Alþýðublaðið - 14.03.1997, Page 1
■ Samgönguráðherra mátti upplýsa
um laun hjá Pósti og síma hf.
Blöndal
tekinn í
bólinu
Finnur segir ráðherra hafa upplýsingaskyldu.
Halldór þrjóskast enn.
“Lögfræðingar hafa haft samband
við mig og bent á nokkrar lagagrein-
ar sem sýna að óheimilt er að neita
að gefa þessar upplýsingar. Ég tel að
Halldór Blöndal, og sömuleiðis for-
sætisráðherra, verði að svara
nokkrum grundvallarspumingum
sem hið sérkennilega svar hins fyrr-
nefnda hefur vakið,” segir Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmað-
ur jafnaðarmanna. Ásta sendi skrif-
lega fyrirspum til samgönguráðherra
á miðvikudag um laun og starfskjör
stjómarmanna hjá Pósti og síma hf.
Svar Halldórs Blöndals var á þá leið
að ráðuneytið hefði ekki þær upplýs-
ingar frá Pósti og síma hf. sem um
væri beðið og teldi sér ekki fært að
krefjast þeirra.
í umræðum um stofnun hlutafé-
lags um Landsbankann og Búnaðar-
bankann í gær spurði Ágúst Einars-
son iðnaðarráðherra Finn Ingólfsson
um upplýsingaskyldu ráðherra. í
máli Finns kom fram að ráðherra
hefði ótvíræða upplýsingaskyldu
vegna ríkisfyrirtækja í þessari stöðu.
Samkvæmt þessu virðast ráðherram-
ir tala í kross.
Halldór Blöndal sagði í svari sínu
við fyrirspum Ástu Ragnheiðar síð-
astliðinn miðvikudag að með stofnun
Pósts og síma hf. hefðu rofnað öll
stjómsýslutengsl milli ráðuneytis og
félagsins, sem áður voru á milli ráðu-
neytisins og Póst og símamálastofn-
Umdeildur dópsali
í Mannlífí, sem kemur út á morgun, er ítarleg úttekt á starfsemi
Franklín Steiner, og ekki síður er forvitnileg samnatekt á samstarfi
hans og fíkniefnalögreglunnar. Þar er fullyrt að Franklín hafi sloppið
við lögregluaðgerðir, þar sem hann hafi keypt sér frelsi með upp-
ljóstrunum.
Arnar Jensson og Bjöm Halldórsson, sem farið hafa fyrir ffkniefna-
deild lögreglunnar á síðustu árum, sæta harðri gagnrýni vegna
málsins. Sjá bls. 7
unar, og ráðuneytið hefði ekki skip-
unarvald í málefnum Pósts og síma
hf.
Ásta segist efast um að þessi yfir-
lýsing standist og bendir á að í máli
viðskiptaráðherra á þingi í gær hafi
komið fram að þessi tilhögun muni
ekki gilda ef ríkisbönkum verði
breytt í hlutafélag.
Ásta Ragnheiður segir þessa yfir-
lýsingu samgönguráðherra einnig
þarfnast skýringar, og hefur farið
fram á utandagskrámmræðu um
þessi mál.
María og Krossinn
María og Krossinn nefnist stórt
kórverk sem frumflutt verður á
tónleikum í Hallgrímskirkju á
sunnudag. Flytjendur em Mótettu-
kór Hallgrímskirkju og Schola
Cantomm, á tónleikunum munu
kórarnir einnig flytja verk eftir
þrjú önnur tónskáld, Palestrina,
Gesualdo og Arvos PNrths. í verk-
inu bregður Hjálmar fyrir sig tón-
smíðastíl sem hann hefur ekki
mikið notað fyrr, þ.e stílbrögðum
fúgulistarinnar og tengir hana
þeim stíl sem menn þekkja úr hans
fyrri verkum.
Tónleikamir sem em á vegum
Listvinafélags Hallgrímskirkju
verða á sunnudaginn klukkan 17.
STEFANSBLOM
SKIPHOLTI 50 B - SÍMI 561 0771
Skelj ungsbúðin
Suðurlandsbraut 4 • S. 560 3878