Alþýðublaðið - 11.06.1997, Síða 8

Alþýðublaðið - 11.06.1997, Síða 8
WORLDWiDE EXPRESS Nýtt aðalnúmer 5351100 Miðvikudagur 11. júní 1997 74. tölublað - 78. árgangur wanww/ae express Nýtt aðalnúmer 5351100I Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ■ Guðbergur Bergsson fær mjög góðar viðtökur í Bretlandi Times, segir - Ritverk sem neitar að hverfa úr huganum Eftir hreint út sagt frábærar viðtökur í Frakklandi heldur Svanur Guðbergs Bergssonar áfram ferðalagi sínu um heiminn. Nýlega kom bókin út í Bretlandi, hjá Mares Nest í þýðingu Bernards Scudder. Svanurinn kemur út á Spáni í þessum mánuði en er væntanleg í fleiri löndum. Áður hefur Svanurinn komið út í Danmörku, Svíþjóð, Frakklandi og Tékklandi Bretar eru hrifnir af Svaninum, skáldsögu Guðbergs Bergssonar og fær bókin góða dóma í breskum blöðum. í blaðinu Independent on Sunday fer gagnrýnandinn mjög lof- samlegum orðum um bókina. Hann nefnir sérstaklega hvemig, „mynd- mál náttúrunnar getur endurspeglað samræmi og fegurð - eins og sterkur og fallegur texti skáldsögunnar sýnir. Gagnrýnandinn telur að skáldsöguna einkenni frumleiki og yfirburðir í ljóðrænni sýn á dauðann. í þessari dæmisögu haldi sérhver persóna ein- staklingseinkennum sínum en í stúlkunni megi greina ímynd hins kvenlega eðlis. í lokin tengi höfund- ur verkið þjóðsögum en lætur ekki í té neina einfalda skýringu, leyndar- dómurinn er alger. I Times Litterary Supplement seg- ir ritdómari bókina vera óvanalega frásögn af lífi níu ára gamallar stúlku og sveitadvöl hennar. Lesendur upp- lifa atburði gegnum skynjun hennar og fyndnum uppákomum eru gerð eftirminnileg skil þó að samtöl og hegðun persóna séu ekki alltaf auð- skilin. Ýmsar vísanir eru í frásagnar- hefð íslendingasagnanna en vana- ■ íslenskir Bítlatónleikar Bæði gott og vont Það ríkti mikil gleði, undmn og aðdáun meðal þeirra sem fylltu Há- skólabíó þegar Sinfóníuhljómsveitin og rokkara höfðu lokið við flutning sinn á verkinu Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band, síðastliðið föstu- dagskvöld. Greinilegt var að flytj- endum og stjómendum hafði tekist að gera viðstadda ólýsanlega glaða. Flutningurinn var vægast sagt stór- kostlegur. Sinfóníuhljómsveitin, undir stjóm Ólafs Gauks, vann sér virðingu fyrir sinn þátt. Það gerðu einnig rokkar- amir undir stjóm Jóns Ólafssonar. Söngvaramir þrír; Daníel Agúst Har- aldsson, KK og Stefán Hilmarsson stóðu sig mjög vel. Þessi hluti tón- leikanna var öllum sem að komu til fyrirmyndar. Það verður ekki sagt um allt það sem boðið var upp á í Háskólabíói þetta kvöld, því miður. Fyrir hlé komu hinir og þessir og spiluðu og sungu hin og þessi Bítlalög. Oftar en ekki tókst flytjendum illa upp. Reyndar á köflum mjög illa. I hléinu mátti heyra að hljómleikagestir vom nánast undrandi, alltof langur tími hafði farið í þessa illagerðu upphit- un. Flytjendur í fyrri hlutanum vom of margir og hann tók of langan tíma. Kannski hefur það gleymst hjá flestum, það var það skemmtilegt að vera í Háskólabíó eftir hlé. bundið lífið á bóndabænum er í al- gerri andstöðu við dramatíska fram- vinduna þar. Gagnrýnandinn segir söguna, „sérkennilega fremur en hryllilega leyndardómsfulla. Svanur- inn gengur upp í könnun á þeirri sér- stöku vitund þegar bamið er ekki al- gerlega saklaust en þó gmnlaust. Gagnrýnandi The Mail on Sunday segir skáldsöguna vera „ljóðræna, súrrealíska og fyndna sögu um stúlku sem er send í sumardvöl í sveit. At- burðurinn leiðir stúlkuna inn í heim konunnar sem er eilítið upphafmn. En persónulýsingar og sýn á íslensk- an vemleika vegi þar á móti. Gagnrýnandi The Times telur Svaninn eitt tákn þeirrar nútímalegu og alþjóðlegu endurvakningar sem eigi sér stað í fslenskri menningu. I ritdóminum segir meðal annars að Svanurinn byggi á fomri íslenskri sagnahefð. „Svanurinn er ekki einföld, þægi- leg lesning, heldur grípandi og flók- in. Ritverk sem tekur sér bólstað í huga þínum og neitar að hverfa það- an.“ lUIHIUJd - POK Siglt um sundin blá Ekkert er eðlilegra en að fólki njóti sólar og blíðviðris eftir það veðurfar sem verið hefur hér á landi síðustu daga, eða jafnvel síðustu vikur. KK, Daníel Ágúst Haraldsson, Björgvin Gíslason og Stefán Hjörleifsson á æfingu fyrir tónleikana. Þeim tókst vel upp og nánast ærðu áheyrendur af hrifningu. Greiniiegt var að þeir ásamt Sinfóníunni, Jóni Ólafssyni, Stefáni Hilmarssyni og fleirum höfðu undirbúiðsig vel. Það verður ekki sagt um alla sem komu fram á annars mjög merkilegum og skemmtilegum tónleikum. Fyrir hlé var boðið upp á margt sem hefði betur hátt heima á krá þar sem gestir eru ekki allsgáðir. j JtoJiliiiJiij'Í Velkomin um borð tarferjuna Baldur Daglegar ferðir með viðkomu í Flatey Frá Stykkishólmi kl. 10.00 &16.30 Frá Brjánslæk kl. 13.00 & 19.30 Símar: 433-1120 Stykkishólmi 456-2020 Brjánslæk Fax: 438-1093 Stykkishólmi

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.