Alþýðublaðið - 06.05.1997, Page 8

Alþýðublaðið - 06.05.1997, Page 8
MMWBIMD Þriöjudagur 6. maí 1997 56. tölublað - 78. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ■ Söguleg ræða Svavars Gestssonar á sameiginlegum fundi A-fiokka Svavar vfll sameiningu A-flokkanna Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins segir að liðsmenn A- fiokkanna og aðrir á vinstri vængnum eigi að vinna saman að því að ná meirihluta í næstu þingkosningum. Hann telur að gagnkvæm virðing fyrir sögu og viðhorfum flokkanna sé lykilatriði. “Ég vil að við setjum markið svo hátt að við sem hér höldum fund í dag vinnum, ásamt endumýjaðri verka- lýðshreyfmgunni, hreinan meirihluta í næstu kosningum. Ég vil að við göng- um saman til næstu kosninga, staðráð- in í að byggja saman upp nýtt ísland á nýrri öld,“ sagði Svavar Gestsson, þingmaður Alþýðubandalagsins í ræðu sem hann hélt á sameiginlegri baráttuhátíð Alþýðuflokksins og Al- þýðubandalagsins sem haldin var fyrsta maí á Hótel Borg. Ræða Svavars var söguleg að því leyti, að hann tók í máli sínu mjög af- dráttarlausa afstöðu með því, að freist- að verði að stórefla samvinnu jafnað- armanna í vinstri flokkunum og utan þeirra líka. Hann vakti athygli á því, að innan beggja flokkanna væri mikill vilji til að vinna saman, og sameinast: „í báðum félögunum er vilji til sam- fylkingar og samvinnu; sameiningar ef vel gengur. Þið takið eftir því, að ég hef aftur og aftur í þessari ræðu talað um „sameiningu." Ég tala um samein- ingu allra.“ Svavar sagði, að saga sundrungar væri orðin bæði flokkun- um og íslenskri alþýðu dýr,og sagði að undir engum kringumstæðum mættu menn „skemmta skrattanum, það er íhaldinu, með því að nota tækifærið til að sundrast þegar við þykjumst vera að sameinast." Hér átti Svavar við ýmsar flokksstofnanir á vinstri vængnum, sem urðu til undir nafni sameiningar en leiddu að mati hans í raun til sundrungar. Svavar sagði að Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið hefði hvort um sig hefðir og sögu, sem yrði að virða. Gagnkvæm virðing væri und- irstaða árangurs í viðleitni til samein- ingar. Árangurinn væri hinsvegar prófsteinn á flokkana og vinstri vænginn: „Við erum í miðju prófi. Ég vil að við setjum markið svo hátt Scénic , , ÁRMÚLA13, SÍMI: 568 1200 JlMSk BEINN SÍMI 553 1236 að við, sem hér höldum fund í dag, vinnum ásamt endumýjaðri verka- lýðshreyftngu hreinan meirihluta í næstu alþingiskosningum. „Allir þurfa að vera með, markmiðið væri sameining," sagði Svavar, en kaflar úr ræðu hans birtast á morgun í Al- þýðublaðinu. STEFANSBLOM SKIPHOLTI 50 B SIMI 561 0771 Heilsum sumri, hreinsum lóöina dagana 3.-11. mai. Nú er vetur úr bæ og ruslið úr görðunum á að fara sömu leið. Tökum höndum saman með hækkandi sól og fegrum lóðirnar okkar fyrir sumarið. Sérstakir hreinsunardagar eru frá 3. til 11. maí. Ruslapokar verða afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra. Næstu daga eftir hreinsunardagana fara borgarstarfsmenn um hverfin og hirða fulla poka. Eftir það er aðeins hægt að losa sig við garðaúrgang og annað rusl sem ekki kemst í ruslafötuna í endurvinnslustöðvum Sorpu. Endurvinnslustöðvar Sorpu eru opnar alla daga frá kl. 12:30 til 19:30. NEndurvinnslustöðvar eru á fjórum stöðum: Við Bæjarflöt austan Gufunesvegar. Við Jafnasel í Breiðholti. y I Við Ánanaust gegnt Mýrargötu. Við Sævarhöfða gegnt malbikunarstöðinni. Stöðvarnar við Ánanaust og Bæjarflöt eru opnar alla virka daga frá kl. 8:00 til 19:30. Skorað er á forráðamenn fyrirtækja að taka til á lóðum sínum. Fyrir stóra og fyrirferðarmikla hluti er bent á Geymslusvæðið í Hafnarfirði, sem hreinsunardeild gatnamálastjóra leigir út. Við tökum pokann þinn Borgarstjórinn í Reykjavík - hreinsunardeild gatnamálastjóra

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.