Alþýðublaðið - 02.04.1997, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
e r I <2 n t
ðar hann að því að vernda dollarinn í Hong Kong.
aldaklíkunnar í Peking
in auðn, er í dag upptendruð af farsímum, Ferrari - bifreiðum, og frúm sem snæða saman hádegisverð meðan billjónamæringar sleikja upp
Til að núa salti í sárin og auka enn
á höfnunartilfinningu Hong Kong-
búa, voru engar lýðræðislegar um-
bætur boðaðar í nýlendunni, þrátt
fyrir að tæplega áratugur væri fram
að valdaafsalinu til Kínverja.
Christopher Patten. síðasti ríkisstjóri
Hong Kong, en hann tók við völdum
árið 1992, reyndi að bæta um betur,
en of seint, því að það gerði ekki
annað en að reita Kínveija til reiði
sem töldu, að staða mála í Hong
Kong, við valdaafsalið væri þegar
frágenginn. Rikustu íbúamir tóku þá
þann kúrs að reyna að gera gott úr
málum með því að semja beint við
kínversk stjómvöld.
Vestrænir fjölmiðlar hafa ítrekað
spáð hmni Hong Kong í kjölfarið á
valdaafsalinu en öfugt við allar spár,
stendur hagkerfið í blóma. Fast-
eignaverð hefur löngum verið lykill-
inn að velmeguninni, en það hefur
risið hæst í sögu borgarríkisins, það
sama er að segja um hlutabréfamark-
aðinn. „Hámarkinu hefur ekki verið
náð,“ segja bjartsýnir auðkýfingar.
„Viðskiptin verða frábær.“ Hvaða
óvissuþættir sem koma til með að
stjóma örlögum Hong Kong, er líka
víst að íbúamir nálgast þau í fínu
efnahagslegu formi.“
Viðskiptaelítan í Hong Kong
stendur nú þegar í stórviðskiptum við
Kína. Fyrirtæki þeirra veita um fimm
milljónum Kínverja á meginlandinu
atvinnu og greiða auk þess fyrir er-
lendum fjárfestingum í Kína en
Hong Kong hefur orðið hágæða,
þjónustuhagkerfi meðan iðnaður hef-
ur færst yfir á meginlandið þar sem
er ódýrt vinnuafl.
Stjómvöld í Peking hafa fengið
glýju í augun af auðsæld Hong Kong
og í gangi er eins konar sáttmáli milli
kommúnistaelítunnar og auðkýfing-
anna og óbeint er Hong Kong orðinn
stuðningsmaður kínverskra stjóm-
valda áður en valdaskiptin fara fram.
Saman ætla þessi öfl að vemda stöðu
Hong Kong dollarsins og treysta
markaðinn eftir valdaskiptin. Sagan
Aðsetur bresku nýlendustjórnarinnar.
segir að það sé leynileg áætlun í
gangi í Peking um að dæla allt að
160 billjónum dollara inn á markað-
inn ef viðskiptavildin dvínar eftir
valdaskiptin. Mörg önnur teikn era á
lofti um slíkt samkomulag þótt það
hljómi óraunverulega.
Spilling, óreiða,
iögleysa
Kína er nú stærsti fjárfestir í Hong
Kong, og ef Hong Kong fer í niður-
fallið fara margir kínverskir fjársjóð-
ir niður með því, en sú staðreynd við-
heldur bjartsýni margra viðskipta-
jöfra ekki síður en kínverskt stolt, en
veröldin bíður eftir að dæma kín-
verska stjóm í samanburði við þá
bresku.
Demókratar í Hong Kong, vilja
meira lýðræði auk þess sem þeir vilja
stærra velferðarkerfi og styrkja
vinnulöggjöfina sem margir óttast að
dragi úr samkeppnishæfni þjóðarinn-
ar. En Kínverjar munu draga úr öll-
um tilburðum í átt til frekari velferð-
ar.
Mörgum reynist þó erfitt að sjá
kommúnistaríkið taka undir væng
sinn hreinasta markaðshagkerfi í
heiminum. En Carson Wen, ungur
talsmaður viðskiptahagsmuna Kína
og Hong Kong, segir að ákaflega lít-
ið sé eftir af hugmyndafræði komm-
únista í Kína. Kínversk stjómvöld
hafa jafnvel aðvarað nýlendustjóm-
ina að eyða of miklu á fjárlögum til
velferðarmála. Kommúnismi sé
hvaðeina sem stjómendur ríkisins
segi að hann sé. Spillingin. óreiðan.
lögleysan og vinavæðingin í Kína, en
ekki kommúnísk hugmyndafræði séu
hinar raunverulegu ógnir við kapítal-
ismann.
