Alþýðublaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 1
■ Orkubú Vestfjarða leitar eftir skaðabótum frá Vegagerðinni:
Vatnsskortur í Bolungarvík
- í virkjun eftir að vatnið tók að streyma í Vestfjarðagöngum
Orkubú Vestfjarða og Vegagerð
ríkisins eiga f samningaviðræðum,
þar sem Orkubúið leitar eftir skaða-
bótum vegna vatnsskorts sem varð
eftir að vatnsæð opnaðist við gerð
Vestfjarðagangna. Vatnsskorturinn
varð í lítilli virkjun í Reiðfjalli í Bol-
ungarvík, og hefur hann orðið til þess
að á ári afkastar virkjunin rétt um
helmingi þess sem áður var.
■ Jónas Haraldsson,
lögfræðingur hjá LÍU
Engin áhrif
Jónas Haraldsson, lögfræðingur
LÍÚ, segir að niðurstaða Félags-
dóms, í tonn á móti tonni málinu, sé
loðin og að dómuririn eigi ekki að
hafa áhrif til breytinga, það er ef
menn standa rétt að málum, eins og
Jónas orðar það í Útvegi, blaði LÍÚ.
Sem kunnugt er féll dómur Félags-
dóms á þá leið að útgerð mátti ekki
fá hluta fískverðs greiddan í aflahlut-
deildum, án þess að hluti þeirrar
greiðslu kæmi til skipta, rétt eins og
aðrar greiðslur fyrir afla.
“Það er ljóst að lögfræðingurinn er
að skora á okkur að hundsa dóminn.
Þetta snýst um einhverja útgerðar-
menn sem vilja hafa rangt við, en ég
fullyrði að svona vinnubrögð, eins
og er verið að ætlast til af okkur sam-
kvæmt því sem Jónas segir, eru frá-
leitt öllum útgerðarmönnum að
skapi,“ sagði útgerðarmaður í sam-
tali við blaðið.
í kjarasamningum sjómanna segir
að útgerð skuli tryggja hæsta gang-
verð á hverjum tíma. Jónas Haralds-
son gerir gangverð og hæsta gang-
verð að umtalsefni í blaði útgerðar-
mannanna. Hann segir orðrétt:
„Hæsta gangverð þýðir ekki endilega
hæsta fiskverð, sem þekkist á land-
inu, hvað svo sem hugtakið hæsta
gangverð þýðir yfir höfuð.“
Því oftar sem þú drekkur, þeim
mun hættuminni ertu í umferðinni,
mátti lesa úr niðurstöðu dómarafull-
trúans Ame Heiestad í Lyngdal þeg-
ar hann kvað upp dóm vegna öku-
manns, sem reyndist aka á fullmörg-
um prómillum fyrir smekk norska
dómskerfisins. Dómurinn hefur vak-
ið uppnám í Noregi, og jafnt dómar-
ar sem fulltrúar bindindismanna hafa
fordæmt hann.
Málavextir voru þeir, að 44ra ára
gamall ökumaður frá Lista var tekinn
í sjötta sinn fyrir að aka drukkinn.
Mæling lögreglulækna sýndi að í
“Það er engin hasar í þessu, en það
er verið að skoða málið. Vegagerðin
hefur ekki samþykkt skaðabótaá-
byrgð. Þetta tengist vegamálum þar
sem þetta gerðist vegna borunarinnar
í göngunum. Það hefur dregið úr lek-
anum í göngunum og þetta virðist
vera að leita jafnvægis, en hvemig
þetta, endar veit ég ekki. Það var ný-
búið að endurnýja virkjunina fyrir
blóði hans vom 2,10 prómill, og
hann var dæmdur í 90 daga óskil-
orðsbundið fangelsi og sekt sem nam
hundrað þúsund krónum íslenskum,
segir í norska blaðinu VG.
í dómsorðinu sagði að refsingin
kynni að hafa orðið þyngri ef hinn
ákærði hefði ekki jafn mikla reynslu
af því að aka drukkinn og raun ber
vitni, en aftan við þetta hnýtti svo
dómsfulltrúinn þeirri staðhæfingu,
að samt sem áður hefðu þessi mild-
andi málsatvik ekki haft bein áhrif
við ákvörðun refsingarinnar. Þar
sagði einnig efnislega, að rétturinn
um 30 milljónir króna og þetta er allt
í skoðun," sagði Kristján Haraldsson
orkubússtjóri.
Þýðir vatnsskorturinn að virkjunin
sé ykkur nánast gagnslaus?
“Þetta þýðir ekki að virkjunin sé
einskis nýt, hún gagnast okkur ennþá
í hlákum og leysingum. Hún er í
notkun allt árið en framleiðir minna
en hún gerði,“ sagði Kristján Har-
hafi meðal annars hliðsjón af þeirri
staðreynd, að þar sem hinn ákærði sé
vanur að hafa mikið áfengismagn í
blóði sínu, þá sé hann ekki eins hætu-
legur í umferðinni og aðrir, sem séu
því óvanir.
