Alþýðublaðið - 19.03.1997, Page 8
MHMBUBIB
Miövikudagur 19. mars 1997
37. tölublað - 78. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykjavík
Vill opinbera rannsókn
á meintum ólöglegum samskiptum fíknefnadeildar og Franklíns Steiner
Við svörum því svo að lögreglan í
Reykjavík standi ekki í lögbrotum,
og við það stend ég,“ sagði Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík,
þegar hann var spurður hvort hann
geti verið viss um störf hvers og eins
lögreglumanns í hans liði, en hann
bætti við að aldrei sé hægt að vera al-
gjörlega viss um allt í veröldinni.
Böðvar sagðist skilja umfjöllun
tímaritsins Mannlífs, um meint ólög-
leg samskipti fíkniefnadeildar og
Franklín Steiner, sem röng og sagðist
hafa góð rök fyrir þeirri afstöðu
sinni. Böðvar sagði, að á föstudaginn
í síðustu viku, hafi lögreglustjóra-
embættið verið beðið um að skila til
dómsmálaráðuneytisins upplýsing-
um um þetta mál og það hafi verið
■ Kristján Pálsson alþingismaður og
skýrslan um stöðugleika fiskiskipa
Blöndal hefur tekið
illa í að birta listann
Höfum einhver ráð til að fá
ekki standast kröfur
“Ég lít svo á að upplýsa eigi hvaða
skip það eru sem ekki uppfylla kröf-
ur um stöðugleika. Ráðherra hefur
verið beðinn um lista yfrr þessi skip.
Hann hefur ekki komið með og hann
hefur reyndar tekið frekar iila í að
birta hann. Ég tel að við höfum ein-
hver ráð til að fá listann. Ég geri ráð
fyrir að þeirri beiðni minni verði
svarað, enda er ekkert sem heimilar,
að mínu viti, stjómvöldum að ég fái
ekki listann." sagði Kristján Pálsson,
alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, en Kristján hefur rætt á Alþingi
bráðabirgðaskýrslu Siglingastofnun-
nöfn þeirra báta sem
ar íslands, þar sem fram kemur að
fjöldi íslenskra fiskiskipa stenst ekki
kröfur sem gerðar eru um stöðug-
leika.
Áætlað er að allt að fimm ár taki
að koma lagi á það öryggisatriði sem
stöðugleikinn er. „Því fyrr sem þetta
verður gert, því betra. f mínum huga
er það engin spuming, að líf sjó-
manna eru það mikilvæg, að ekkert
hálfkák dugir í þessu máli,“ sagði
Kristján. Hann leggur áherslu á að
málið þoli ekki bið, gera verði gang-
skör í úttekt á stöðugleika sem allra
fyrst.
STEmS&LOM
SKIPHOLTI 50 B - SÍMI 561 0771
gert snemma á mánudag. Böðvar
segir að nú sé málið í höndum ráðu-
neytisins.
Kostaði þetta ekki mikla vinnu,
eða var þetta létt verk fyrir ykkur?
„Það held ég hafi verið, það var
ekki erfitt að svara þessu."
En kvíðir lögreglan opinberri
rannsókn?
„Ég hef í mörg ár verið talsmaður
þess að ef menn hafa athugasemdir
við störf lögreglunnar, af hvaða til-
efni sem er, þá eigi ríkissaksóknari
að athuga þau mál. Það er ekki við
hæfi að lögreglumenn gái ofan í
koppana hver hjá öðmm. Þannig að
ég get ekki verið annað en sammála
opniberri rannsókn og að hún verði
eins vönduð og hægt er að fá.“
Aðspurður sagði Böðvar að ekki
væri rétt að Arnar Jensson, fyrrver-
andi yfirmaður fíkniefnadeildar, hafí
verið falið af sér að rannsaka sam-
skipti Bjöms Halldórssonar, núver-
andi yfirmanns fíkniefnadeilar, og
Franklín Steiner. Amari, sem er í
Mannlífi borinn þeim sökum að hafa
komið á samskiptunum við Franklín,
hafi verið falið af RLR að rannsaka
það mál sem kom upp vegna fíkni-
efnamáls á hendur Franklín, en vitni
í málinu tók á sig að eiga þau fíkni-
efni sem Franklín var með þegar
hann var handtekinn.
-Nú hefur verið orðrómur í árarað-
ir um óeðlileg samskipti fíkniefna-
deilar og Franklín Steiner, hefur áður
komið til greina að embættið rann-
sakaði réttmæti þess?
„Lífið gengur ekki á sögum. Það
hefur ekki verið tilefni til að rann-
saka það sem þú spyrð um,“ sagði
Böðvar Bragason lögreglustjóri í
Reykjavík.
Skrifborð - Snyrtiborð
97x46x74 cm.
Áður kr. 29,800. Nú:23,840.
Stóll nú kr. 5,520.-
Skatthol
78x50x105 cm.
Áður kr.35,800. Nú:28,640.
Há kommóða
8 skúffur.
30x43x127 cm.
Áður kr. 39,950.
Nú: 31,960.-
CD Rekki
30x30x33 cm.
Áður kr. 7,900. Nú:6,320.
Kommóða
5 skúffur. 57x40x98 cm.
Áður kr. 39,950. Nú:31,960.
Kringlunni og Faxafeni
(Líttu við í kjallarann í Faxafeni)
RAÐGREIDSLUfJ