Alþýðublaðið - 01.05.1997, Síða 17

Alþýðublaðið - 01.05.1997, Síða 17
FIMMTUDAGUR 1. MAI 1997 ALÞYÐUBLAÐIÐ 17 Strekkingurinn milli komma og sumra krata var auðsær frá byrjun kosningabaráttunnar í ársbyrjun 1938. Stefán Jóhann var skotspónn kommana og margir telja yfirlýsingar hans um sjálfstæði Alþýðuflokksmanna á listanum hafa verið afdrifaríkar. um, þvert ofan í vilja meirihluta flokksmanna, fulltrúaráða og flokks- þings“. Fordæmi eða lærdómar? Sagan er vissulega lærdómsrík. Og vinstri menn á íslandi hafa margt af henni að læra. Stefna þeirra hefur löngum notið meirihlutafylgis meðal þjóðarinnar á þessari öld en þeir hafa ekki borið gæfu til að skipuleggja sig í einum stórum samtökum, heldur í tveimur til fimm flokkum og samtök- um. Það er einnig hægt að draga þá lærdóma af sameiningartilraunum að það sé ekki glóra í því að ganga til sameiningar fyrir þá sem eru í raun andvígir henni. Nú er það hins vegar svo að árum saman hefur mikill meirihluti stuðningsmanna allra vinstri flokkanna ítrekað lýst yfír þeirn vilja sínum að flokkamir og samtökin verði sameinuð. Margir spyrja því: Hversu lengi geta and- stæðingar þessa þráast við og er rétt- lætanlegt að fámennur hópur and- Ekki heillavænleg úrslit fyrir Alþýðuflokkinn. Kosningaúrslitin voru í samræmi við aðdrag- andann. Strax á fyrsta degi eftir kosningarnar var gamalkunnugt skítkast byrjað í málgögnum flokkanna. ■ Jóhanna Egilsdóttir leiðtogi verkakvenna í Reykjavík: Allir sökn- uðu Héðins „Hann var frammúrskarandi duglegur maður og skarp- greindur. Það var bráð- Jóhanna Egilsdóttir verkalýðsleið- skemmtilegt að vinna nteð 1°9>- Sá alltaf eftir Héðni. honum,, segir Jóhanna Egils- dóttir einn helsti verkalýðsleiðtogi Alþýðuflokksins á þessari öld í sam- talsbók sinni og Gylfa Gröndal, 99 ár. „Mér er ekki kunnugt um, hvort Héðni var nokkum tíma boðið að koma aftur í Alþýðuflokkinn. Ég held ekki. Of mikið hafði gengið á til þess að nokkur þyrði að nefna það. En ég hefði hiklaust samþykkt, að hann kæmi aftur. Já, það hefði ég gert. Það var sárt að sjá á eftir Héðni í klæmar á kommúnistum. Við máttum alls ekki missa hann úr verka- lýðshreyfmgunni." Alþýðuflokkurinn hélt fast í sína stefnu og það var aðeins vika í að Héðni yrði formlega vikið úr flokknum. stöðufólks ráði ferðinni? Flokkamir á vinstri vængnum hafa klofnað oftar en tölu verði á komið. Af þessari sögu sýnist manni því ein- sýnt að draga þá ályktun að jafnaðar- menn þurfi að stilla saman strengi sína og sameinast. Hins vegar er afar hæpið að líta á sameiningartilraunimar 1937-38 sem einhvers konar fordæmi fyrir sam- einingarferlið á okkar dögum, svo gjörólíkar em þær pólitísku aðstæður sem fyrir hendi em. Öflug listgrein - sigur- sæl alþýðupólitík Halldór Laxness skrifaði m.a. þá eftirfarandi: „Gagnrýni vinstriflokk- anna hvers á öðmm í þartilheyrandi skammatón og skætings, sem hér er siður, það er kannske mikil og fögur listgrein, en það er ekki vinstripóli- tík. Það er íhaldspólitík, - að vísu öfug, en sigursæl. Sigursæl al- þýðupólitík er falin í því, að vinstri flokkarnir hafi samkomulag um þau atriði, sem máli skifta í baráttunni við auðvaldið. „En þrátt fyrir það, þótt komm- únistar höfnuðu þessu síðasta sameiningartilboði Alþýðusam- bandsins hefur H.V. haldið áfram samningamakki sínu við þá, tekið upp harðvítuga baráttu innan Alþýðuflokksins fyrir því og þannig þverbrotið samþykktir síðasta Alþýðusambandsþings og gerst sekur um þá klofningsstarf- semi... Nú er svo komið að ekki annað sýnilegt, en að H.V. sé í þann veginn að slíta síðustu böndin, sem binda hann við Alþýðuflokkinn." Þannig segir í leiðara um Héðinn í Alþýðublaðinu í febrúarbyrjun 1938. Þrátt fyrir alla þá hörku sem var í málum á árunum 1937 og 38 voru margir menn einlæglega að berjast fyrir sameiningu. Lokaorðin eru fengin frá Halldóri Laxness í febrúar 1937: „Mín persónulega skoðun, sem reyndar er lítils virði, er sú, að full sameining þessarar flokka sé æski- leg, og beri að vinna að slíkri sam- einingu með öllum skynsamlegum meðölum." Þessi mynd var tekin þegar fyrsta kröfugangan var farin í Reykjavík, 1. mai, en það var árið 1923.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.