Alþýðublaðið - 10.04.1997, Síða 1
Pétur Sigurðsson formaður Alþýðusambands Vestfjarða
Er baráttuþrekið þorrið?
Vona í aöra röndina að Verkamannasambandssamningurinn veröi felldur
“Við bökkum ekki með neitt,
hvorki við né vinnuveitendur. Þegar
verið er í samningaviðræðum er þetta
svona. Við eigum eftir að mætast en
krafan okkar stendur og gerir það þar
til við skrifum undir eitthvað annað.
Ef það gerist þá ræðst framhaldið af
viðbrögðum okkar félaga hvað verð-
ur. Við höfum ekki hugsað okkur að
leggja niður stóru samninganefndina,
það verður því stór hópur sem tekur
endanlega ákvörðun, sama hvort það
verður fyrir ofan eða neðan 100 þús-
und kallinn, en vonandi fyrir ofan,“
sagði Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, en þar er
enn ósamið og verkfalli hefur verið
frestað til 21. þessa mánaðar.
“Við erum að vona í aðra röndina
að fleiri komi í hópinn, að Verka-
mannasambandssamningurinn verði
felldur. Ég trúi ekki að baráttuþrek
verkafólks á Islandi sé þorrið. Þetta
eru engir kjarasamningar og það til
þriggja ára. Ég skil til dæmis ekki
hvar þeir segjast sjá rauð strik í þess-
um samningum. Hvað er hægt að
gera með samning sem ekki er hægt
að losa, þegar aðrir hópar eru eftir.
■ Útflöggun skipa
Reynt að
finna lausn
segir ráöherra
“Málið snýst um hvort hægt er að
finna einhverjar leiðir fyrir kaup-
skipaútgerðina og fjármálaráðuneyt-
ið getur sætt sig við,“ sagði Halldór
Blöndal samgönguráðherra, þegar
hann var spurður um aðgerðir stjóm-
valda til að koma í veg fyrir útflögg-
un skipa og að íslenskar útgerðir ráði
frekar erlenda sjómenn en íslenska á
kaupskipin.
Á Norðurlöndunum hefur verið
komið til móts við útgerðir kaup-
skipa, til dæmis gegnum skattkerfið.
Lengi hefur verið beðið eftir aðgerð-
um stjómvalda hér á landi.
“Við náðum ekki utan um málið á
sínum tíma, en nú er búið að taka
málið upp aftur óformlega. Ég held
að það séu forsendur til að ráðast í
þetta verkefni núna og ég og fjár-
málaráðherra höfum rætt um þetta."
Stjómvöld hafa unnið að lausn
málsins í áraraðir, en til þessa hefur
ekki tekist að ná samkomulagi sem
allir aðilar hafa geta sæst á.
I pottinum
Biskup íslands hefur mál-
frelsi einsog aðrir menn, og
það er í himnalagi að honum
fmnist páskaskop Spaugstof-
unnar að lögmálum himna-
sjóla argasta guðlast. Það er
líka í fínu lagi, að biskupinn
viðri þessi viðhorf opinber-
lega.
Þetta er upphaf forystu-
greinar blaðsins í dag.
Sjá nánar bls. 2
hópar sem hafa hærri laun og launa-
munurinn á eftir að aukast? Ef fer
sem horfir eykst launamunurinn
meðal fólks."
Pétur segir að nú sé verið að reikna
út vægi bónussins í heildarlaunum og
því verki eigi að vera lokið 15. april
og hann á ekki von á að mikið gerist
í samningaviðræðunum á meðan.
“Það er verið að taka á aðalmálinu,
sem er launaliðurinn og fyrr en þeirri
vinnu er lokið gerist ekkert, nema
vinnuveitendur bjóði okkur eitthvað
annað.
Það er ekkert hægt að segja um
það ennþá hvemig þetta endar.“
Kjósa varð á ný um verkfallsboð-
un á Súðavík, þar sem mistök urðu í
fyrri kosningu. Allir sem greiddu at-
kvæði voru samþykkir verkfalli.
Drekkum kaffi saman
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur og Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur ætla að halda sameiginlegt kaffisam-
sæti á Hótel Borg 1. maí. Félögin hafa ekki verið áberandi í sameiningarumræðunni. Rúnar Geirmundsson,
formaður Alþýðuflokksfélagsins og Gestur Ásólfsson, formaður Alþýðubandafélagsins, hafa handsalað
sameinginlega kaffisamsætið. Til stendur að Svavar Gestsson og Jón Baldvin Hannibalsson alþingismenn
verði sérsakir gestir á samkomunni þar sem þeir munu skiptast á skoðunum. Endanieg dagskrá er ekki
frágengin, en hún verður fjölbreytt. umhiuji - e.ói.
Óánægja foreldra með yfirstjórn Rimaskóla
„Það er mikil samstaða hjá okkur,"
sagði Pétur. Fyrirhugaðar breytingar
á lífeyrismálum hafa farið illa í
marga. „Ég sé ekki betur en stjóm-
völd ætli að halda áfram á sömu
braut, stuttbuxnaliðið á að fá sitt
fram. Það eru ekki áhyggjur af rétt-
indum einstaklingsins sem ræður
ferðinni, heldur að þessir fuglar fái
að ráðskast með spamað fólksins."
