Alþýðublaðið - 29.04.1997, Page 1
■ Garðar Björgvinsson trillusjómaður hótar stríði gegn fiskveiðistjórninni
Skilar sjö milljónum
- sem hann fékk úr Þróunarsjóði og ætlar að hefja veiðar, hvað sem tautar og raular
“Ég ætia að endurgreiða þær sjö
milljónir sem ég fékk úr Þróunar-
sjóði í desember og hefja veiðar,
þrátt fyrir að þeir telji mig ekki hafa
atvinnuleyfi. Það á að brjóta alla
smærri karla í þessu samfélagi, en
Garðar Björgvinsson er of sterkur
fyrir þá, hann verður ekki brotinn. Ég
er alinn upp á sfldarárunum á Raufar-
höfn og mun beita þá norðlenskum
aðferðum, ef með þarf. Það eina sem
þeir geta gert til að hefna sín er að
setja lög, en ég er tilbúinn í stríð,“
sagði Garðar Björgvinsson trillukarl,
sem ætlar að hefja veiðar á báti sín-
um, þrátt fyrir að hafa ekkert form-
legt leyfi til þess.
Garðar ætlar að gera fleira, hann
hefur þegar hafið vinnu að því að
vekja athygli erlendra náttúruvernd-
arsamtaka á því hvernig staðið verð-
ur að veiðum á sfld í sumar, það er að
við munum hefja veiðar áður en sfld-
in verður komin á það fitustig að af-
urðimar verði sem verðmætastar.
Hann ætlar einnig að vekja athygli
erlendra fjölmiðla á togveiðum Is-
lendinga í von um að neytendur snið-
gangi fisk, veiddan af togurum.
Garðar er baráttumaður þess að
tekin verði upp aflatoppur, það er að
hver bátur megi fiska tíu tonn á hvert
brúttótonn bátsins. Bátur Garðars er
5,7 tonn og samkvæmt kenningum
hans um aflatoppinn ættu 57 tonna
kvóti að koma til Garðars, en hann
ætlar að fiska 20 tonn, sama hvað
tautar og raular.
“Ég verð að framfleyta mér og
mínu bami. Það stoppar mig ekkert."
Garðar á í fleiri deilumálum við
hið opinbera, meðal annars vegna
þess að hann var handtekinn vegna
gmns um sprengjuhótun á Keflavík-
urflugvelli.
Hann er í máli við ríkið vegna
handtökunnar og mun krefjast 50
milljóna króna í skaðabætur.
■ Sjómannafélag
Reykjavíkur
Búnir að semja
Sjómannafélag Reykjavíkur hefur
samið við íslenskar kaupskipaútgerð-
ir. Samningar vom undirritaður að-
'faranótt mánudags. Sjómannafélagið
hafði fáum dögum áður fengið sam-
þykkta verkfallsheimild, en ekki var
búið að boða verkfall, en hefðu
samningar ekki tekist átti það að
hefjast 5. maí.
Samningamir vom undirritaður á
skrifstofu Eimskip í Sundahöfn, en
ekki hjá ríkissáttasemjara. Eftir er að
kynna samningana, en samkvæmt
heimildum blaðsins hækka lægstu
laun um allt 25 prósent á samnings-
tímanum, sem er til febrúar árið
2.000. Þetta er fyrstu samningar við
I sjómenn í þessari lotu.
■ BSRB þingi lauk í fyrradag
Hetjuleg barátta
- foreldra langtímaveikra barna, segir Ögmund-
ur Jónasson, og segir þau búa viö erfiðar að-
stæður og það verði að stórbæta réttindi þeirra.
“Eitt af áhersluatriðum þingsins
vom réttindamál langtímaveikra
bama,“ segir Ögmundur Jónasson en
BSRB þingi lauk í gær en það hafði
staðið síðan á fmuntudag.
