Alþýðublaðið - 19.06.1997, Síða 1
-J
■ Átök milli Alþýðubandalags og Jóns Ólafssonar vegna skrifa Helgarpóstsins
Jón Ólafsson íhugar
kæru á Helgarpóstinn
Samstarfsmenn Jóns telja að í gangi sé ófrægingarherferð á hendur Jóni sem
sé stjórnað úr Alþýðubandalaginu. Páll Vilhjálmsson: Við erum ekki í persónu-
legum leiðangri gegn Jóni. Staðfestir að Alþýðubandalagið eigi 45% í Helgar-
póstinum, en það jafngildir 4,5 milljónum í hlutafé.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins leggja samstarfsmenn Jóns
Olafssonar, stjómarformanns Islenska
útvarpsfélagsins, hart að honum að
kæra Helgarpóstinn fyrir skrif hans í
síðustu tveimur tölublöðum, þar sem
Jón er borinn þungum sökum í tengsl-
um við fíkniefnamál. Meðal annars er
því haldið fram, að Jón sé grunaður
um tengsl við stóra fíkniefnamálið
svokallaða, og staðhæft, að ættingi
Jóns rukki inn fíkniefnaskuldir í gegn-
um Skífuna, fyrirtæki Jóns Ólafssonar.
Stjómmálaflokkurinn Alþýðu-
bandalagið á fast að helmingi hlutafjár
í Helgarpóstinum, auk þess sem af-
gangur hlutafjárins er í höndum
manna sem styðja Alþýðubandalagið
og hafa starfað á vegum þess.
Samkvæmt heimildum blaðsins
telja menn í kringum Jón Ólafsson að
skrif HP tengist þessu. Jón vill þó ekki
fullyrða það sjálfur.
Páll Vilhjálmsson, ritstjóri Helgar-
póstsins, staðfestir eignaraðild AI-
þýðubandalagsins í HP. „Það gerist
þannig, að Tilsjá, sem er útgáfufélag
Vikublaðsins og alfarið í eigu Alþýðu-
bandalagsins, hefur átt kringum 45
prósent. Við, starfsmenn HP, emm
hinsvegar að kaupa þennan hlut.“ Páll
segir jafnframt rangt, að forystumenn
flokksins eigi hluti í blaðinu: „Enginn
forystumaður Alþýðubandalagsins átti
persónulegan hlut þegar við keyptum,
og á ekki enn.“ í hlutafélagaskrá var
sami maðurinn, Valþór Hlöðversson,
bæjarfulltrúi Alþýðubandalagins í
Kópavogi, skráður stjómarformaður
beggja blaðanna og Páll Vilhjálmsson
er samkvæmt henni ennþá skráður
framkvæmdastjóri Tilsjár. f sömu skrá
kemur fram, að hlutafé sé alls 10
milljónir og samkvæmt því hefur AI-
þýðubandalagið greitt 4,5 milljónir
inn í Helgarpóstinn.
Alþýðublaðið hefur hinsvegar
heimildir fyrir því úr þingflokki Al-
þýðubandalagsins, að þungavigtar-
menn hafi ekki vitað um eignaraðild
flokksins að Helgarpóstinum fyrr en á
síðustu dögum, og telji blaðið þess
eðlis, að það myndi skaða flokkinn, ef
í hámæli kæmist að hann ætti aðild að
útgáfu þess. Páll neitar alfarið, að það
sé þessvegna, sem starfsmenn blaðs-
ins hyggjast nú kaupa hlut flokksins.
Jón Ólafsson vildi ekki ræða við Al-
þýðublaðið um kæm. Hann sagði að
skrif HP væru ærumeiðandi, þau
kæmu afar illa við fjölskyldu sína og
sjálfan sig. Hann vildi heldur ekkert
segja um það, hvort hann teldi skrif
HP tengjast þeirri staðreynd, að for-
maður Alþýðubandalagsins hefur ekki
farið dult með vandlætingu sína á hon-
um og stöðu hans í fjölmiðlaheimin-
um.