■ Gagnrýni á al-
mannavarnaræfing-
una Samvörö 97
Ekki heppi-
legt starfs-
umhverfi
- segir Garðar Mýrdal eðl-
isfræðingur: „Nató að aug-
lýsa ímynd sína.“
“Mér finnst óeðlilegt að þrátt fyrir
að það eigi að senda hingað tólf
hundruð dáta til að sinna heræfmgu,
þá verði það til þess að menn fari að
huga að almannavamaræfingu á Is-
landi,“ segir Garðar Mýrdal eðlis-
fræðingur í samtali við Alþýðublaðið
en hann á sæti í almannavamarnefnd
Reykjavíkurborg. „Það þarf að hafa
almannavamararæfmgu á Islandi og
það þarf að skapa henni heppilegt
starfsumhverfi. Þetta er ekki heppi-
legt starfsumhverfi."
Garðar gagnrýnir harðlega al-
mannavamaræfinguna, Samvörður
97, sem á að fara fram í júlí í sumar
og segir ekki við hæfi að blanda sam-
an hernaðarbrölti og almannavöm-
um. Gagnrýni Garðars birtist í grein
sem hann skrifaði í tímaritið Dag-
fara, málgagn herstöðvaandstæðinga
sem er nýkomið út.
“Afhverju er Nató að taka ffum-
kvæði sem á að liggja hjá Rauða
Krossinum eða Sameinuðu þjóðun-
um? Ég kemst að þeirri niðurstöðu
að Nató sé að nota þetta starfsum-
hverfi til að auglýsa ímynd sína á
óeðlilegan hátt. Nató er í tilvistar-
kreppu, það er að leita að hlutverki
og fer þama inn á vettvang sem hing-
að til hefur ekki verið talinn vett-
vangur hernaðarbandalags eða her-
manna. Að lokum, uppstillingin á æf-
ingunni í sumar þjónar ekki íslensk-
um hagsmunum, þessir hópar sem
koma hingað em ekki úr röðum
þeirra sem myndu koma okkur til að-
stoðar ef á þyrfti að halda. Þetta em
hópar úr Austur Evrópu sem verið er
að stilla saman við Natóherinn í ein-
hveijum æfmgum og það er verið að
nota fsland sem átyllu til þess. Þessir
aðilar koma heldur ekki færandi
hendi til landsins, kostnaður við þát-
töku er borinn af hverju sveitarfélagi
fyrir sig, og ef þau kalla út sína emb-
ættismenn, borga þau úr eigin vasa.
Það er spuming um hvort fólk á á
ekki rétt á skýrari útlistun á mark-
miðum æfingarinnar áður en lagt er
út í slílcan kostnað."
Kærðir til Fræðsluskrifstofu
Geröur Óskardóttir fræöslustjóri: Tökum við slíkum kvörtunum af fullri alvöru.
“Það kom hingað hópur foreldra
og ræddi þetta mál og eins hafa
nokkrir skrifað," segir Gerður Ósk-
arsdóttir fræðslustjóri en kvartanir
hafa borist til fræðsluskrifstofu
vegna yfrrstjómar Rimaskóla. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins hefur að-
stoðarskólastjórinn kært eitt foreldr-
anna fyrir meiðyrði. „Ég tek við slík-
um kvörtunum af fullri alvöra og
mínir starfsmenn era að skoða málið
frá báðum hliðum,“ segir Gerður. „í
þessu tilfelli vora foreldramir óá-
nægðir með framkomu stjómenda og
meðhöndlun á sínum bömum, skólar
verða að taka á agamálum og mis-
munandi aðferðum er beitt. Það er
engin niðurstaða komin í þessu máli
en slík mál koma alltaf öðra hvora
upp og það tekur tíma að afla nauð-
synlegra upplýsinga.“
“Við höfum reynt að gæta hlut-
leysis í þessu tiltekna máli og við
eram ofboðslega hrædd við nei-
kvæða umfjöllun en fólk í hverfmu
veit að íbúðaverðið gæti dottið nið-
ur,“ segir Kristín Óskarsdóttir for-
maður Foreldrafélags Rimaskóla.
„Það hefur þegar fallið og því er orð-
ið erfitt að selja. Þess vegna höfum
við reynt að halda allri umfjöllun í
lágmarki en það verður að segjast
eins og er að aðstaðan í skólanum
héma er ömurleg.
Það er stór hópur bama sem á í erf-
iðleikum innan skólans en fyrir þau
böm era engin úrræði, aðstöðu og
peningaleysi er stærsta vandamál
skólans. Þetta er nýtt hverfi en okkur
er afar þröngur stakkur sniðinn
“Það koma upp erfiðleikar og of-
beldi unglinga í öllum hverfum,“
segir Gerður Óskarsdóttir fræðslu-
stjóri. „Rimahverfi er nýtt hverfi og
mikil hreyfmg er á fólki og því skap-
ast öðravísi andrúmsloft. Skólinn er
enn í byggingu og það hefur vissu-
lega valdið ýmsum vandamálum í
skólastarfinu. Nú verður þriðja og
síðasta álman tekin í notkun í haust
og það ætti að geta orðið mikið til
bóta.“