Alþýðublaðið - 06.05.1997, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ1997
Menntamálaráðuneytið
Styrkur til háskóla-
náms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til
rannsóknanáms í háskóla í Japan á árinu 1998. Ætlast er
til að styrkþegi hafi lokið háskólaprófi og sé yngri en 35
ára miðað við 1. apríl 1998. Þar sem kennsla við japanska
háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi
leggi stund á japanska tungu a.m.k. um sex mánaða
skeið.
Umsóknum um styrkinn, ásamt staðfestum afritum próf-
skírteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 10. júní n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
r
LANDSPITALINN
...íþágu mannúðar og vísinda...
Sérfræðingar í barnageðlækningum
Tvær stöður sérfræðinga á barna- og unglingageðdeild
Landspítalans eru lausar til umsóknar. Önnur staðan er til
frambúðar, hin er afleysingastaða til eins árs. Fáist ekki
sérfræðingur í barnageðlækningum í afleysingastöðuna
kemur til greina að veita hana sérfræðingi í barna-, geð-
eða heimilislækningum.
Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til 1. júní nk. og
veitast þær frá 1. ágúst nk.
Umsóknir, með upplýsingum um nám, fyrri störf og
reynslu af kennslu og vísindavinnu sendist á eyðublöðum
stöðunefndar lækna til Valgerðar Baldursdóttur, yfirlækn-
is, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Mat stöðu-
nefndar byggist á innsendum umsóknargögnum.
Deildarlæknir (reyndur aðstoðarlæknir)
óskast á barna- og unglingageðdeild Landspítalans frá 1.
júlí nk. Um er að ræða fullt starf sem ráðið er í til eins árs
með möguleika á framlengingu.
Umsóknir, með upplýsingum um nám og fyrri störf, send-
ist á eyðublöðum stöðunefndar lækna til Valgerðar Bald-
ursdóttur, yfirlæknis, sem jafnframt veitir nánari upplýsing-
ar. Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknar-
gögnum.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á öldrunarmatsdeild (legudeild 10 rúm) sem tekur
til starfa 1. júní nk. á Landspítalanum í húsnæði á 11-B.
Deildin er til viðbótar við öldrunarteymi sem tók til starfa á
Landspítalanum 1. apríl 1996 og vinnur nú í nánum
tengslum við aðrar deildir á Landspítala og öldrunarþjón-
ustu sjúkrahúsanna á Landakoti. Upplýsingar veitir Berg-
dís Krisjánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 560
1000. Umsóknir berist til skrifstofu hjúkrunarforstjóra fyrir
Sumarafleysingar
Hjúkrunarfræðingar og 3. árs nemar
óskast á lungnadeild Vífilsstaðaspítala.
Nánari upplýsingar veitir Stella Hrafnkelsdóttir, deildar-
stjóri, í síma 560 2860.
Einnig er óskað eftir hjúkrunarfræðingum á ýmsar aðrar
deildir Landspítalans.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma
560 1000.
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala,
Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
V_______________________________________________________/
Ultima Thule?
Bíóborgin/Regnboginn: Smilla’s
Sense of Snow ★★★
Aðalleikendur: Julia Ormond,
Gabriel Byrne, Richard Harris
Voru kjarnorkuvopn til taks í
Thule á Grænlandi? Arum saman
voru gagnstæð svör gefin við þeirri
spumingu. Þau kunna að verakveikj-
an að þessari sögu Peter Höeg, sem
miklum vinsældum hefur náð, þótt af
öðrum toga sé. í Grænlandsjökli
fmnst loftsteinn með lífrænum efni-
við. (Var það ekki boðskapur eins
mektarmanna Almenna bókafélags-
ins, ensks prófessors, að líf hafi
borist til jarðar utan úr geimnum?)
Við athugun loftsteinsins á Græn-
landi varð sprenging að bana föður
lítils drengs fyrir augum hans. Eins
konar ormur, háskalegur mjög, mun
hafa í drenginn borist úr loftsteinin-
um. Og fylgjast yfirvöld með
drengnum. Drengurinn fellur síðan
sér til bana fram af húsþaki. Datt
hann eða var honum hrint? Því reyn-
ir söguhetjan, stúlkan, að svara. Töku
myndarinnar stýrði Billie August.