Engin söguleg dæmi
Fjölmiðlar í Hong Kong halda nú
þegar að sér höndunum þegar kemur
að umfjöllun um Kína. Jonathan Fel-
by, hinn breski ritstjóri Morgunblaðs
Suður -Kína segir að blöðin séu nú
mjög varkár, hvað varðar allt sem
geti styggt hina væntanlegu vald-
hafa. „Við höfum verið hvött til að
lýsa atburðunum á Torgi hins
Kínversk ópíum-framleiðsla árið 1896.
hitnneska friðar, ekki sem blóðbaði,
eða fjöldamorði, heldur með öðra og
jákvæðara orðalagi eða bara tala um,
fjórða júní.“
Blaðið hefur einnig fellt niður dag-
legu skopteikninguna Lily Wong,
sem tók kommúnistastjórnina í Kína
einatt háðulegum tökum.
“Það eru engin söguleg dæmi þess
sem nú er að gerast,“ segir Jim
Rohwer ritstjóri Asia Inc, sem hefur
aðsetur í Hong Kong. Eitt fágaðasta
ríki heims, verður yfirtekið af frum-
stæðum stjómvöldum.
Andspænis fijálsbomu fólki era
kínverska elítan líkleg til að að
bregðast við af ruddaskap, það er
þannig sem hún er vön að haga sér á
heimavelli. Það eru engin raunvera-
leg merki þess að aukin hagsæld í
Hong Kong snúi kínverskum stjóm-
völdum í frjálslyndisátt. Þvert á móti.
“Með síðustu handtökum hefur
Kína rekið síðasta naglann í kistu
lýðræðishreyfingarinnar í landinu,"
segir Robin Munro, yfirmaður mann-
réttindaskrifstofunnar í Hong Kong.
Einn þeirra sem komst undan er
Wang Xizhe, sem hefur eytt tólf
árum í kínversku fangelsi fyrir stuðn-
ing sinn við lýðræðið. Hann flúði til
Ameríku síðasta haust eftir að hafa
verið smyglað út úr Kína gegnum
Hong Kong. „Hong Kong verður
miðstöð viðskipta, íjármála og versl-
unar,“ ekkert annað, „ segir kínversk-
ur embættismaður.
Ótti Kínverja við
mótmæli
Það hefur einnig verið gert ljóst að
hálfu kínverskra stjómvalda að allur
stuðningur við Tfbet og Taiwan,
verði ekki þolaður. Ótti Kínverskra
stjómvalda við mótmæli fólks sem er
vant að mótmæla hvenær sem því
þóknast, er mikill. Atburðimir á
Torgi hins himneska friðar árið 1989,
vora reiðarslag fyrir íbúa Hong
Kong, þyrptust þeir í milljónavís út á
göturnar til að mótmæla blóðugri
kúgun, kínverskra stjómvalda á kín-
verskri alþýðu. Síðan þá hefur at-
burðanna verið minnst á hveiju ári í
Hong Kong og í fyrra söfnuðust
saman fjöratíu þúsund manns í Vikt-
oría garðinum og kveiktu á kertum
til að minnast þeirra sem féllu í
blóðbaðinu. Nú ár verður síðasta
samkoman að slíku tagi haldin, ef
hún verður þá yfirhöfuð haldin.
Qian Qichen utanríkisráðherra
Kína, sagði Asíska Wall Street Jo-
umal, að slíkar samkomur yrðu
bannaðar í framtíðinni og einnig
persónulegar árásir á kínverska leið-
toga.
Það er líklegt að röð tilviljunar-
kennda atvika gætu vakið upp óróa
og grafið undan Hong Kong, og
tengslin við Bandaríkin koma til
með að skipta miklu máli í framtíð-
inni. Öll valdníðsla í Hong Kong
getur haft áhrif á tengsl Peking og
Washington og skipt Bandaríkja-
mönnum upp í hópa. Þá sem vilja
viðhalda viðskiptatengslum við
Kínverska markaði í gegnum Hong
Kong og hina sem vilja að Banda-
ríkin bregðist harðlega við mann-
réttindabrotum. Valdataka Kína í
Hong Kong eru mikil prófraun fyrir
kínversk stjómvöld, heimurinn mun
fylgjast með hvemig til tekst, og það
mun gera stöðu þeirra á alþjóðavett-
vangi mun verri ef þeir taka á því
með öfugum klónum.