Þetta er rökrétt ályktun sé einung-
is horft á málið frá sjónarhóli um-
ferðaröryggis, sagði dómarafulltrú-
inn. Fyrir réttinum bar hinn ákærði
að honum hefði ekki fundist hann
vera neitt sérlega fullur, og engin
hætta skapaðist af akstri hans. Þessi
jákvæðu málsatvik hljóta að koma
honum til góða, sagði Ame Heiestad,
aldsson orkubússtjóri á ísafirði í
samtali við Alþýðublaðið.
Áður ífamleiddi virkjunin allt að
400 KW, en nú afkastar hún aðeins
50 til 60 KW þegar minnst lætur.
Þegar litið er til ársins má segja að
rétt rúmlega helmingur þess sem
áður fékkst úr virkjuninni skili sér
nú.
þegar hann varði niðurstöðuna fyrir
VG.
Geir Skivik, lögregluforingi í um-
dæmi Vestur Agða, sagði að dóms-
orðið væri í andstöðu við afstöðu
Hæstaréttar, sem hefði með dómum
sínum þyngt refsingar yfir þeim, sem
drykkju mikið áfengi, þyldu það vel,
og ækju ítrekað fullir.
Bittinú, sagði Petter Gurkevík, hjá
Bindindisfélagi ökumanna, þegar
honum voru færð tíðindin. „Eiga
frægar byttur að fá drykkjuþol sitt og
endalaust fyllirí metið til mildunar
þegar þeir eru teknir fullir?"
I ■ Pétur Sigurðsson,
formaður Alþýðu-
sambands Vestfjarða
Vinsamlegt
vopnahlé
“Við verðum að segja að það sé
von í að við höfum færst nær hvor
öðrum um helgina, þó það vigti
kannski ekki mjög þungt. Menn eru
allavega ekki gráir fyrir jámum. Það
er vinsamlegt vopnahlé og menn eru
að skoða hugmyndir hvers annars til
lausnar,“ sagði Pétur Sigurðsson,
formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða, en á sunnudagskvöld var gert
hlé á viðræðum Alþýðusambandsins
og vinnuveitenda, en verkfall hefur
verið í rúmar þrjár vikur.
“Þó við sjáum einhverja glætu, þá
er þetta ennþá mjög þungt.“
Er ekki rétt að þið hafið boðið upp
á að fá 100 þúsund króna launin á
lengri tíma, en áður?
“Það má orða það svo. í svona
málum er ekkert sem heitir að leysa
einn lið. Það eru fimmtíu og tvö spil
í stokknum og jókerar að auki.“
Er þetta ekki að verða erfið staða?
“Jú, þetta er alveg ótækt. Það er
enginn bilbugur á mönnum þrátt fyr-
ir það. Réttlætið sigrar fyrir rest.“
Búið er að ganga frá samningi á
Drangsnesi. Þar hækkaði bónusinn
um 54 prósent og sagðist Pétur vel
skilja félaga sína þar að hafa skrifað
undir samning.
Pétur segir að fram að næsta fundi,
sem verður í kvöld, noti menn tím-
ann til að skoða það sem hefur kom-
ið upp í þeim viðræðum sem eru að
baki. Pétur segist vona að Geir
Gunnarsson vararíkissáttasemjari
stýri fundinum sem hefst í kvöld.
„Það gerist ekkert nema undir verk-
stjórn,“ sagði Pétur Sigurðsson.
■ Lögmenn töpuðu
máli gegn Leigj-
endasamtökunum
Þurfa að
borga allt
Lögmenn á Eiðisttorgi stefndu
Leigjendasamtökunum vegna
meintrar skuldar. Sættir tókust ekki
og endaði með því að Héraðsdómur
fékk málið til meðferðar. Jón Kjart-
ansson ffá Pálmholti, og formaður
Leigjendasamtakanna, varði málið
fyrir samtökin. Hann hafði betur en
lögmennimir, þar sem þeir voru, auk
þess að tapa málinu sjálfu, dæmdir til
að greiða Jóni 25 þúsund krónur í
málsvamarlaun.
Upphaf málsins er að Leigjenda-
samtökunum barst innheimta frá lög-
mönnunum, þar sem þeir vildu fá
greiddar 47 þúsund krónur. „Það var
ekkert fylgiskjal með svo ég skrifaði
þeim og bað um skýringar á tilurð
skuldarinnar. Við fengum ekkert
svar, en þess í stað stefnu," sagði Jón
frá Pálmholti.
Eftir það varð ekki aftursnúið og
málið fór í hart. Dómarinn, Sigurður
Hallur Stefánsson, reyndi sáttir en
lögmennimir reyndust aðeins tilbún-
ir til að lækka kröfuna úr 47 þúsund
krónum í 25 þúsund. Það gat Jón
ekki sæst á fyrir hönd Leigjendasam-
takanna. Sem fyrr segir vann Jón
málið fyrir hönd samtakanna.
■ Norskur dómur gefur reyndum drykkjumönnum grænt Ijós á að aka fullir
Drykkjureynsla getur mildað
refsingu drukkinna ökumanna
“Eiga frægar byttur að fá endalaust fyllirí metið til mildunar þegar þeir eru teknir fullir?" - spyr
sárreiður talsmaður BÖ, Bindindisfélags ökumanna í Noregi.