Alþýðublaðið - 11.06.1997, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ1997
■ Fangelsin í Maricopa í Arizona sem Haneshjónin verða flutt til
Tilgangslaust ofbeldi og niðurlæ
Joseph M. Arpaio harðsvíraðsti lögreglustjóri Vestursins er þreyttur á glæpum og glæpamönnum, enda niðurlægir hann og kvelur far
Fangelsin í Maricopasýslu í
Arizona hafa vakið mikla athygli
fjölmiðla, fyrir harðræði og mann-
réttindabrot, bæði á þessu og síðasta
ári eins og komið hefur fram í Al-
þýðublaðinu. Þetta eru sömu fangels-
in og Haneshjónin Donald og Connie
verða flutt í verði þau framseld.
Hjónin hafa margoft lýst því yfir
að þau telji eðlilegt að þau svari til
Stéttm
erfyrsta
skrefið
inn...
Mikiðúrval
afhellum
og steinum.
Mjðggottverð.
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700-FAX 577 1701
saka í Bandaríkjunum og lýst sig
reiðubúin til að mæta sjálfviljug fyr-
ir rétt, og samþykkja hverskyns eftir-
lit á leið sinni til Arizona.
Ve'rði þau hinsvegar framseld án
sérstakra ákvæða af hálfu íslensku
ríkisstjómarinnar, verða þau hand-
tekin strax við komuna til Bandaríkj-
anna og flutt fangaflutningum í hin
illræmdu Maricopafangelsi meðan
beðið verður dómtöku málsins. Eins
og kom fram í frétt Alþýðublaðsins
fyrir helgi, úrskurðaði Héraðsdómur
á þriðjudag, að skilyrðum til fram-
sals hjónanna væri fullnægt, en
bandan'sk yfirvöld fóru fram á fram-
sal þann 3 mars. síðastliðinn.
f bréfi frá bandaríska dómsmála-
ráðuneytinu, til yfirmanna fangelsis-
mála í Arizonafylki er það tekið fram
að aðstæður og meðferð fanga í fang-
elsum í Maricopasýslu bijóti gegn
bandarísku stjómarskránni, varðandi
valdbeitingu gegn föngum og skeyt-
ingarleysi gagnvart læknisfræðileg-
um þörfum fanganna. Tekið var fram
að óþarfa valdbeiting hefði verið sér-
stakiega algeng þar sem nýir fangar
vom teknir inn. Er til þess tekið að
fangaverðir beiti fanga ofbeldi án
ástæðu og sýnilegrar mótspymu,
dæmi væm um raflost, spörk og
hnefahögg. Dæmi vom einnig um
notkun raflostsbyssa á eistu fanga og
spörk í fanga í jámum. ófullnægjandi
aðstoð vegna geðrænna vandamála
getur ennfremur leitt til alvarlegs
skaða segir í bréfinu, og á geðdeild-
inni séu fangar sem hafí verið yfir-
bugaðir iðulega látnir afskiptalausir
tímunum saman. Tekið var fram að
sérfræðingur frá ráðuneytinu hefði
farið yfir sjúkraskrár 26 fanga. I
næstum öllum tilvikum hefði sér-
fræðingurinn fundið bresti, mikil-
væga og stundum lífshættulega, á
læknisfræðilegri meðferð. Tók ráðu-
neytið fram að það hefði djúpstæðar
áhyggjur af því hversu margir kynnu
að hafa dáið af völdum gallaðrar
heilbrigðisþjónustu eða synjunar á
slíkri þjónustu.
Amnesty Intemational rannsakar
nú dauða fangans Scotts Norberg
sem var handtekin í Arizona árið
1996 tveimur mánuðum eftir að bréf
ráðuneytisins barst yfirvöldum í
Arizona, eftir að hafa sýnt af sér
óeðlilega og hótandi hegðun á al-
mannafæri. Hann var settur í fangelsi
í Maricopasýslu í Arizona, þar sem
hann lenti i átökum við tólf fanga-
verði sem leiddu til dauða hans. Við
kmfningu kom í ljós að hann hafði
verið skotinn tuttugu skotum með
byssu sem veldur raflosti, þrátt fyrir
að fullyrt hafi verið að um fá skot
hefði verið að ræða. Hann var í átök-
unum settur í þar til gerðan stól til að
yfirbuga hann og handklæði vafið
um munn hans en hann lést af með-
ferðinni. Það fór fram innri rannsókn
á dauðsfallinu þar sem 34 fangar
vom meðal annars yfirheyrðir og
sögðu flestir þeirra að fangaverðir
hefðu stappað á andlit hans og slegið
hann í andlitið. Niðurstaða rannsókn-
arinnar var hinsvegar sú að allir
fangaverðir vom hreinsaðir af ásök-
unum og andlátið úrskurðað af slys-
fömm.
Sú staðreynd að foreldrar Scotts
em bæði lögmenn og faðirinn hátt-
settur leiddi til þess að málið fékk
mikla athygli fjölmiðla, en þau
fylgdu málinu fast eftir.
Joseph M. Arpaio, lögreglustjóri
sýslunnar og yfirmaður fangelsanna í
Maricopa hefur áunnið sér vinsældir
almennings í Arizonafylki fyrir
andúð sína á glæpum og glæpamönn-
V ■■ ■ .
*■ '. .■ >:■ ■
um sem hann fer ekki í launkofa
með. I framsalsbeiðni sýslunnar til
Islands vegna Haneshjónanna er sér-
staklega tekið fram að fela eigi hon-
um umsjón þeirra eftir komuna til
Bandaríkjanna.
í viðtali við breska tímaritið Night
and Day, lýsir hann viðhorfum sínum
til fanganna og stefnu fangelsanna.
Hann segist þar vera þreyttur á af-
brotum og afbrotamönnum í sýslunni
og vilji að á þessum málum sé tekið
af hörku. Hann segir að þetta sé í
góðu samræmi við vilja almennings
og hann hafi boðið almennum borg-
urum að taka þátt í refsigæslunni þar
á meðal fangaflutningum og hafi
2600 manns nýtt sér boðið. Joseph M
Arpaio hefur ennfremur lýst sjálfum
sér í ævisögu sinni sem hann nefnir,
„The Americas Toughest Sheriff. Þá
kemur ennfremur fram í greininni að
atkvæði almennings haldi honum í
starfinu, yfirvöld hefðu fyrir löngu
síðan viljað losna við hann. Arpaio
hyggur loks á frama í stjórnmálum."
í grein breska blaðsins kemur fram
að tjaldbúðum hafi verið korrtið upp í
sýslunni til að bregðast við offjölgun
í fangelsum, í hverju tjaldi séu tutt-
ugu kojur. I tjöldunum eru vistuð,
1600 karlar og konur eða einn fjórði
af föngum sýslunnar. Fangar í tjöld-
unum eru ekki aðgreindir eftir eðli
glæpanna eða hvort þeir hafi verið
dæmdir eða ekki. Allir eru vistaðir
saman. Matur og annar aðbúnaður er
ömurlegur og ekkert kælikerfi er í
tjöldunum þrátt fyrir hitakóf á sumr-
in, á vetuma hafi fangamir þrjú þunn
teppi til að halda á sér hita. Heitt vatn
er ekki til staðar í búðunum. Fangar
sem brjóta gegn agareglum tjaldbúð-
anna mega velja milli þess að vera
vistaðir fjórir saman í þröngum klefa