Alþýðublaðið - 01.05.1997, Qupperneq 20
20
ALP YtiUDLAtilU
rnvnvi i umuun i.ivimi i»»/
Þingflokkur jafnaðarmanna á Akureyri með
samræðu um auðlindir
Auðlindir íslands -
sameign allra eða
séreign fárra?
Veitingahúsið við Pollinn laugardag-
inn 3. maí kl. 14.00 -17.00.
Þingflokkur jafnaðarmanna býður Akureyr-
ingum og öðrum Norðlendingum til sam-
ræðu um auðlindir landsins, nýtingu þeirra
og hlutdeild almennings í þeim. Hér er um að
ræða létt samræðuform án ræðuhalda.
Dagskrá
Kl. 13.45 - 14.00
PKK-tríóið leikur þjóðlagatónlist.
KL. 14.00 - 14.05
Oktavía Jóhannesdóttir, formaður Jafnaðarmannafé-
lags Eyjafjarðar, býður gesti velkomna til samræð-
unnar.
Kl. 14.00 - 14.20
Rannveig Guðmundsdóttir, formaður þingflokks jafn-
aðarmanna, og Ágúst Einarsson, alþingismaður og
umræðustjóri, fjalla um fyrirliggjandi þingmál sem
snerta auðlindir íslands. Fyrirspurnir úr sal.
Auðlindir lands og hafs
Kl. 14.20 - 14.40
Ingólfur Bender, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins,
rökræðir við alþingismennina Gísla S. Einarsson og
Lúðvík Bergvinsson. Fyrirspurnir úr sal.
Kl. 14.40 - 15.00
Þorsteinn Sigurðsson, lektor við Háskólann á Akur-
eyri, svarar spurningum og viðhorfum Gísla og Lúð-
víks. Fyrirspurnir úr sal.
Mannauður og auðlindir hafsins
Kl. 15.00 - 15.20
Þorvaldur Gylfason, prófessor, ræðir um kenningar
sínar við alþingismennina Jón Baldvin Hannibalsson
og Svanfríði Jónasdóttur. Fyrirspurnir úr sal.
Kl. 15.20 - 15.40
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Útgerðarfélags Ak-
ureyringa, bregst við spurningum og viðhorfum Jóns
Baldvins og Svanfríðar. Fyrirspurnir úr sal.
Kl. 15.40 - 16.00
Kaffihlé. PKK-tríóið leikur íslensk þjóðlög.
Orkulindir og mannauður
Kl. 16.00 - 16.20
Ómar Ragnarsson, fréttamaður, spjallar við alþingis-
mennina Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur og Guð-
mund Árna Stefánsson. Fyrirspurnir úr sal.
Kl. 16.20 - 16.40
Þorkell Helgason, orkumálastjóri, ræðir við Ástu
Ragnheiði og Guðmund Árna. Fyrirspurnir úr sal.
Kl. 16.40 - 17.00
Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóðvaka,
og Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Félags
rækju- og hörpudiskaframleiðenda, draga sam-
an þræði við lok samræðunnar og kalla eftir
sjónarmiðum úr sal.
Umræðustjóri er Ágúst Einarsson alþingismaður.
Vill ný sam-
tök íslensks
launafólks
Haldið upp á aldarafmæli stéttarsamtaka prentara um þessar mundir. Nýtt stétt-
artal og saga bókagerðarmanna gefin út. Sæmundur Árnason formaður Félags
bókagerðarmanna leggur til að margvíslegt samstarf launafólks verið tekið upp.
Sögusafn verkalýðshreyfingar verði eflt, ný heildarsamtök alls launafólks
Ný heildarsamtök íslensks launa-
fólks, þar sem opinberir starfsmenn
stæðu við hlið ASÍ-félaga og sam-
taka sem nú eru utan heildarsamtak-
anna eru á óskalista Sæmundar Áma-
sonar formanns Félags bókagerðar-
manna, sem er hér tekinn tali í tilefni
af 1. maí en um þessar mundir er ver-
ið að halda upp á að öld er liðin frá
því elstu samtök verkalýðshreyfmg-
arinnar HIP, Hið íslenska prentarfé-
lag, voru stofnað. í tilefni af afmæl-
isári er margt á döfinni hjá bókagerð-
armönnum.
Það er vor í lofti og Sæmundur er
farinn að huga að sumarfríum bóka-
gerðarmanna og við byijuðum spjall-
ið með hækkandi sól:
„Orlofsmálin eru til stöðugrar end-
urskoðunar. Við erum alltaf að reyna
eitthvað nýtt, nú erum við til dæmis
búnir að leigja bændagistingu á Hér-
aði í sumarog verður spennandi að
sjá hvemig viðtökumar verða. Okkur
finnst skynsamlegra að reyna eitt-
hverjar nýjungar í þessum dúmum
heldur en fara út í fjárfestingar.
Annars er helsta sumarhúsabyggð
bókagerðarmanna í Miðdal þar sem
við eigum fimm hús. Einnig emm
við með hús í Ölfusborgum, Illuga-
stöðum í Fnjóskadal og á Akureyri.
