hefur nefndin ekki
verið kölluð saman,” sagði Margrét
Frímannsdóttir.
Verkefni nefndarinnar er að koma
saman þegar meiriháttar mengunaró-
höpp verða eða hætta er á slíku, meta
mengunarhættu, skipaleggja rann-
sóknir á lífríki og leiðbeina um við-
brögð og samræma aðgerðir ein-
stakra stofnana, meta árangur að-
gerða, gera tillögur til umhverfisráð-
herra.
“I svari ráðherrans kom fram að
ekki væri ástæða til að kalla nefndina
saman. Hann sagði að nefndinni væri
ekki ætlað að stýra aðgerðum, heldur
til meta eftir á hvemig hafi takist til
og skila ráðherra skýrslu. Þetta er
rangt hjá honum.
“Mér blöskrar að það sem hefur
rekið upp er á margra ferkílómetra
svæði. Eg kom fimm sólarhringum
eftir strandið og þá er þar aðeins fá-
mennur hópur að tína upp draslið,
jafnvel hættuleg efni. Það virtist vera
lítið skipulag, til dæmis var ekki búið
að taka gryfjur til að draga úr fok-
hættu, þó ekki væri annað,” sagði
Margrét.
Kristján Pálsson, einn stjómar-
þingmanna, var meðal þeirra sem
gagnrýndu ráðherrann. Kristján
sagði orðrétt: „Það sem snýr að
strandi Vikartinds í dag em afleið-
ingar þess að skipið hefur legið á
strandstað í heila viku án þess að
nokkuð hafi verið gert til að hefta fok
á allskyns varningi. Það er msl að
dreyfast um allar sveitir sem og
sandfjörar við Þjórsárósa. Það er
mikill skaði hversu seint er gripið inn
í þetta umhverfisslys, það er ekki
verjandi.”
■ Aukiö samstarf SUJ og Veröandi
r
Alyktun um verkalýðsmál
“Þessi sameiginlega ályktun er
einn þáttur í auknu samstarfi þessara
tveggja hreyfinga. Hún er einnig
hugsuð sem mótvægi við þá miklu
athygli sem ungir Sjálfstæðismenn
hafa fengið fyrir popúlistatillögur
sínar, sem era lítið meira en óraun-
hæf plögg,”
segir Hreinn Hreinsson um sam-
eiginlega ályktun sem sambands-
stjóm Ungra jafnaðarmanna og fram-
kvæmdastjóm Verðandi hafa sent frá
sér um verkalýðsmál.
f ályktuninni segir:
“Ungir jafnaðarmenn og Verðandi
átelja Vinnuveitendasambandið og
ríkisstjómina vegna stöðunnar í
samningamálum aðila vinnumarkað-
arins. Það hlýtur að vera öllum ljóst
að krafa verkalýðshreyfingar um 70
000 króna lágmarkslaun er sanngjöm
í ljósi betra efnahagsástands sem
launafólk á íslandi hefur skapað.
Ungir jafnaðarmenn og Verðandi for-
dæma málflutning vinnuveitenda og
ríkisstjómar þess efnis að launa-
hækkanir af þessu tagi ógni stöðug-
leikanum, því ástand efnahagsmála í
dag gefur ekki tilefni til þess. Staða
efnahagsmála á fslandi er með allt
öðram hætti í dag en fyrir 15 áram
síðan þegar launahækkanir af þessari
stærðargráðu virkuðu sem olía á
verðbólgubálið, nú era efnahagslegar
forsendur allt aðrar. Vinnuveitendur
og ríkisstjóm verða að skilja að
skilaboð frá launafólki era skýr, lífs-
kjörin verður að bæta, það verður að
skipta kökunni á réttlátari hátt. Allir
era sammála um að launamenn hafi
lagt sinn skerf til efnahagsbatans, nú
er röðin komin að ríkisstjóm og
vinnuveitendum
Það er skoðun Ungra jafnaðar-
manna og Verðandi að sá ófriður sem
nú ríkir á vinnumarkaði sé á ábyrð
ríkisstjómar og vinnuveitenda.”
Eg bíð spenntur
-segir Hjálmar Árnason, alþingismaður
“Formenn stjómarflokkanna hafa
gert með sér samkomulag og báðir
lýst því yfir aðsátt verði um málið.
Ég hef enga ástæðu til að ætla annað
en að þeir standi við það. Það er í
rauninni kjami málsins. Nefndin sem
var skipuð, á sínum tíma, er ekki
lengur starfandi, hún hefur verið
leyst upp. Málið er menntamálaráðu-
neytisins og það er menntamálaráð-
herra að undirbúa það og ég bíð
spenntur eftir að hann ljúki þessu
máli,” sagði Hjálmar Amason, þing-
maður Framsóknarflokks, þegar
hann var spurður um hvað honum
þyki um framgang LfN-málsins.
En hversu lengi ætlar Hjálmar að
bíða spenntur?
“Ekki endalaust. Ég kýs að orða
það ekki öðruvísi. Ógætilega sögð
orð geta haft vond áhrif. Þolinmæðin
er ekki endalaus, en ef þetta næst fyr-
ir þinglausnir í vor, þá held ég að
menn geti viðunað, úr því sem kom-
ið er. Ég hefði viljað sjá það koma
fram fyrir einu ári. Ég hef miklar
væntingar, en treysti samkomulagi
formanna stjómarflokkanna.”
dcH^Ȏ
i 1 r?\ ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200
liiiMía' BEINN SÍMI 553 1236
v.. , ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200
jlitiSlLn BEINNSÍMI 553 1236
m
■ - w*—
L E I pa liS A R
M
NLEIKAK I HÁSKÓLABÍÓI
FIMMTUDAGINN 13. MARS KL. 20.00
eœsbbss
einleikari
[ fnisskrá
JónNordal: Bjarkamál
Edward Elgar: Inngangur & allegro
James McMillan: Veni, veni Emmanuel
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255 V
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN
_____
STEFANSBLOM
SKIPHOLTI 50 B - SÍMI 561 0771