Alþýðublaðið - 17.06.1997, Síða 1
■ Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri um Sigurðarmálið
Kristbjörn kunni
ekki á tækin sín
Þetta er rugl hjá Þórði, segir Kristbjörn Árnason skipstjóri
„Hann fór eftir leiðbeiningum en
kunni bara ekki á tækin sín, eftir því
sem mér skilst. I leiðbeiningunum
frá okkur var gefið upp telefaxnúmer
og hann notaði það á sitt tæki sem er
Inmersat. Hann á að vita að menn
hringja ekki eins úr Inmersattæki og
úr telefaxtæki. Við kunnum ekkert á
Inmersat, en það á skipstjórinn að
gera,“ sagði Þórður Ásgeirsson fiski-
stofustjóri þegar hann var spurður
hvort Fiskistofa fyndi ekki til
ábyrgðar í Sigurðarmálinu, þar sem
komið hefur fram að leiðbeiningum
Blönduós og
Skagaströnd
ræða samein-
ingu
Sveitastjómir Blönduóss og
Skagastrandar hafa hist í kyrrþey til
að ræða samstarf, sem gæti á næstu
4-5 ámm leitt til sameiningar sveitar-
félaganna. Síðastliðinn föstudag var
á Blönduósi fundur með báðum
sveitastjómunum, þar sem næstum
allir fulltrúar beggja mættu, og
ræddu meðal annars sameiginlega
hitaveitu.
í dag starfrækir Blönduós hita-
veitu, sem gæti nýst Skagstrending-
um vel. Fyrir liggur vilji beggja aðila
til að ráðast í samstarf á þessu sviði,
en línan, sem rætt er um að leggja
milli sveitarfélaganna, yrði 17 kíló-
metra löng. Þá var einnig rætt um
samstarf á sviði félagsþjónustu sveit-
arfélaganna tveggja, og í skólamál-
um, en gjörbreytt viðhorf hafa skap-
ast eftir að sveitarfélögin yfirtóku
gmnnskólann, sem í mörgum tilvik-
um hvetur nálæg sveitarfélög til að
flýta sameiningu.
Þorsteinn
ber ábyrgð
Mistök af hálfu sjávarútvegs-
ráðuneytis virðast vera undirrót-
in að töku Sigurðar VE, segir í
leiðara Alþýðublaðsins.
Af þessu tilefni spyr leiðara-
höfundur: „Hvað munu íslenskir
skattborgarar þurfa að greiða út-
gerð Sigurðar VE mikið þegar
upp er staðið fyrir klúður sjávar-
útvegsráðuneytisins?"
Sjá leiðara bls 2: BRAK-
ANDI SNILLD SJÁVARÚT-
VEGSRÁÐLNEVTISINS.
frá þeim, við að tilkynna til norsku
fiskistpfunnar hafi verið fylgt. Krist-
bjöm Ámason, skipstjóri á Sigurði,
fylgdi leiðbeiningum frá Fiskistofu
þegar hann reyndi að tilkynna sig til
norskra yfirvalda þegar hann var á
síldarveiðum utan íslenskrar lög-
sögu.
Pið finnið þá ekki til ábyrgðar í
þessu máli?
„Fjarri því, fjarri því. Við gáfum
upp símanúmer og telefaxnúmer. Ef
menn em með önnur tæki hljóta þeir
að vita sjálfir hvemig þau virka sam-
anborið við til dæmis telefax. Finnst
þér það ekki? Það þarf að hringja í
tvö núll þegar telefax er notað en eft-
ir því sem ég best veit þarf þess ekki
þegar Inmersat er notað. Málið snýst
samt ekki um þetta. Ég get ekki séð
að svo sé. Það er sannað að maðurinn
reyndi að melda sig, en það skilaði
sér ekki einhverra hluta vegna. Hvort
leiðbeiningar lágu fyrir eða ekki, á
ekki að skipta máli. Það lágu engar
leiðbeiningar fyrir um hvemig á að
nota Inmersat," sagði Þórður Ás-
geirsson fiskistofustjóri.
„Þetta er mgl í Þórði. Ætli hann
hafi ekki lesið leyfið sem hann gaf
út? Ég vil ekki ræða þetta mál, þetta
er tómt mgl. Það fer ekki á milli mála
hvað á að gera þegar leyfið er lesið.
Ég vil helst ekki ræða þetta mál frek-
ar,“ sagði Kristbjöm Ámason, skip-
stjóri á Sigurði VE.