Hressilegur
sænskur
reyfari
Regnboginn: Veiðimenn ★★★
Til skálka þessarar myndar mun
Brigitte Bardot ekki brosa. Þeir fella
vemduð hreindýr. Til þorps í Norður-
Svíþjóð snýr aftur lögreglumaður,
Kvikmyndir |
sem hefur starfað í lögreglunni í
Stokkhólmi. I litlu þorpi eru flestir
skyldir eða tengdir eða svo gott sem.
Og eykur það á vanda lögreglu-
mannsins. Að krókaleiðum tekst
honum þó að koma lögum yfir veiði-
þjófana. Svo haganíega er þessi
söguþráður unn'inn, að rrtinnir á sög-
ur Georges Simenon, Maigret-sögur
frá fjórða áratugnum.
■ Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Kærum hafnað
Félagsmálaráðuneytið hefur úr-
skurðað vegna tveggja kæra sem
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði, þau Magnús Gunnars-
son og Valgerður Sigurðardóttir,
sendu ráðuneytinu.
Önnur kæran var vegna kosninga í
bæjarstjóm um hverjir skuli skipa
hafnarstjóm og skólanefnd. Hin kæra
var vegna meints vanhæfis Ellerts
Borgar Þorvaldssonar, forseta bæjar-
stjómar, í ákveðnu máli.
Ráðuneytið komst að þeirri niður-
stöðu að ekki væri ástæða til að hafa
afskipti af afgreiðslu bæjarstjómar í
hvomgu málanna.
■ Kratar á ísafirði
Búnir að
selja
Krata-
höllina
Alþýðuflokkurinn á ísafirði hefur
selt þrjár efstu hæðir Kratahallarinn-
ar við Silfurtorg. Ein hæðanna, sú
þriðja, var seld að hluta til í maka-
skiptum og á móti fékk flokkurinn
húsnæði á jarðhæð, við hliðina á rík-
inu og þangað verður aðstaða flokks-
ins flutt.
Fyrsta hæð Kratahallarinnar var
ekki seld og verður ekki nema gott
tilboð berist.
Kratahöllin var of dýrt húsnæði
fyrir flokkinn, enda upp á fjórar hæð-
ir, en afborganir lána og viðhald kall-
aði á talsvert fjármagn.
■ Norðurál í Hvalfirði
ístak
steypir
tyrir 600
milljónir
Norðurál hefur gert samning um
að verkatakafyrirtækið ístak annist
fyrstu steypuframkvæmdir við bygg-
ingu fyrirhugaðs álvers fyrirtækisins.
Um er að ræða 17 þúsund rúmmetra
af steinsteypu. Samningurinn er upp
á um 600 milljónir króna. Verklok
era áætluð í lok þessa árs.
Beðið er eftir að Alþingi samþykki
starfsleyfi fyrir álverið.
^ g jj Borgarskipulag Reykjavíkur
Skúlagata 21 og 42
og Hverfisgata 105
í samræmi við 17. og 18. gr. skipulagslaga erauglýst
kynning á breyttu deiliskipulagi á lóðum við Skúla-
götu 21 og 42 og Hverfisgötu 105.
Kynningin ferfram í sal Borgarskipulags og Bygging-
arfulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9.00 - 16.00
virka daga og stendur til 18. júní 1997.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega
til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en mið-
vikudaginn 2. júlí 1997.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
ÚTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í steyptar
gangstéttar og ræktun víðsvegar um borgina. Verkið nefnist: Steyptar
gangstéttar og ræktun.
Helstu magntölur eru:
Steyptar gangstéttar: uþb. 12.400 m2
Ræktun: uþb. 6.000 m!
Síðasti skilad. verksins er 15. sept. 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík, frá
þriðjud. 6. maí, gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 14. maí, kl. 15. gat7i/7
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í ut-
anhússfrágang og lóð við Sundlaug í Grafarvogi, Dalhúsum 2. Um er
að ræða einangrun og klæðningu útveggja, uppbyggingu þaks á steypta
plötu og klæðningu (rúml. 1400 m2), ísetningu glugga og glerjun. Þá er
einnig um að ræða yfirborðsfrágang á lóð, laugarsvæði og bílastæði.
Verktími er frá 1. ágúst 1997 til 1. nóv. 1997 fyrir utanhússfrágang og 1.
mars 1998 fyrir lóðarfrágang.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 6. maí nk. gegn 5.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 22. maí 1997, kl. 11 á sama stað. bgd 73/7
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16