Þá reyndum við þá nýbreytni í fyrra
að skipta við Verkaýðsfélag Húsa-
víkur á bústöðum, þannig að þeir
Húsvíkingar fengu afnot af einu
Miðdalahúsa meðan við fengum af-
not af húsi við Hallbjamastaði þar
nyrðra. Báðir staðir voru með 100%
nýtingu á orlofstímanum."
Elsta og yngsta stétt-
arfélagið
Bókagerðmenn voru einna fyrstir
í landinu til að koma skipulagi ú
ste'ttaife'lag sitt?
„Það er óhætt að segja að við
byggjum á gamalli hefð hér. Hið ís-
lenska prentarafélag var stofnað árið
1897 en Félag bókagerðarmanna var
stofnað árið 1980. Við emm því bæði
eitt yngsta og elsta stéttarfélag á
landinu.
Eru samtök bókagerðarmanna
fróbrugðin öðrum stéttarfélögum?
-Já að mörgu leyti, t.d. að því er
tekur til iðngreina og ófaglærðra.
Þegar FBM, Félag bókagerðarmanna
var stofnað vora sérgreinafélögin
þrjú fyrir iðnmenntaða; Grafiska
sveinafélagið, Bókbindarafélag Is-
lands og HIP. Við voram þannig séð
fyrstir til að sameina iðngreinar og
opna samtök okkar fyrir ófaglærðu
fólki. Félagið er fyrir alla sem starfa
við bóka- og blaðagerð.
/ gamla daga var talað um að
bókagerðarmenn vceru menntaðri en
aðrar stéttir. Heldurðu að eimi eftir
afþví enn?
„Nei, við erum á sama báti og
flestir aðrir í alþýðusamtökunum.
Það var stundum sagt í gamla daga
að þeir sem ætluðu að ganga mennta-
veginn en hefðu ekki efni á að fara í
menntaskóla og háskóla færa í prent-
iðnaðinn í staðinn. Þetta er löngu lið-
in tíð.
Menning á aldar-
amælinu
En það fylgdi stéttinni mikill
menningarlegur metnaður, hann er
ennfyrir hendi?
„Já vissulega höldum við því til
streitu. Ef til vill vitnar okkar metn-
aðarfulla útgáfa í tilefni af aldaraf-
mælinu einmitt um það. Þriggja
binda stórvirki, saga og stéttartal
bókagerðarmanna var að koma út hjá
bókaforlaginu Þjóðsögu. Verkið er
tvíþætt, saga samtaka bókagerðar-
manna í heila öld og stéttartal sem
spannar meira en 400 ár.
í bókinni fjallar söguritarinn Ingi
Rúnar Eðvarðsson um stofnun stétt-
arfélaga bókagerðarmanna, kjara-
baráttu og helstu áfanga í 100 ára
sögu skipulagðrar félagsstarfsemi
þeirra. Að hinu leytinu til er stéttar-
tal bókagerðarmanna í tveimur bind-
um. Gífurleg fjölgun hefur verið í
stéttinni á síðustu áram og Bóka-
gerðarmenn hinir nýju koma nú út í
tveimur veglegum bindum. Þor-
steinn Jónsson ættfræðingur hefur
haft yfiramsjón með stéttartalinu.
Það samanstendur af einum 2200
æviskrám þar sem tugþúsundir ís-
lendinga koma við sögu. Það spann-
ar frá upphafi prentaldar á íslandi,
16. öld og til okkar daga. Það byrjar
á Jóni Matthíassyni hinum sænska og
nær til allra lærðra prentara á fýrri
öldum til dagsins í dag. Allir félagar
í félaginu í dag era sömuleiðis í stétt-
artalinu. Auðvitað era samtímamenn
okkar fyrirferðarmestir í stéttartalinu
enda hefur fjölgunin í stéttinni verið
gífurleg síðustu 20 árin.
Hið glæsilega verk ber einnig
vitni um faglegan metnað og vand-
virkni íslenskra bókagerðarmanna,
það er að öllu leyti unnið af félögum
í Félagi bókagerðarmanna.
Geturðu gert greinfyrir fleiru sem
gert hefur verið ítilefni af afmœlinu?
„Við héldum glæsilega hátíð með
menningardagskrá eins og kunnugt
er í Borgarleikhúsinu. Þá stendur nú
yfir sýning í Ráðhúsinu á þróun
prentlistar í landinu. Fleira er gert á
afmælisári t.d. nefni ég afmælis-
merkið, frímerkið sem kemur út í
september næstkomandi í tilefiii af
100 ára sögu bókagerðarmanna. Enn
Stundum var talað um að prentarar væru eins og „yfirstétt, innan verka-
lýðshreyfingarinnar svo öflugir þóttu þeir. Myndin er af Alþýðublaðinu
þegar haldið var upp á fertugsafmæli HÍP, Hins íslenska prentarafélags.