Alþýðublaðið - 23.04.1997, Page 1
uMnum
Miðvikudagur 23. apríl 1997 _Stofnað 1919 _51. tölublað - 78. árgangur
■ Ferðakostnaður bankastjóra ríkisbankanna er ævintýralegur, en mestur í Landsbankanum þar sem
ferðalög fárra manna kosta
Eina milljón á mánuði
- bankastjórar hafa allt að þremur milljón aukalega fyrir stjórnarsetu og fá bæði risnu og ferðakostnað greiddan. Makar fá
líka greitt fyrir að ferðast
Ferðakostnaður ríkisbankanna er
margfaldur á við ferðakostnað ráðu-
neyta. A þremur árum kostaði það
Landsbankann eina milljón á mánuði
að greiða ferðakostnað bankastjóra
og aðstoðarbankastjóra Landsbank-
ans. Seðlabankinn greiddi átta og
hálfa milljón á mánuði til þess sama
og Búnaðarbankinn fimm og hálfa
milljón. Á árunum 1994 til 1996
kostuðu ferðalög þessara manna
samtals 78.5 milljónir króna. Til
samanburðar má geta þess að á árinu
1995 greiddu sjö ráðuneyti um sjö
milljónir króna hvert í ferðakostnað.
Þessar upplýsingar koma fram í
svari Finns Ingólfssonar við fyrir-
spum Jóhönnu Sigurðardóttur.
Í öllum ríkisbönkunum fá banka-
stjórar greidda fulla dagpeninga og
að auki allan ferða- og gistikostnað.
Ekki nóg með það, heldur fá þeir
greidda risnu og símtöl. Landsbank-
inn gengur lengst allra bankanna, en
þar gilda sérstakar reglur fyrir maka
bankastjóranna, en makamir, sem
reyndar eru allir eiginkonur, fá
ókeypis fargjöld og gistingu og að
auki helming af dagpeningum ráð-
herra. í Búnaðarbankanum er ekki
greiddur ferðakostnaður maka en í
Seðlabankanum geta bankastjóramir
fengið tvisvar á ári greitt með sama
hætti og í Landsbankanum, það er
fyrir maka. Reyndar er undantekning
gerð, það er ef sérstaklega stendur á,
geta bankastjórar Seðlabankans
fengið oftar greitt fyrir maka.
Beinn kostnaður vegna ferðalaga
erlendis, vegna aðalbankastjóra
Landsbankans, var 2.2 milljónir fyrir
hvem þeirra þriggja; Björgvins Vil-
mundarsonar, Halldórs Guðbjamar-
sonar og Sverris Hermannssonar, á
árinu 1996. Ferðalög kollega þeirra í
Búnaðarbankanum kostuðu nokkm
minna, eða 1.300 þúsund á mann.
Þetta er ekki allt. Bankastjóramir
geta haft allt að þremur milljónum
aukalega á ári fyrir setu í stjómum og
nefndum á vegum bankanna. Miðað
við lægstu laun, eins og þau verða
samkvæmt nýgerðum kjarasamning-
um, em aukagreiðslur til bankastjór-
anna jafnvirði tekna verkamanns í
þrjú ár, það em aukagreiðslur sem
bætast við rúmlega sex milljóna
króna árslaun.
Þá em það bílamir, en bankastjór-
ar ríkisbankanna þurfa ekki að hafa
áhyggjur af rekstri bifreiða. Bank-
amir leggja þeim til bíla og greiða
allan rekstrarkostnað.
Þegar kemur að starfslokum fá
bankastjórarnir rífleg eftirlaun.
Hæstu lífeyrisgreiðslur Landsbanka
og Búnaðarbanka em 5.4 milljónir á
ári, þetta eru ekki samanlagt, heldur
greiðslur til einstaka manna. Seðla-
bankinn greiðir betur, því sá fyrrver-
andi bankastjóri sem mest fær, fær
rúmar sex milljónir, eða um 500 þús-
und á mánuði.
Að auki fá þeir úr almannatrygg-
ingakerfinu eins og aðrir.
Oþekkt smágos í
Bárðarbungu
Radarbylgjur frá gervitunglum finna sigketil í Vatna-
jökli, þar sem gaus líklega meðan stóð á gosinu í
Gjálp. Framhlaup í Sylgjujökli greinist líka.