En þykir þér þá að Fiskistofa beri
ábyrgð á þeim kostnaði sem varð
vegna málsins?
„Ég hef ekki rætt þetta mál við
Fiskistofu, ég vil helst geta verið í
fríi þá daga sem ég er í fríi.“
Fyrirtíðar-
spennan er
hugarburður
Fyrirtíðarspenna sem er sögð
valda milljónum kvenna skapgerðar-
sveiflum, viðkvæmni og æsingi, er
bara í kollinum á þeim ef marka á
nýja breska rannsókn.
„Þetta ástand er líklega bara afsök-
un sem konur nota þegar þær em í
uppnámi vegna vinnunnar eða
hvunndagslífsins," segja vísinda-
mennimir.
Rannsóknimar sýna að fyrirtíðar-
spenna er í engum tengslum við tíða-
hringinn, heldur er um að ræða ffem-
ur tilviljunarkenndar skapgerðar-
sveiflur sem fela í sér pirring og
þunglyndi og tengjast félagslegum
kringumstæðum eða heilsufari.
f Bretlandi er talið að níu af hveij-
um tíu konum þjáist af fyrirtíðar-
spennu og milljónum punda er eytt í
ýmiskonar meðferð. Áætlað er að um
þijár billjónir punda tapist árlega í
heiminum vegna íjarvista kvenna frá
vinnu vegna fyrirtíðarspennu. Ein-
kennin sem konumar lýssa em til
dæmis taugaspenna, þreyta, þung-
lyndi, mígreni, astmi, flog og heiftar-
legar skapgerðarsveiflur.
Dr Elishabeth Hardie, yfirmaður
rannsóknanna sagði: „Ef þú ert mað-
ur og þú ert reiður eða leiður, eða í
uppnámi segistu þjást af streitu eða
veikindum, ef þú ert kona og ert reið,
leið eða æst, segistu þjást af fyrirtíð-
arspennu. Þú ert búin að búa til af-
sökun vegna þess að þjóðfélagið er
Ég lifi!
- segir Svavar
Gestsson
„Fréttir um pólitískt andlát
mitt em stórlega orðum aukn-
ar,“ segir Svavar Gestsson í
greininni „Kann sama og ekkert
í finnsku."
Tilefnið em vangaveltur í ör-
sagnadálki Alþýðublaðsins um
að Svavar væri kandídat til
sendiherra fslands í Finnlandi.
„Alþýðublaðið hefúr ákveðið
að koma því slúðri á kreik að
undirritaður sé á leið í sendi-
herrastarf... Þó mér þyki í aðra
röndina vænt um blað Össurar
verð ég að viðurkenna að það
dugir ekki sem trúnaðarbréf fyr-
ir sendiherra.“
- Sjá bls. 2
Táknrænn stuðningur við Agúst
„Við höfum reiknað út að nákvæmlega núna í hádeg-
inu er Ágúst að ljúka þessu rosalega hlaupi sínu
hinumegin á hnettinum," sögðu þessir galvösku
hlauparar, sem í gær hittust til að sýna hlaupafélaga
þeirra, Ágústi Kvaran, táknrænan stuðning. En Ágúst
Kvaran, sem er prófessor í efhafræði við Háskólann, er
staddur í Suður Afríku, og lagði í gær upp í 89 kfló-
metra hlaup sem hann hefur undirbúið lengi, meðal
annars með félögunum á myndinni.
Af því tilefni hittust tíu hlaupafélagar Ágústs, sem
tilheyra hinum fræga hlaupaklúbbi sundlaugarinnar í
Vesturbæ, og hlupu 8,9 kflómetra, - eða samtals 89
kflómetra þegar vegalengdir allra em lagðar saman.
Undirbúningur Ágústs fólst meðal annars í því að
hlaupa nokkur maraþonhlaup, og þegar Alþýðublaðið
hitti hann að máli við Vesturbæjarlaugina áður en hann
lagði í ferðalagið til Suður Afríku kvaðst hann hlaupa
20-25 kflómetra næstum daglega, og upp í maraþon-
hlaup, sem em liðlega 40 kflómetra, um helgar.
Hlaupið í Suður Afríku er heimsfrægt þolhlaup, þar
sem helstu hlaupakempur veraldar spreyta sig. Ekki var
vitað í gær, þegar blaðið fór í prentun, hvemig Ágústi
tókst til í hlaupinu, en félagar hans í Vesturbæjarhópn-
um vom vissir um að honum hefði tekist vel upp.
„Hann lýkur öllu sem hann tekur sér fyrir hendur,'
sögðu þeir.