Alþýðublaðið - 01.05.1997, Síða 22
22
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1997
...................................‘..............................
QMISSANDI I
SUMARBÚSTAÐINN
Allir vilja geta notið þess besta í mat og drykk, hvert sem leiðin liggur.
Pess vegna eru G-vörunnar ómissandi í sumarbústaðinn.
“mr
MJÓLKURSAMSALAN
Gerir góða ferð enn betri. Pú notar
hann eins og annan eðalrjóma. óþeyttan
út é berin, þeyttan með kökunni og
ísnum eða sem leynivopn í súpugerðinni.
G segir til um framleiðslu-
aðferðina sem einkennir
G-vörur. Pá er varan
snögghituð við hátt
hitastig. Með því móti
verður hún geymsluþolnari
og heldur jafnframt
ferskleika sínum og
næringargildi. G-vörur þarf
ekki að geyma í kæli.
G-RJÓMI
G-MJÓLK
Góð mjólk sem aldrei
bregst - ísköld og
svalandi eftir kælingu
í næsta fjallalæk!
Og svo er G-mjólkin
líka frábær í
matargerð.
KAFFIRJÖMI
Tilvalinn í kaffið og
þrælgóður í súpur og
sósur. Sömuleiðis
vinsæll út á skyrið og
grautinn.
Fiskverkunarkonur að vinna
hörpudisk árið 1980. Myndin er
tekin hjá íslenskum matvælum í
Hafnarfirði.
Alþýðu-
vinur-
inn og
frelsið
Árið 1914 kom út blað sem
nefndist Alþýðuvinurinn - og
undirtitill: Alþýðublað - Bind-
indisblað. Alþýðuvinurinn var
gefinn út í einum átta tölublöð-
um í Winnipeg í Kanada.
Islendingamir í Kanada voru
vakandi og virkir í þjóðfélags-
umræðu af ýmsu tagi fyrstu
áratugina. í Alþýðuvininum
var margs konar hollt og gott
efni; hugvekjur, ljóð og sögur.
Margs konar stuttir pistlar. I
einum þeirra um frelsið segir
m.a.:
Hvað er frelsi án þekkingar
og án kærleika? Það er hinn
hættulegasti óvinur sem til er.
Hið sanna frelsi er í því fólg-
ið maðurinn á kost á að njóta
síns eigin réttar, ein lengi og
hann sviftir ekki aðra rétti
þerra með því.
Hið sanna frelsi leggur eng-
ar torfærur á leið annarra. Það
aftrar engum frá því að gera
skyuldur sínar og njóta réttinda
sinna.
Hið sanna frelsi er ákveðið
og lögum háð; falskt frelsi er
óákveðið og laust við skuld-
bindingar.
frelsi er heimild til að gera
það ssem er í samræmi við það
lögmál sem manninum er dýr-
mætast og velferð hans er mest
komin undir.
Þó einhverjum takist að
ffamkvæmda eitthvað sem er
gagnstætt því, ölast hann ekki
frelsi við það, heldur sfitir það
hann miklu oftar frelsi sínu.
Þar sem viljinn til að gera
það sem er rétt og gott er eki
til, þar er ekkert frelsi til.
Með öðrum orðum: Hreinn
kærleikur og hlýðni við það
sem er gott, er hluda aflið sem
fullkomið frelsi heimsins hvíl-
ir á.