Rannsóknir um gervitungl sýna að
samtímis gosinu í Gjálp, eldstöðvun-
um þar sem gaus í Vatnajökli síðast-
liðið haust, varð líklega smágos suð-
austan í Bárðarbungu. Einnig fund-
ust ömgg merki um að framhlaup
hafi verið í Sylgjujökli, sem er skrið-
jökull suðvestan í Vatnajökli.
Gossins varð ekki vart meðan á
því stóð. Vísbendingar um það komu
hinsvegar í ljós þegar beitt var nýrri
tækni, sem byggist á sendingu radar-
bylgna frá gervitunglum sem nema
síðan endurkast þeirra frá yfirborði
jarðar.
Með þessum hætti er hægt að
fylgjast með örhægum hreyfingum í
jarðskorpunni og ef mælt er með
skemmra millibili er einnig hægt að
greina hreyfmgar jökla, sem em
miklu meiri en í jarðskorpunni.
Þessar mælingar, þar sem notast
var við myndir tveggja gervitungla
frá evrópsku geimvísindastofnuninni
leiddu í ljós að sig hafði orðið í litl-
um katli undir jöklinum suðaustan í
Bárðarbungu, en skjálftavirknin í að-
draganda gossins í Vatnajökli var
einmitt langmest í Bárðarbungu. Tví-
menningamir sem unnu úr mæling-
unum, Sigurjón Jónsson hjá Land-
mælingum fslands og Helgi Bjöms-
son, jöklafræðingur, segja að þetta
bendi ótvírætt til þess að smágos hafi
orðið þama meðan gaus í eldstöðv-
unum í jöklinum.
Þess má geta, að sama rannsókn
sýndi, að framhlaup var í fullum
gangi allt árið 1996 í Sylgjujökli,
sem er skriðjökull í Vatnajökli. Þess
ber að geta, að framhlaupið og sigið
í Bárðarbungu em óskyldir atburðir.
■ Jafnaðarmenn
Vilja selja annan
ríkisbankann
“Við styðjum frumvarpið enda eru
í því breytingar sem em löngu tíma-
bærar og eru gerðar til að bankamir
sitji allir við sama borð og að auki er
það á stefnuskrá okkar flokks að sú
formbreyting eigi sér stað, svo það er
engin spuming, við styðjum þessar
breytingar," sagði Sighvatur Björg-
vinsson, alþingismaður og formaður
Alþýðuflokksins, um fmmvarp ríkis-
stjómarinnar um breytingu ríkisvið-
skiptabankanna í hlutafélög.
“Við eram ekki sáttir við allt í
frumvarpinu. Við viljum til dæmis að
taka eigi fram að einn bankastjóri
verði í hvomm banka og að hann
verði ábyrgur gagnvart eigendum
bankans. Við teljum, að við undir-
búninginn, eigi að gefa starfsmönn-
um aðild að undirbúningsnefndum
og síðar við stjóm bankans, til að
þeirra sjónarmið nái að koma fram.
En það er hægt með því að þeir fái
áheymarfulltrúa í bankaráðum. Við
viljum að settar verði skorður að einn
og sami aðili, eða skyldir aðilar, geti
eignast meira en fimm prósent svo
einn fjársterkur aðili geti ekki gleypt
bankana. Þá viljum við að annar
bankanna verði seldur, meðal annars
til að fá reynslu af slíkri sölu og til að
fá samanburð á rekstri þeirra, annars
vegar sem banka í ríkiseign og hins
vegar sem einkabanka," sagði Sig-
hvatur Björgvinsson formaður
Alþýðuflokksins.
Það er mikið að gera hjá starfsfólkinu hjá Lottóinu, enda setjum við íslendingar met um helgina,
þegar potturinn verður sexfaldur og fyrsti vinningur verður örugglega 30 til 35 milljónir króna, ef
ekki fjörutíu. Til að afgreiða alla þá seðla sem keyptir verða þarf hvorki meira né minna en 25 kfló-
metra af lottóseðlum. Hér er hresst og kátt starfsfólk hjá íslenskri getspá, en þar hefur verið mikið
að gera, eðlilega. Verði heppnin með þér.