Alþýðublaðið - 02.04.1997, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 02.04.1997, Qupperneq 1
Mivikudagur 2. apríl 1997 Stofnað 1919 42. tölublað - 78. árgangur ■ Ólafur Magnússon, bóndi í Kjós, harðorður í garð umhverfisráðuneytisins Ráðherra stendur sig illa “Okkur þykir stjómvöld standa illa að málum. Við erum rétt að byrja okkar baráttu. Alþingi á eftir að af- greiða sinn þátt og við bindum vonir við þingið. Kærur er ein leið, sem við ætlum að nýta okkur til fullnustu, þó það verði skrípaleikur einn. Það sem við munum leggja áherslu á, er að koma til almennings, hver stefna stjómvalda er í umhverfismálum. Hún endurspeglast í þessu, hún end- urspeglast í athöfnum stjómvalda varðandi Vikartindsslysið og hún endurspeglast í þeim vilja sem ■ Verkafólk á Vestfjörðum Strangir fundir hjá sáttasemjara “Okkur var boðinn samningurinn sem hin skrifuðu undir og ósk um frestun á verkfallinu. Við höfðum áður hafnað þessu og gerðum það aftur. Við lögðum fram hugmynd sem þeir höfnuðu. Það em miklar lík- ur á að verkfall skelli á,“ sagði Karít- as Pálsdóttir, hjá Alþýðusambandi Vestfjarða, síðdegis í gær. Þá stóð yfir fundur hjá ríkissátta- semjara þar sem mættust vinnuveit- endur og verkafólk frá Vestfjörðum. Boðað verkfall hófst á miðnætti, svo framarlega sem samningar hafí ekki tekist í gærkvöldi eða nótt. Karítas sagðist ekki eiga von á öðru en verkafllið kæmi til framkvæmda. Þrír fulltrúar Alþýsambandsins fóm til Reykjavíkur í gær til fundar- haldanna. „Við höfum ekki efni á að hafa fleiri til að horfa á veggina í Karp- húsinu,“ sagði Karítas. Karítas sagði Bolvíkinga vera búna að fresta verkfallinu, boðunin hefði verið ólögmæt á Tálknafirði og deilt er um lögmæt verkfallsboðunar á Súðavík. Annars tekur verkfallið til allar annarra verkalýðsfélaga á Vest- fjörðum, frá Patreksfirði að Hólma- vík. Fyrir nokkmm árum síðan. f tíð ríkisstjórnar Alþýðuflokks og Sjálf- stæðisflokks var ntörkuð sú stefna að leggja niður Kópavogshæli í núver- andi mynd og gera að endurhæfinga- deild fyrir Landsspítalann. Það þýddi brottflutning vistmanna út á aðrar stofnanir eða sambýli. Árið 1994 náðist samkomulag milli Rannveigar Guðmundsdóttir sem þá var félags- málaráðherra og Sighvatar Björg- vinssonar þáverandi heilbrigðisráð- herra um að hrinda áætluninni í framkvæmd. Þá var sett á stofn nefnd sem átti að skipuleggja fyrsta áfanga stjórnvöld hafa sett fram varðandi áform ESB um að draga um 15 pró- sent úr gróðurhúsalofttegundum, en íslendingar ætla einir og sér ekki að styðja. Ef Bandaríkjamenn ganga að því tilboði, sem eru góðar líkur á, eft- ir því sem ég best veit, þá verðum við einir eftir í þessum vestræna heimi, sem keyrum einhverja sérleið,“ sagði Ólafur Magnússon, bóndi að Eyjum í Kjós, en hann hefur farið fyrir þeim sem berjast gegn álveri á Grundar- tanga. “Okkur finnst þetta óábyrgt af ís- flutninganna, en gert var ráð fyrir að alls 37 manns flyttu og auk þeirra til- hlýðandi stöðugildi. “Þetta fór vel af stað og skapaði væntingar hjá vistmönnum og að- standendum þeirra en sú þróun að loka stórum sólarhringsstofnunum fyrir fatlaða og flytja í smærri eining- ar er löngu orðin að veruleika í ná- grannalöndunum," segir Asta B. Þor- steinsdóttir en hún og Rannveig Guðmundsdóttir alþingisntaður heimsóttu endurhæfingadeild Kópa- vogshælis ásamt Sighvati Björgvins- syni í boði stofnunarinnar þar sem lenskum stjómvöldum. Guðmundur Bjamason stendur sig afskaplega illa í embætti umhverfisráðherra. Um- hverfisráðuneytið er ekkert annað, í þessu ntáli, en afgreiðslustofnun fyr- ir iðnaðarráðuneytið. Það sér hver sem sjá vill að það vantar allan fag- legan metnað í þau störf sem unnin em í umhverfisráðuneytinu. Holl- ustuvemd er handónýt og sinnir ekki því sem henni er ætlað. Samt er henni ætlað að annast mikilvægt eft- irlit með þeim verksmiðjum sem verða hér í Hvalfirði. Hollustuvemd þeint var kynnt hver staða málsins væri í dag. “Eftir ríkisstjómarskiptin vorið 1995 um vorið hefur það sýnt sig að núverandi félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa ekki sýnt þessu