Alþýðublaðið - 19.03.1997, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ó n a r m i ð
Avítur útvarpsráðs vegna Dagsljóssþáttar
Það er hins vegar áhyggjuefni þegar formaður
Alþýðubandalagsins ætlast til þess að fulltrúi
flokksins í Útvarpsráði gerist pólitískur varð-
hundur ákveðins aðila í trássi við landslög.
Guðrún Helgadóttir varaþing-
maður og fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í Útvarpsráði gerir í Viku-
blaðinu grein fyrir afstöðu sinni
til umdeilds Dagsijóssþáttar:
Daginn fyrir kosningar til Stúd-
entsráðs var umtalsverður hluti
Dagsljóss lagður undir leikþátt þar
sem tveir alþingismenn ásamt
gnnista í hlutverki menntamálaráð-
herra léku erfíðleika stúdenta í við-
skiptum sínum við Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna. Leiðsögumað-
ur þremenninganna var formaður
stúdentaráðs, Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, talsmaður Röskvu, fé-
lags róttækra stúdenta. Andstæðing-
ar Röskvu komu þama hvergi ná-
lægt. Hvort þessi gamansemi stuðl-
aði að glæsilegym kosningasigri
Röskvu daginn eftir skal ósagt látið.
Útvarpsráð harmaði einróma þetta
augljósa hlutleysisbrot fréttatengds
þáttar í Ríkisútvarpinu eins og því
bar skylda til samkvæmt lögum og
reglum um fréttaflutning, og skyn-
söm kona eins og Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, einn stjórnenda þáttarins
viðurkennir í Vikublaðinu 10. mars
síðastliðinn að ástæða hafi verið til
þess. Það er alltaf ánægjulegt þegar
einhver hefur dómgreindina í lagi.
Aðrir virðast hafa minna af henni.
Formaður stúdentaráðs og fram-
bjóðandi Röskvu er furðu lostinn
yfir bókuninni samkvæmt sama
Vikublaði og Margrét Frímannsdótt-
ir, formaður flokks míns, harmar af-
stöðu mína í ráðinu. Hún lék eitt að-
alhlutverkið í þættinum og skilur
ekki að „þekktur húmoristi" eins og
ég skuli styðja vítur á þáttinn. Eg er
ekki hissa á því, en ég undrast dóm-
greindarleysi formanns Stúdenta-
ráðs.
Ástæður mínar voru þessar:
í 15. gr. Útvarpslaga segir svo:
„Ríkisútvarpið skal halda í heiðri
lýðræðislegar grundvallarreglur og
mannréttindi og frelsi til orðs og
skoðana. Það skal gæta fyllstu
óhlutdrægni í frásögn, túlkun og
dagskrárgerð".
I Reglum um fréttaflutning segir
svo:
„Ríkisútvarpið skal gæta fylstu
óhlutdrægni í frásögn, túlkun og
dagskrárgerð."
I 20. gr. Útvarpslaga segir svo:
„Útvarpsráð setur reglur, eins og
þurfa þykir, til gæslu þess að fylgt sé
ákvæðum 15. gr.“
Það ætti því að vera hverjum
sæmilega skynugum lesanda vel
ljóst hvers vegna ráðið sá sig knúið
til að gera athugasemd við umrædda
dagskrá.
Það er hins vegar áhyggjuefni
þegar formaður Alþýðubandalagsins
ætlast til þess að fulltrúi flokksins í
Útvarpsráði gerist pólitískur varð-
hundur ákveðins aðila í trássi við
landslög. Slíkt mun ég ekki gera
mig seka um, og tel þess háttar at-
hæfi ólíklegt til vinsælda og virðing-
ar námsmanna sem annarra aðila í
þjóðfélaginu. Þetta veit Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson jafnvel og ég og
undrun hans er þess vegna óheiðar-
leg.
Hann veit mæta vel að ég hef æv-
inlega stutt Röskvu og baráttu náms-
manna fyrir mannsæmandi kjörum.
