Alþýðublaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 10
10
ALÞY&UBLAÐ1Ð
FIMMTUDAGUR T. MAI 1997
Sameining af hinu góða
Halldór Björnsson formaður Dagsbrúnar: Þörf fyrir pólitíska samstöðu og sameiningu. Verkalýðs-
hreyfingin hefur þörf fyrir stjórnmálaflokka sem þora og vilja vera henni samstíga
-í verkalýðsbaráttu eru það gömul
sannindi sem fyrirrennarar okkar
þreyttust aldrei á að árétta , - að sam-
staða og sameining er af hinu góða,
segir Halldór Bjömsson formaður
Dagsbrúnar m.a. í viðtali við Al-
þýðublaðið.
Gamla góða Dagsbrún er komin í
nýtt húsnæði við Skipholt 50d. Hall-
dór Bjömsson formaður Dagsbrúnar
leiddi tíðindamann 1 .maíblaðsins um
hin nýju glæsilegu húsakynni og útli-
staði kosti þess. Hér er aðgengi mun
betra en við Lindargötuna, afgreiðsl-
an opnari og þægilegri bæði fyrir
dagsbrúnarmenn sem eiga erindi á
skrifstofur sínar sem og starfsfólkið á
skrifstofunum. I húsinu era einir 4
fundarsalir og félagsaðstaðan er öll
með ágætum.
Nýja húsnæðið er um 700 fermetr-
ar alls og í því era auk áðumefnds,
rúmgóðar skjalageymslur, aðstaða
fyrir félagsmiðstöð og hið glæsilega
bókasafn Dagsbrúnar.
Verkalýðsfélagatorfan
við Skipholt
Á torfunni þama í Skipholtinu er
að verða hverfi nokkurra verkalýðs-
félaga og sambanda, því í húsalengj-
unni era til húsa félög eins og Sókn,
Framsókn, Verkamannasambandið
og loks Dagsbrún sjálf. Við inntum
Halldór fyrst eftir því hvort þetta ná-
grenni hefði meira en táknræna
merkingu um samstöðu innan verka-
lýðshreyfingarinnar?
-Þegar við sameinuðum lífeyris-
sjóðina á sínum tíma kom upp sú
hugmynd að mynda eitt stórt felag
ófaglærðs verkafólks á höfuðborgar-
svæðinu, þ.e. allir sem stæðu utan
VR.
-Af þessu tilefni höfðum við sam-
band við flest félögin hér á höfuð-
borgarsvæðinu sem heyra undir
þessa skilgreiningu. I ljós kom að fé-
lögin vora ekki tilbúin til svo rótt-
tækrar uppstokkunar. Hlíf í Hafnar-
firði svaraði synjandi með bréfi og
flest önnur félög sýndu takmarkaðan
áhuga.
Stéttarfélag tuttugu
þúsunda
-Verkakvennafélagið Framsókn
hefur verið tilbúið til að styrkja
verkalýðshreyfinguna með þessum
hætti og við eram á fullu að vinna að
sameiningu félaganna um þessar
mundir. En það er ekkert einfalt mál
að sameina félög sem eiga kannski
80 til 90 ára sögu að baki, þetta er
mikið tilfinningamál og margbrotið
að sameina mörg félög í einu.
-Samt sem áður hafa nokkur þess-
Yinnuimðlun
Reykjavíkurborgar
Stjrkii
frá K(‘ykj;i\íknrl>»ií>
vegna sumarstarfa
skólanema
■ Sumarið 1997 mun Reykjavíkurborg líkt
og s.l. sumar styrkja fyrirtæki og stofnanir
í Reykjavík tii að ráða til sín skólanema,
einkum á aldrinum 17 og 18 ára. Einnig gefst
bændum kostur á að sækja um styrk.
■ Markmiðið með styrkveitingunum er að gefa
reykvískum skólanemum kost á meiri fjölbreytni
í vali á sumarvinnu, efla tengsl þeirra við
atvinnulífið og fjölga starfstilboðum fyrir
þennan aldurshóp.
■ Gert er ráð fyrir að styrkurinn verði 3/4
af heildarlaunakostnaði, þó aldrei hærri
en 14.000 kr. á viku og greiðist eftir á gegn
framvísun launaseða. Um er að ræða allt
að 100 störf. Miðað er við 7 klst. vinnudag og
reiknað með sjö til átta vikna ráðningartíma.
■ Skilyrði fyrir ofangreindum slyrk er að
atvinnurekendur sýni fram á að án tilkomu
hans hefði ekki verið ráðið í starfið.
Væntanlegur starfsmaður skal vera á skrá
hjá Vinnumiðlun skólafólks/Vinnumiðlun
Reykjavíkurborgar, sem hefur milligöngu
um ráðningarnar.
■ Styrkumsóknir sendist til Ragnheiðar
Kristiansen, Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar,
Engjateigi 11,105 Reykjavík, sími 588 2580,
fyrir 15. maí n.k. á eyðublöðum scm þar fást.
ara félaga verið með opnum huga í
þessari umræðu eins og t.d. Sókn. Ég
sé sjálfur fyrir mér stéttarfélag ófag-
lærðs verkafólks með um 20 þúsund
félagsmönnum. Slíkt félag væri betur
í stakk búið til að bæta kjörin en þau
félög sem við þekkjum í dag.
-Við eram að vinna með Framsókn
að sameiningu félaganna og vonumst
til að geta lokið sameiningarferlinu
árið 1998. Húsnæði okkar hér gæti
einmitt hjálpað til við hina
„praktisku. hlið sameiningarinnar,
því hér er gott rými, hátt til lofts og
vítt til veggja, með afburða góðri fé-
lagsaðstöðu. Önnur félög gætu sem
hægast bæst við í okkar sameiningar-
ferli.
Sundrung innan verka-
lýðshreyfingar
Halldór Bjömsson kveðst ekki
eins bjartsýnn á sameiningu verka-
lýðsfélaga með samtökum opinberra
starfsmanna, þó sjálfsagt væri að
hafa gott samband við BSRB. Hann
segist ekki betur sjá en þar séu félag
frekar að brjótast undan samstöðu og
þar sé töluverð sundrang. En er ekki
sams konar sundrang innan ASÍ?
Halldór Björnsson formaður
Dagsbrúnar. Hin faglega samstaða
þarf að styðjast við pólitiska sam-
stöðu og sameiningu þegar því er
að skipta.
y> ■ ,
■■ <*%*&■
Hús Dagsbrúnar viö Skipholt.