Alþýðublaðið - 11.06.1997, Síða 7

Alþýðublaðið - 11.06.1997, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Clr alfarakið Það sem okkur vantar er skipulag. Það sem okkur vantar er náið sam- starf við fjöldahreyfingu launþega. Það sem okkur vantar er fyrst og ffemst afl fjöldans. Ef okkur telst að stilla saman strengi þannig að við gefum almenningi á Islandi kost á því í næstu kosningum að leggja traust sitt á slíka hreyfingu þá eru það engir draumórar, ekkert óraunsæi og engin óskhyggja að segja að sú hreyftng geti orðið, f fyrstu lotu, stærsta og öflugasta stjómmálahreyf- ing á íslandi. Sú hreyfmg verður jafnframt að vera við því búin að axla ábyrgð á því að taka forystu í þessu þjóðfélagi og setja niður þá sérgæsku og græðgi sem farin er að einkenna valdastéttina á íslandi. Mistök fortíðarinnar Við emm auðvitað ekki gallalaus flokkur og höfum að sjálfsögðu gert mistök. Það vom mikil átök og mik- ið stríð þegar við sátum í ríkisstjóm á átta ára tímabili á einhveiju erfiðasta samdráttar- og kreppuskeiði sem yfir okkar þjóðfélag hefur gengið frá stríðslokum. Sjálfsagt lögðum við of- uráherslu á efnahagslegar lausnir og efnahagsleg úrræði, enda tókst okkur að koma í veg fyrir kollsteypu og óðaverðbólgu og við skiluðum mjög góðu búi. Vegna þess að við þurftum að einblína um of á hinar þröngu stærðir efnahagsmála fékk margur maður á íslandi, sem átti hugmynda- lega samleið með okkur, á tilfinning- una að við væmm kaldrifjaður tæknikrataflokkur sem hefði ekki nægilega opin augu fyrir nauðsyn fé- lagslegra úrræða og félagslegrar hlýju í þjóðfélagi sem einkenndist af vaxandi kulda. Þetta gerðist ekki vegna þess að hjartað hafi ekki sleg- ið þeim megin, heldur einfaldlega vegna þess að við vorum of upptekn- ir í björgunarleiðangri við brýn störf, þannig að við höfðum ekki tækifæri til að koma nægilega til skila sýn okkar á þessa þætti mannlífsins, sem er stór þáttur í hugsun, lífi og starfi jafnaðarmanna. Við höfum aldrei á þessari öld átt jafn stórkostlegt tækifæri til að bæta fyrir mistök sögunnar og til að draga rétta lærdóma af þeim mistökum sem við og aðrir höfum gert í fortíðinni. Við höfum stórkostleg tækifæri til að ljúka þessari öld með þeim hætti að draumur brautryðjendanna um sigur- sæla, sterka, þroskaða og öfluga hreyfingu jafnaðarmanna geti orðið að veruleika áður en ný öld gengur í garð. Það er okkar hlutverk og frá þessu aukaþingi eigum við að koma samhent, samstiga og sigurviss í full- vissu þess að við munum ekki bregð- ast því hlutverki. Ræöan er birt örlítið stytt. „Umræðan í dag er mótuð af hugmyndum sem verða til innan Alþýðuflokksins. Ef þið eruð ekki ánægð með það farið þá í skátafélag eða bindindishreyfingu en verið ekki í stjórnmálaflokki." Fyrrum leiðtogi svörtu hlébarðanna, Elmer „Geromino“ Pratt berst enn fyrir því að fá sakleysi sitt viðurkennt eftir að hafa setið 25 ár í fangelsi en hann var dæmdur fyrir morð á konu í borginni Santa Monica í Bandaríkjunum árið 1968, segir Reuter fréttastofan. í síðasta mánuði úrskurðaði dómstóll Orange County í Kali- fomíu, að Pratt ætti að fá ný rétt- arhöld í málinu, vegna þess að hann var sakfelldur að hluta til vegna sönnunargagna frá upp- ljóstrara Bandarísku alríkislög- reglunnar. Eiginmaður konunnar sem var myrt, bar kennsl á Pratt fyrir dómi, en Pratt hefur ævinlega haldið fram sakleysi sínu og borið því við að hann hafi verið 400 mflum frá vettvangi glæpsins, nánar tiltekið í Oakland, þegar morðið var framið, og það hafi Al- ríkislögreglan vitað, enda hafi hann verið undir eftirliti. Seint á sjöunda áratugnum og snemma á þeim áttunda háði Al- ríkislögreglan heilagt stríð gegn samtökum eins og Svörtu hlébörð- unum og hélt uppi njósnum um þau vegna þess að þeir litu á þau sem herská niðurrifssamtök. Saksóknarinn Gil Garcetti hefur lýst því yfir að niðurstöðu dómar- ans um ný réttarhöld yfir Pratt verði áfrýjað, og að þeir standi að baki sakfellingunni enda hafi eng- in ný sönnunargögn komið fram í málinu sem bendi til sakleysis Pratts, heldur aðeins ný vitneskja sem rýrt gæti traust eins vitnis í málinu. Pratt er skilgreindur sem sam- viskufangi af mannréttindasam- tökunum Amnesty Intemational. Ræða Össurar Skarphéðinssonar á sumarþingi Alþýðuflokksins Sameiningardraumur- inn er að rætast Höfum við gengið til góðs götuna frá því á síðasta