Alþýðublaðið - 11.04.1997, Side 6

Alþýðublaðið - 11.04.1997, Side 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 TRYGGINGASTOFNUN Ci? RÍKISINS Átt þú rétt á uppbót á lífeyri? Samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins dagsettri 4. apríl 1997 er heimilt að greiða frekari uppbóttil þeirra lífeyrisþega sem hafa í heildartekj- ur að meðtöldum bótum almannatrygginga allt að kr. 80.000,00 á mánuði. Heimild þessi er afturvirk og gildir frá 1. janúar 1997. Þeir eili- og örorkulífeyrisþegar sem misst hafa uppbótina eða hafa verið lækkaðir í greiðslum vegna tekna og telja sig nú vera undir nýjum tekjumörkum, eru beðnir um að senda ný gögn tii lífeyristryggingadeildar, svo að hægt sé að meta rétt til greiðslna. Vegna mats á rétti til greiðslna þarf að skila inn gögnum sem snerta t.d. umönnunarkostnað, sjúkra- eða lyfja- kostnað og einnig húsaleigukvittanir, eigi lífeyrisþegi ekki rétt á húsaleigubótum. Þeir sem þegar hafa sent inn ný gögn og fengið synjun eru beðnir um að hafa samband við lífeyristryggingadeild og óska eftir endurskoðun. Hægt er að hringja í eftirtalin símanúmer þjónustsviðs vegna þessa: 560-4555, 560-4573, 560-4561. Kópavogsbúar- Aðalfundur Alþýðuflokksfélag Kópavogs heldur aðalfund sinn mánu- daginn 14. apríl kl. 20:30 í húsnæði félagsins Hamraborg 14a. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velunnarar félagsins velkomnir. Fh. stjórnar, Magnús Árni Magnússon formaður Alþýðuflokksmenn á Suðurlandi Fundur á Kaffi Lefolii á Eyrarbakka 12. apríl kl. 16:00 Ávörp flytja: Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri N.L.F.Í., Jón Baldvin Hannibalsson, alþingismaður, Magnús M. Norðdahl, formaður framkvæmdastjórnar Al- þýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands, Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður. Fundarstjóri: Steingrímur Ingvarsson. Hvetjum alla áhuga- og atvinnumenn um pólitík og velferð landsins til að mæta. Aiþýðuflokkurinn á Suðurlandi. Opinn fundur flokkstjórnar Alþýðu- flokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands verður haldinn þriðjudaginn 15. apríl kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar. Fólk er hvatt til að mæta og taka mér sér kunningja. Með kveðju, Formaður. Aðalfundur Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 21. apríl kl. 20:30 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Verzlunarmannaféiag Reykjavíkur Verkamannafélagíð Hlíf Sumarorlof Umsóknir um orlofs- dvöl Þeir félagsmenn Hlífar sem hug hafa á að dveljast í sum- arhúsum eða orlofsíbúðum félagsins næsta sumar eru beðnir að sækja um það fyrir 20. apríl nk. Hlíf á eitt sumarhús í Ölfusborgum og þrjú við Húsafell í Borgarfirði. Þá á félagið tvær orlofsíbúðir á Akureyri. Auk þess er verið að smíða sumarhús fyrir félagið, sem á að staðsetja austur í Skyggnisskógi. Fari allt samkvæmt áætlun mun bústaðurinn koma í gagnið í júní í sumar. Eins og undanfarin sumur er gert ráð fyrir vikudvöl. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Hlífar, Reykjavíkur- vegi 64. Skrifstofan er opin frá 13.00-16.30. Símar 555 0987 og 555 0944. Stjórn Hlífar> Menntamálaráðuneytið Laus staða Staða forstöðumanns Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála er laus til umsóknar. Forstöðumaður er ráð- inn til fimm ára í senn. Hann skal uppfylla þær hæfniskröf- ur sem gerðar eru til prófessora við Háskóia íslands, sbr. 5. gr. laga nr. 76/1993, um Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála. Hann skal hafa staðgóða þekkingu á rannsóknaraðferðum félagsvísinda og hafa sannað hæfni sína m.a. með rannsóknum á sviði uppeldis- og mennta- mála. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur um stöðu forstöðumanns skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1997. Umsóknir skuiu sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 9. apríl 1997. Kópavogsbúar, takið eftir! Vorhátíð Alþýðuflokksfélags Kópavogs er frestað til 25. þessa mánaðar. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Formaður Kvikmyndir | Jóhannesson Á milli messu og mjalta Háskólabíó: Hefðarfrúin ★★★★ Aðalleikendur: Nicole Kidman, John Malkovich, Barbara Hershey Verðlaunamynd sinni „The Piano“ fylgir Jane Campion eftir með kvik- myndun „A Portrait of a Lady“, frægustu skáldsögu Henry James og einnar bestu bandansku skáldsög- unnar á 19. öld. Lýsir hún hugsunum og tilfinningum ríkrar ungrar konu sem til Evrópu kemur frá Bandaríkj- unum og hyggst lifa eigin líft, eins og hugurinn beinir henni. A þeim árum, sjöunda áratugi síðustu aldar, var „milliskeið svonefnt á milli þeirra tíma sem kristilegar og klassískar hugmyndir mótuðu og hinna sem við tóku, hveiju nafni sem nefndir verða“, (að segir í Literary History of the United States, ritstýrt af R. E. Spiller, W. Thorp og fleirum). Kvikmyndin er fyrirmynd sinni trú. Unga konan, hreinlynd og vel að sér, víkur sér undan hnappheldu sem tveir eða þrír vænir og jafnvel vel fjáðir ungir menn bjóða henni, en verður suður á Italíu að bráð manni sem lítt sést fyrir. Hvers vegna fór svo? Frábærlega er myndin úr garði gerð: Samtöl, atburðarás, sviðsetn- ing, ljósmyndun, leikur. Hverfur Nicole Kidman þó einkum inn í hlut- Verk sitt, jafnvel þótt sér við hlið hafi Barböru Hershey og John Mal- kovich. Sem sagt, mynd fyrir vand- fýsna áhorfendur. Þó enn í orði kveðnu Regnboginn: Rómeó og Júlía ★★★1/2 Aðalleikendur: Leonardo DiCaprio, Claire Danes, Pete Pest- lethwaite Meðan Asbimingar, Haukdælir, Oddaverjar og Sturlungar bámst á banaspjót, elduðu Capulet og Montague grátt silfur í þessu leikriti Shakespeare. f kvikmyndinni er leik- ritinu búinn nýr staður og nýr tími: Verónuströnd í Kalifomíu (í stað Verína á Ítalíu) og áliðin 20. öld í stað 13. aldar. Vandinn er sá að ljóð- textinn fellur ekki að nýju tímasetn- ingunni. Þar eð hann býr að skáld- legri hugsun, ekki síður en ljóðrænni framsetningu, vaknar sú spuming hvort uppfærsla textans til nútíma- máls hefði ekki fallið betur að nýju staðsetningunni. Hvað um það, kvik- mynd þessi er vel heppnuð. Og kunn- ir leikarar em í hverju einu hlutverki. Úr sálarháska Kringlubíó: Eiginkona predikar- ans ★★1/2 Aðalleikendur: Denzel Was- hington, Whitney Houston, Court- ney Vance Á ferðinni er endurgerð kvik- myndarinnar frá 1947 „Biskupsfrúar- innar“ sem í léku Cary Grant, David Niven og Loretta Young. Prestur (Vance) reynir að beina afbrotaung- lingum inn á rétta braut, en tekst það ekki betur en svo að trú hans veikist. Og naumast hefur hann tíma til að sinna eiginkonu sinni (Whitney Hou- ston), kórstjóranum. Þá birtist vernd- arengill (Denzel Washington). Á söng og tónlist í myndinni er borið lof.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.