I Þingtíðindum hygg ég að lesa megi
fleiri ræður greinarhöfundar á Al-
þingi um þessi efni en formanns Al-
þýðubandalagsins. Það breytir ekki
því að mér þyki óásættanlegt að
brjóta landslög um óhlutdrægni Rík-
isútvarpsins fyrir málstaðinn.
Það er aðalsmerki menntaðs
manns að hann kunni að greina
hismið ffá kjamanum. Formenn
stjómmálaflokka og þeir sem á Al-
þingi sitja ættu einnig að leggja sig
eftir því eftir bestu getu, jafnvel þó
að þeir séu „þekktir húmoristar".
Þessa dagana stendur yfir
áskriftarherferð DT, þar
sem hinn vaski ritstjóri Stefán
Jón Hafstein birtist ábúðar-
mikill á skjánum og skrúfar frá
persónutöfrunum til að laða
að áskrifendur. Sjónvarpsaug-
lýsingum er fylgt eftir með því
að sérstökum hópi er sendur
vandaður kynningarbæklingur.
Herferðin hefur að sögn skilað
mjög góðum árangri. Leyni-
vopnið mun felast í því að
þegar bæklingurinn er tekinn
er umslaginu berst daufur ilm-
ur að vitum manna, og konur
á besta aldri staðhæfa að þar
sé kominn ómótstæðilegur
rakspíri ritstjórans og flykkjast
til að gerast áskrifendur...
Ossur Skarphéðinsson
hefur gert framtíð flórgoð-
ans að umræðuefni á þingi en
fuglategundin mun vera í út-
rýmingarhættu. í gær birtum
við vísu eftir hinn ágæta fram-
sóknarhagyrðing Jón Krist-
jánsson um flórgoðann og Al-
þýðuflokkinn. Þetta samband
fugls og flokks varð hinum
hagorta formanni Alþýðu-
flokksins, Sighvati Björg-
vinssyni, einnig að yrkisefni í
eftirfarandi vísu:
Flórgoðastofninn fundið hefur
sér vini
í fögru umhverfi varplandsins
eina og sanna.
Hann á sér skjól hjá Össuri
Skarphéðinssyni
og örugga framtíð í hópi
jafnaðarmanna.
Þegar er afráðið að Alfreð
Gíslason láti af störfum
sem þjálfari handboltaliðs KA.
Forráðamenn félagsins eru
farnir að leita að nýjum þjálf-
ara. Draumur þeirra er að fá
til félagsins Jón Kristjáns-
son, þjálfara Vals, en Jón er
gamall KA-maður. Hann er
bróðir Erlings Kristjánsson-
ar fyrirliða handboltaliðs KA,
en þeir bræður jú saman ís-
landsmeistarar með fót-
boltaliði KA á sínum tíma.
Punktakerfi Hagkaups,
Flugleiða, Húsasmiöjunnar
og Skeljungs var kynnt í sjón-
varpsfréttum sem mikill
happadráttur fyrir neytendur
sem gætu nú safnað sér fyrir
utanlandsferð á 12 til 15 mán-
uðum, með því að versla við
þessi fyrirtæki. Það virðist þó
sem Jóhannes Gunnarsson
formaður Neytendasamtak-
anna sé ekki í þessum glaða
hópi neytenda því hann hefur
gagnrýnt þetta harðlega og
sagt þetta varða við sam-
keppnislög. Jóhannes tók
ennfremur fram að fjölskylda
þyrfti að borða fyrir 8,5 millj-
ónir til að fá flugmiða sam-
kvæmt kerfinu, og það innan
fjögurra ára, því eftir þann
tíma fellur kortið úr gildi og
nýtt tímabil hefst. Jafnvel á ís-
landi, þar sem matarverð er
með því hæsta sem gerist í
heiminum, er ólíklegt að með-
alfjölskylda geti torgað slíkum
ósköpum af mat. Það mætti
ætla að Gaui litli og fjölskylda
hans hafi verið viðmiðun
þeirra sjónvarpsmanna, það
er að segja fyrir megrun...