Menn í kringum Jón, sem Alþýðu-
blaðið ræddi við, sögðu hinsvegar
fullum fetum, að þeir litu svo á að það
væri í gangi ófrægingarherferð á
hendur Jóni, sem ætti upptök sín og
væri stjómað af formanni Alþýðu-
bandalagsins og mönnum sem henni
teljast nánir.
Samstarfsmenn Jóns benda einnig
á, að hann sé í þeirri sérkennilegu
stöðu að eignarítök hans í fjölmiðla-
heiminum torveldi honum að verjast
á vettvangi fjölmiðlanna. Þá væri ein-
ungis sagt, að hann væri að beita fjöl-
miðlaveldi sínu í eigin þágu. Þeir
töldu því, að Jón Ólafsson ætti ekki
annan kost en kæra HP, þó kæra og
sakfelling gæti í sjálfu sér ekki bætt
þann miska, sem endurteknir upp-
slættir með röngum sakargiftum yllu.
Páll Vilhjálmsson kveðst ekki ótt-
ast kæru: „Ég veit að lögreglan telur
sig hafa nægilega sterkar grunsemdir
til að vinna út frá þeirri kenningu að
Jón Ólafsson sé viðriðinn fíkniefna-
misferli. Þetta er hreint og klárt
frettamat." Hann neitar því að HP sé
í persónulegum leiðangri gegn Jóni
Ólafssyni, og kveðst ekki bera kala til
hans.
■ Nýstárleg dönsk
þróunaraðstoð í burð-
arliðnum
íslendingar
fræða lækna
í Mongólíu
um áfengis-
meðferð
Gizur Helgason og
Guðrún íslandi voru
með námstefnu í Ulan
Bator.
Tveir íslendingar, þau Gizur Helga-
son og Guðrún íslandi voru nýlega í
Ulan Bator í Mongólíu, þar sem
kenndu þijátfu læknurn á þriggja daga
námstefnu meðferð við alkólhólisma
með hliðsjón af því hvemig hún geng-
ur fyrir sig á Frederiksberg í Dan-
mörku en þau
stofnuðu
meðferðar-
stöðina
Frederiks-
berg Center-
et.
Tilefnið
var feiknar-
legt áfengis-
vandamál í
Mongólíu en
um 30 pró-
sent íbúanna
misnota
áfengi samkvæmt upplýsingum frá
staðnum.
Guðrún Islandi sem vann ásamt-
Gizuri lengi vel á meðferðarstöðinni
er nú orðin sendiherrafrú í danska
*
sendiráðinu í Peking og er maður
hennar einnig sendiherra Mongólíu.
Eftir að hafa fylgst með sjónvarpi og
útvarpi frá Mongólíu fór áfengis-
vandamál þarlendra fyrir bijóstið á
Guðrúnu og eygði hún möguleika á
útflutningi dönsku aðferðarinnar sem
reyndar byggir á Minnesota - rnódel-
inu líkt og áfengismeðferð á Islandi.
Eftir að hafa fengið styrk frá tveim-
ur dönskum fyrirtækjum sem eiga
viðskipti við Kína, hafði hún samband
við mongólsk heilbrigðisyftrvöld og
skipulagði í gegnurn þau námstefnu
fyrir lækna í Ulan Bator.
Þau Gizur og Guðrún sögðu í sam-
tali við danska blaðið Politiken að
læknamir hefðu sýnt aðferðum þeirra
mikinn áhuga en þar sem landið væri
mjög fátækt hefði það ekki burði til að
koma fótunum undir slíka starfsemi.
Guðrún kannar nú möguleika á
danskri þróunaraðstoð í formi kennslu
til mongólskra lækna á Minnesota -
aðferðinni og hefur verið í sambandi
við danska utanríkisráðuneytið sökum
þessa.
Utför
Guðmundar
J.
Útför Guðmundar J.
Guðmundssonar, fyrrver-
andi formanns Dagsbrún-
ar, verður gerð frá Hall-
grímskirkju mánudaginn
23. júní kl. 13.30.