áhuga og áformin því ekki gengið eftir nema að afar litlu leyti," segir Asta. „Aðeins 27 manns hafa flutt á tveggja ára tímabili og em það mikil vonbrigði að þessu skuli ekki vera fylgt betur eftir en hvorki hefur verið lokið við fyrsta áfanga né held- ur tekin ákvörðun um tvo næstu eins og gert var ráð fyrir. Þetta samkomu- hefur algjörlega bmgðist varðandi Jámblendisverskmiðjuna." Ólafur nefndi sem dæmi að Holl- ustuvemd hefði ekki gert þær mæl- ingar sem henni var ætlað að gera varðandi Jámblendisverksmiðjuna. „Iðnaðaráðherra sló sér á brjóst og sagði að mengunarbúnaður og -vam- ir væm 99 prósent í lagi. Hvaðan hafði hann þessar upplýsingar. Jú, frá verksmiðjunni sjálfri.“ Ólafur sagði að gerð yrði krafa um vothreinsibúnað í væntanlegu álveri. lag er auðvitað bindandi gagnvart þessu fólki sem þama býr, þetta er ekki nema sjúkrahús og það sam- ræmist ekki ákvæðum um búsetu í lögum urn málefni fatlaðra né heldur nútíma mannréttindasjónarmiðum að fólk búi alla sína ævi á sjúkrahúsi. Þegar samkomulagið var gert vom bæði Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- flokkur við stjórnvölinn, það hlýtur að vera krafan að Sjálfstæðisflokkur- inn standi við samninginn og á nteð- an býður fólk þess með óþreyju að áframhald verði á brottflutningi fólks frá Kópavogshæli.“ ■ Áburðarverksmiðjan Nýtt fyrirtæki stof nað | 10 milljónir í hlutafé “Það er í uppsliglingu fyrirtæki um | framleiðslu á peroxíð, sem er bleiki- efni og kemur í staðinn fyrir klór. Þetta efni er umhverfisvænt, brotnar niður og verður að súrefni og vatni,“ segir Pétur Jónsson. borgarfulltrúi og formaður atvinnumálanefndar Reykjavíkur, en hann kynnti starfs- mönnum Aburðarverksmiðjunnar í Gufunesi hugmyndir um áform um framtíðarrekstur í Gufunesi. Verið er að stofna fyrirtæki, með 10 milljóna króna hlutafé, sem á að vinna að frekari rannsóknum á fyrir- hugaðri peroxíðframleiðslu. „Það var gerð könnun á þessu sem lofaði það góðu, að ákveðið var að stofna fyrir- tæki, til að halda áfram könnunum á stofnun alvöru vetnisperoxíðverk- smiðju.“ Atvinnumálastofa Reykjavíkur, Vatnsveitan, Aflvaki, markaðsskrif- stofa Landsvirkjunar, Burðarás, Iðn- lánasjóður og Aburðarverskmiðjan. “Þetta er það fýsilegur kostur að haldið verður áfram. Fyrirtækið verður stofnað um miðjan apríl. Það eru efasemdir um að í Gufunesi geti orðið olíuhreinsunarstöð. Verksmiðj- an verður trúlega auglýst til sölu um næstu mánaðamót og eðlilega eru starfsmenn hræddir um hvað um þá verður. Við höfum það líka, þó áburðarframleiðsla skili ekki hagn- aði, þá starfa þar á annað hundrað manns og við höfum áhyggjur af því hvað um þá verður. Það er þess vegna sem borgin, Vatnsveitan og at- vinnumálastofan taka þátt í þessu nýja fyrirtæki," segir Pétur Jónsson. ■ Kannanir í Tékklandi 28 prósent vilja í Nató Aðeins 28 prósent Tékka myndu greiða atkvæði með inngöngu í Atl- antshafsbandalagið, ef kosið yrði nú, samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins og kynnt í Brussel rétt fyrir páskana. Færri voru þó beinlínis andsnúnir inngöngu, eða ekki nema 20 prósent. Afgangurinn vildi ýmist ekki svara eða kvaðst ekki geta gert upp hug sinn til Nató. Tékknesk stofnun kannaði afstöð- una til Nató í sama mánuði og sam- kvæmt henni vildu 38 prósent að Tékkland yrði hluti af Nató. Þessar kannanir koma á óvart, þar sem stjómvöld í Tékklandi sækja mjög fast að fá aðild að Nató, og er skemmst að minnast þegar þeir ósk- uðu aðstoðar fyrrverandi forseta ís- lands, Vigdísar Finnbogadóttur í því efni. I báðum þessum könnunum var einnig könnuð afstaða Tékka til inn- göngu í ESB og niðurstaðan var snöggtum afdráttarlausari í því efni. í könnun ESB kom fram að 43 prósent vildu ganga í sambandið, en könnun tékknesku stofnunarinnar sýndi að 51 prósent vildu í ESB. ■ Ríkisstjórnin stendur ekki við samkomulag um Kópavogshælið Skert mannréttindi — segir Ásta B. Þorsteinsdóttir varaformaður Alþýðuflokksins en hún heimsótti Kópavogshælið ásamt alþingismönnunum Sighvati Björgvinssyni og Rannveigu Guðmundsdóttur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.