BiiÉiilni
FarSide" oftir Gary Larson
.Ég var nafn... meiriháttar forstjóri... eigið fyrirtæki... og
svo einn daginn hrópaði einhver: „Hey! Hann er bara stór
og fertur kakkalakkil'.
fimm á förnum vagi
Hver er fyndnasti íslendignurinn?
Róbert Schmidt,
skopmyndateiknari:
„Laddi er fjölhæfur gúmmí-
karl.“
Ómar Kaldal,
verslunarmaður:
Félagamir í Sleggjunni, Jakob
Bjarnar og Davíð Þór.“
Ása Ninna Pétursdóttir,
nemi:
„Siggi Slgurjóns er langbest-
ur.“
Rakel Magnúsdóttir,
söngkona:
Gurinar Sigurðsson, formaður
skemmtinefndar Fjölbrauta-
skóla Suðurlands."
Sævar Guðnubndsson,
múrari:
Laddi er yfirburðamaður.“
v i t i m e n n
“Nú er bara spurning um að
finna sér annan bát til þess að
geta haldið áfram þar sem frá
var horfið. Maður nær ekki úr
sér hrollinum fyrr en maður
kemst aftur á sjóinn og því
fyrr því betra.“
Guðmundur Karvel Pálsson, skipverji á
Blossa GK, sem sökk undan Gelti, en
Guðmundi og skipsfélaga hans var bjarg-
að um borð í Jónínu ÍS. Mogginn í gær.
“Kjarni málsins er persónu-
legur rígur milli tveggja
„blokka“ keppenda, annars
vegar í Reykjavík og hins veg-
ar á Norðurlandi.“
Ólafur Guðmundsson, forseti Landssam-
bands íslenskra aktursíþróttafélaga, þegar
hann var að skýra hvers vegna fresta varð
islandsmóti í vélsleðaakstri, í DT.
“Mér er engin launung á því
að það var ekki gott; alltof
fræðilegt og alltof lítil tengsl
við skólana."
Hafdís Ingvarsdóttir, kennslustjóri við
Kennaraháskólann, í Mogganum.
“Ég lærði saumaskap ungur
og er sæmilega flinkur við að
gera einfalda hiuti með nál,
að festa tölur og stoppa í
sokka."
Páll Pétursson félagsmálaráðherra, I DT.
“Valdhafarnir láta sig engu
skipta, þótt fólkið svelti og búi
við skort á öllum sviðum."
Eggert E. Laxdal í Mogganum.
“Þeir sem fara á Suðurskauts-
landið eru þátttakendur í leið-
angri, sem væntanlega er
skipaður er mönnum, sem vel
þekkja til þar um slóðir.“
Víkverji Moggans.
“Sem dæmi um erfiðleikana
við að starfa í Rússlandi má
nefna að heil ríkisstjórn var
rekin í síðustu viku. Þrátt fyrir
þessa erfiðleika mega íslensk
fyrirtæki ekki gefast upp við
að vinna í þessum heims-
hluta. “
Benedikt Sveinsson, forstjóri íslenskra
sjávarafurða, í Mogganum.
“Ég get stækkað og minnkað
eins og ég vil.“
Bryndís Ólafsdóttir, sterkasta kona fs-
lands, í DT.
Ég sem allt frá æsku
unni hvítum vængjum
- dreymdi í fjarlægð íslands
svanasöng,
Beið - en vonir brugðust, vonir.
Burt flaug skarinn hljóður.
rnörg er eftirvænting ævilöng.
Jakobína Johnson var vesturjslendingur,
fædd árið 1882. Ljóöiö er tekiö úr Ijóöa-
bók hennar fyrir börn, Sá ég svani, en
hún kom út á íslensku á sextugsafmæli
skáldkonunnar árið 1942.