flokksþingi? Svarið er tvímælalaust já. Hver var niðurstaða síðasta flokks- þings Alþýðuflokksins? Það var stjómmálaályktun sem fól í sér ákveðin verkefni sem sett vom á herðar forystu flokksins. Einu sinni var talað um „hannaða atburðarás". Sá maður sem fann upp það orðtak er nú forseti lýðveldisins og býr á Bessastöðum. Og forystu Alþýðu- flokksins var falið að koma af stað atburðarás sem flokksþingið ákvað í stómm dráttum hvemig skyldi verða. Það sem síðan hefur gerst er að mínu mati einhver best útfærða fram- kvæmd á pólitískri stefnu sem ég hef séð unna á jafn skömmum tíma. Um- Nauðsyn þolinmæð- innar Við eigum ekki að knýja fram af- stöðu af hálfu Alþýðubandalagsins, Kvennalistans eða nokkurra annarra. Það er einungis eitt verkefni sem við eigum að einhenda okkur í og það er að reyna alls staðar að bródera með vinstri bandalögum fyrir næstu sveitastjómarkosningar. Það er nauð- synlegt, hvemig sem kosningatölur fara, að þar komi fram ákveðinn og sýnilegur vilji A-flokkanna til þess að starfa saman. Það á að vera niður- staða kosninganna. Ef við náum ein- hvers staðar, í bandalagi við Alþýðu- bandalagið eða önnur vinstri sinnuð öfl, meirihluta í stómm bæjarfélög- Fær samvisku- fanginn og Svarti hlébarð- inn Pratt upp- reisn æru ræðan í dag er mótuð af hugmyndum sem verða til innan Alþýðuflokksins. Ef þið emð ekki ánægð með það far- ið þá í skátafélag eða bindindishreyf- ingu en verið ekki í stjómmálaflokki. Umræðan í kjölfar flokksþingsins hefur öll snúist um samvinnu jafnað- armanna. Meginstraumi umræðunnar hefur verið stjómað af Alþýðu- flokknum. Þannig á það að vera áfram, en við verðum að gæta þess að eigna okkur ekki ávinningana vegna þess að þegar upp er staðið þá verðum það við og skoðanasystkin okkar sem munum njóta ávaxta upp- skerunnar. um þá er um að ræða gríðarlega mikla vísbendingu um það hvað er að gerast. Það að halda Reykjavík er mikilvægt, en ekki alveg nauðsyn- legur undanfari þess að við vinnum stórsigur í þingkosningum. En að öðra leyti held ég að at- burðarásin sjálf muni leiða okkur að niðurstöðu. Við verðum einungis að gæta þess að þetta verði ekki eins og fljót í leysingum sem brjóti af sér bakkana og renni að lyktum í annan ós en við höfum hugsað okkur. Við verðum að gæta þess að fylgjast með atburðarásinni, reyna að hvetja hana áfram en við eigum ekki að fara að kalla fram einhverjar sérstakar niður- þróun kemur ekki til mála. Og það era Steingrímur J. Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson, sem hvor með sínum hætti era ,að skapa sér ákveðna sérstöðu í íslenskum stjóm- málum. Hún er virðingarverð í sjálfu sér en gerir þá mjög áhrifalitla stjóm- málamenn. Það sem var lítið kím- blað stöður. Galdurinn núna er einmitt sá að vera þolinmóð vegna þess að allt það sem hefur gerst frá síðasta flokksþingi er nákvæmlega það sem við vildum sjá. Hvað hefur gerst síðan? Hinn aðal- flokkurinn á vinstri vængnum, Al- þýðubandalagið, er upptekinn af hveiju? Af samræðum við okkur. Það er alveg sama hvar alþýðubandalags- menn koma saman í dag, þeir eru alls staðar að ræða hugmyndir og svör við áreiti frá okkur. Alþýðubandalag- ið er að reyna að búa til úr sjálfu sér, meðvitað eða ómeðvitað, flokk sem við getum starfað með. í dag gæti ég aðeins nefnt ykkur tvo meiri háttar alþýðubandalagsmenn sem myndu berja í borðið og segja, nei, þessi Við eigum að gæta þess að leyfa þúsund blómum að blómstra. Við eigum að leyfa margvíslegum skoð- unum að koma fram og við eigum að gæta þess að lokast ekki inn í þröng- um stofnunum lítils flokks. Við vinn- um engar kosningar ef við höfðum einungis til þeirra sem hafa kosið okkur, Alþýðubandalagið eða Kvennalista. Næstu kosningar munu snúast um hug og hjörtu þeirra sem hafa ekki kosið okkur áður eða jafn- vel fyrirlíta okkur, fólk sem lætur sér á sama standa um stjómmálaflokka af því það skilur ekki hvað greinir þá að, en er í hjarta sfnu sammála lífs- skoðunum okkar. Við kunnum að vera á leið til enn mikilvægari landvinninga. Draumur- inn er að rætast og við þurfum að hlúa að því litla kímblaði sem hefur verið að skjótast upp úr moldinni síð- ustu misseri og var orðið að lítilli plöntu á síðasta flokksþingi. Nú er að verða til fögur jurt. Við megum ekki spara áburð á hana. Ræöan er birt nokkuð stytt.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.