Alþýðublaðið - 24.06.1997, Side 1

Alþýðublaðið - 24.06.1997, Side 1
■ Verði ríkisábyrgð tekin af húsbréfum mun það hafa mikil áhrif á verð húseigna Er aðför að aleigu landsbyggðarfólks - segir Birgir Dýrfjörð, stjórnarmaður í Húsnæðisstofnun „Verði ríkisábyrgð tekin af hús- bréfum þýðir það aðför að eignum fólks á landsbyggðinni," sagði Birgir Dýrfjörð, einn stjómarmanna í Hús- næðisstofnun ríkisins, um þær hug- myndir að ríkisábyrgð verði tekin af húsbréfum þegar og ef kerfið verður flutt til viðskiptabankanna. „Það er sannfæring mín, verði rík- isábyrgðinni aflétt, að þá verði lands- byggðinni veitt dýpra svöðusár í einu hnífsbragði en við höfum hingað til séð. Rökin getum við sótt til félags- málaráðherra, vegna þess að í svari sínu á Alþingi við fyrirspurn Jó- hönnu Sigurðardóttur, sagði ráðherr- ann og skýrði út að lítið bæri á milli sín og ríkisendurskoðunar. Ríkisend- urskoðun styðst við kostnaðar- og endurmatsverð, sagði ráðherrann. Hann sagðist styðjast við markaðs- verð, þar sem það væri réttara. Sem- ■ Bæjarstjóri Snæfells- bæjar Eigum 36 af 42 félagslegum íbúöum Guðjón Pedersen, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, segir bæinn eiga 36 af 42 félagslegum íbúðum sem eru í bæjarfélaginu. Eftirspurn er engin, og af þeim 36 íbúðum sem bærinn á, standa sex auðar þar sem ekki hefur einu sinni tekist að leigja þær. A síð- asta ári varð bæjarsjóður að greiða sex milljónir með íbúðunum. „Það eru miklir peningar fyrir okkur,“ sagði bæjarstjórinn. Hann segir það munu hafa alvar- legar afleiðingar fyrir íbúa Snæfells- bæjar verði veðhæfi íbúða miðað við markaðsverð, í stað brunabótamats, en algengt er að íbúðir og hús í Snæ- fellsbæ seljist á 70 til 80 prósent af brunabótamati og því sennilegt að húsbréfaláni lækki sem því nemur. „Það er alvarlegt mál fyrir okkur verði húsbréfalánin skert,“ sagði bæjarstjórinn. sagt, bankamir eru sama sinnis. Þeir munu styðjast við markaðsverð rétt eins og ráðherrann. Það munu þeir gera þegar þeir fara að meta veðhæfi íbúða. Tökum dæmi af íbúð til dæm- is á ísafirði, íbúð sem allir geta verið sammála um að kosti sjö til átta milljónir, þá mun bankinn meta hvað fæst fyrir íbúðina á nauðungarsölu, það er ef greiðandi bregst. Það eru sennilega tuttugu auðar íbúðir á Isa- firði og því fengist ekkert fyrir íbúð- ina, og þetta veit bankinn. Þar af leiðandi mun banki sennilega ekki veita neitt húsbréfalán út á hús á öll- um Vestfjörðum, þar sem þar er fullt af auðum íbúðum. Það er þetta sem ég á við. Með því að afnema ríkisá- byrgðina þá mun verð á íbúðum á landsbyggðinni hrynja. Til hliðar við þetta, má benda á og verið er að henda gaman af í blöðum að hús í Hrísey hafi verið selt langt fram yfir markaðsverð. Það er vegna þess að Húsnæðismálastofnun verður að styðjast við markaðsverð og samning um húsið. Þar með er eignin verðlög. Ef leið ráðherrans og bankanna hefði verið farin, þá hefði ekkert verið lán- að út á þetta hús. Stofnunin er að fara samkvæmt lögum, ef þetta verður flutt til bankanna, þá hefði ekkert verið lánað í þessu tilfelli. Það er ekki það skelfilega. Það skelfilega er, að öll önnur hús á svæðinu eru senni- lega óseljanleg, eða falla verulega í verði. Við höfum horft upp á að fólk í sveitum landsins hefur verið að flytja í kaupstaði. Æviarfur þess er verðlaus, það á varla fyrir kjallaríbúð f kaupstað. Nú er það að verða svo að öll landsbyggðin fellur undir það sama, fólk mun ekki eiga fyrir íbúð í Reykjavík ef það selur húsin sín á landsbyggðinni. Markaðsverð verður látið ráða þegar væntanlegur kaup- andi vill fá lán til að kaupa hús á ísa- firði, eða á Blönduósi þar sem ráð- herrann þekkir vel til.