Guðlaug María Bjamadóttir hélt
erindi á þinginu um stöðu langveikra
bama og aðstandendur þeirra. A
þinginu var svo lögð áhersla á að
réttindi þessa fólks yrðu stórbætt en
þau em mun lakari en á öðmm Norð-
urlöndum. „Þessi hópur er fremur fá-
mennur og það myndi síður en svo
setja þjóðfélagið á heljarþröm þótt
hann fengi úrlausn mála sinna,“ seg-
ir Ögmundur. „Siðferðilega gengur
þetta ástand hinsvegar ekki upp. Við
viljum að aðstandendum þessara
barna séu tryggð full laun og að al-
mannatryggingakerfið komi þar inn í
með verulegum stuðningi. Þeir eru
að há hetjulega baráttu við erfiðar
aðstæður og þjóðfélagið á að koma
til móts við þá eins og kostur er.“
Það vom tveir gestafyrirlesarar á
þinginu en eins og komið hefur fram
í fjölmiðlum var Ólafur Ólafsson
landlæknir annar þeirra ásamt Guð-
laugu Maríu. Hann flutti erindi um
stéttaskiptingu gagnvart heilbrigðis-
þjónustu og var með sláandi upplýs-
ingar um hvemig þeir efnaminni hafa
ekki ekki lengur efni á að sækja þá
þjónustu sem þeir þurfa inn í heil-
brigðiskerfið.
“Af stómm málum öðmm sem
komu til umfjöllunar var samþykkt
tillaga þar sem skorað er á öll samtök
launafólks í landinu að stilla betur
saman strengi sína á komandi ámm í
velferðar og skattamálum og al-
mennum réttindamálum," segir Ög-
mundur. „Að boðað verði til sameig-
inlegs þings þar sem menn taki
skipulagsform til rækilegrar endur-
skoðunar og endurmats og leiti leiða
til að bæta stöðu launafólks gagnvart
fjármagnsöflunum sem hafa fengið
að valta yfir allt nær óáreitt. Nú á að
snúa vöm í sókn.“
■ Fyrirtækið Telesat gagnrýnt. Starfsmaður
þess fer ekki í launakofa með hvað veldur
Við seldum sjó-
ræningjakort
“Þeir voru með svokölluð sjóræn-
ingjakort en em komnir með orginal-
kort og það er verið að skipta þeim út
og svo klipptist á orginalkortin. Það
var einhver misskilningur sem varð
til þess að klipptist á kortin," sagði
talsmaður Telesat, en fyrirtækið hef-
ur selt ólögleg kort fyrir gervihnatta-
móttkara.
“Ég veit lítið um þetta, ég byrjaði
að svara í símann fyrir þá í síðustu
viku og veit því lítil deili á þessu,“
sagði starfsmaðurinn.
Sem fyrr segir hefur fyrirtækið
Telesat um nokkum tíma flutt til
landsins og selt kort sem ætluð em í
móttökubúnað fyrir gervihnattasjón-
vörp, aðallega vegna stöðvarinnar
SKY. Viðskiptavinir fyrirtækisins,
sem Alþýðublaðið hefur rætt við,
segja samskipti sín við fyrirtækið
vera eina sorgarsögu.
Viðskiptavinirnir fullyrða að þeir
hafi fengið gölluð eða fölsuð kort frá
Telesat og að endingartími kortanna
sé í besta falli örfáar vikur. Fulltrúi
fyrirtækisins hefur nú staðfest að um
sjóræningjakort hafi verið að ræða.
Hvert kort kostar 39 þúsund krón-
ur og á að duga í eitt ár. Telesat býð-
ur upp á raðgreiðslur í gegnum VIS A
og vitað er að viðskiptavinir Telesat
hafa í hyggju að reyna að rifta rað-
greiðslusamningum.
Erfitt er að geta sér til um hversu
margir viðskiptavinir fyrirtækis
freista þess að fá ógilda samninga
við Telesat og eins er ekki vitað
hversu margir staðgreiddu hin
ómögulegu kort sem fyrirtækið seldi.
Orðsnillingar á Borginni
Jón Baldvin Hannibalsson og Svavar Gestsson verða aðalræðumenn í sameiginlegu 1. maí
kaffi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur og Alþýðubandalagsins f Reykjavík. Þeir munu vafalítið
stela senunni, enda er ætíð líf og fjör þar sem þessir snjöllu ræðumenn mætast.
Sjá bls. 6 og 7.