“ Þetta er kannski kuldalegt, en er ekki verið að viðurkenna staðreyndir, ibúðir á þessum stöðum eru þcer meira virði en fœst fyrir þcer? „Það er falskst verð þegar það er langt frá kostnaði, það er falskst verð. Rétta verðið er það verð sem kostar að búa til íbúðimar. Falska verðið er þegar það fellur um sinn vegna aðstæðna." Birgir Dýrfjörð segist ekki trúa að framsóknarmenn láti þetta yfir sig ganga og trúir að þeim snúist hugur þegar þeim verður ljóst hvaða afleið- ingar þetta mál muna hafi í för með sér. Útför Guðmundar Jóhanns Guðmundssonar, fyrrum formanns Dagsbrúnar og Verkamannasambandsins, var gerð frá Hallgrímskirkju í gær. Fjölmenni var við athöfnina. Alþýðublaðið minnist Guðmundar í blaðinu í dag, en hann var einn af helstu bandamönnum blaðsins. ■ Hrafn Jökulsson varaþingmaður Alþýðuflokksins og fyrrum ritstjóri Alþýðublaðsins segir sig úr flokknum Á ekki samleið með forystu flokksins - segir Hrafn. „Yfirlýsingar einstakra manna hafa ekki eflt áhugann." „Skýringamar á úrsögn minni úr Alþýðuflokknum eru nokkrar, en sú helst að mér þykir í seinni tíð að for- ystusveit flokksins hafi tileinkað sér baráttuaðferðir og málflutning sem sæma ekki hinum fomfræga flokki jafnaðarmanna,“ sagði Hrafn Jökuls- son varaþingmaður Alþýðuflokksins og fyrrverandi ritstjóri Alþýðublaðs- ins í samtali við blaðið, en hann hef- ur sagt sig úr Alþýðuflokknum. „Því er ekki að neita að yfirlýsing- ar einstakra manna, sem greinilega hafa mikinn en innistæðulítinn metn- að fyrir sjálfs sín hönd, hafa að und- anfömu lítt eflt áhuga minn á að vera skráður í þennan fornfræga flokk,“ segir Hrafn. „Þar að auki virðist Jón Baldvin því miður hafa tekið með sér þá djörfu hugmyndafræði og eldmóð sem til skamms tíma einkenndi Al- þýðuflokkinn. Þeir sem á síðasta flokksþingi vom kjömir í æðstu emb- ætti em því miður að minni hyggju ekki þeir kyndilberar sem líklegir eru til að tendra elda jafnaðarstefnunnar hjá því fólki sem bt'ður með óþreyju eftir því að langþráðir draumar rætist um samfylkingu sem byggir á jöfn- uði, réttlæti og frjálsræði.” Hrafn segir viðskilnaðinn við Al- þýðuflokkinn ekki vera sáran. „I Al- þýðuflokknum eru margir af mínum bestu vinum og samherjum og ég lít ekki svo á að ég sé að strika mig út af vinalistum þeirra þótt ég feli ein- hverjum formanni framkvæmda- stjómar flokksins að afmá nafn mitt af félagaskrám Alþýðuflokksins." ■ Sjúkraliðar með lausa samninga og ekkert ger- ist í viðræðum við við- semjendur Þetta er fokk - segir Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins „Það hefur sáralítið eða ekkert gerst, annað að það hafa verið fundir einu sinni í viku. Þetta er bara fokk,“ sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Islands, en sjúkraliðar settu fram kröfurgerð sína fyrir áramót og viðsemjendur þeirra vísuðu málinu til ríkissátta- semjara strax eftir áramótin. Á því hálfa ári sem liðið er hefur nánast ekkert gerst í viðræðum. „Við höfum verið að beijast gegn því að verða sett í þetta nýja launa- kerfi og nú virðist fyrst vera farið að athuga hvemig viðræðumar eiga að fara fram, það er árangurinn eftir þennan tíma. Það eru allir mtnir fé- lagsmenn ósáttir með hvemig málið hefur gengið og nú er allt útlit fyrir að ekki komist hreyfing á fyrr en í haust. Eg er bjartsýnismanneskja og vona að það rofi til og það verði rætt við okkur af alvöru. Þá getur margt gerst á stuttum tíma, það er ef vilji er til annars en bara að hittast." Nú lögðuð þið fram ykkar kröfur ( haust, hver hafa viðbrögðin verið við þeim? „Okkar viðsemjendur sendu deil- una til ríkissáttasemjara án þess að hafa farið yfir kröfugerðina, hvað þá að svara henni. Við höfðum ekki átt neinn fund með þeim þegar málið var sent til sáttasemjara. Það er búið að fara yfir kröfugerðina munnlega, en ekkert svar hefur fengist og í raun og veru vitum við ekki þeirra við- brögð. Þetta er ótrúlegt." Kristín segir óvíst hvaða áhrif vinnutímatilskipunin muni hafa og eins samningar sem búið er að gera við aðra stéttir innan heilbrigðiskerf- isins. ■ Síldveiðar íslendinga Júpíter með 750 milljónir Júpíter ÞH, frá Þórshöfn, var afla- hæst íslenskra síldveiðiskipa á nýaf- staðinni vertíð í norsk-íslensku sfld- inni. Júpíter fékk rúm átta þúsund tonn, næstur kom Víkingur frá Akra- nesi, með rúmlega 7.400 tonn. Verði settur kvóti miðað við veiðireynslu er ljóst að útgerðir þessara skipa fá til ráðstöfunar ótrúleg verðmæti. Þá er gert ráð fyrir að farið verði með síld- arkvótann eins og annan kvóta, það er óheft framsal og að útgerðir geti fénýtt sér hann að vild. Miðað við söluverð á sfldarkvóta má gera ráð fyrir að hlutur útgerðar Júpíters verði hátt í 750 milljónir króna, sem lætur nærri að vera árs- laun níuhundruð verkamanna. Ut- gerð Víkings á von á að fá kvóta að verðmæti um 675 milljóna króna. Næstu sfldarbátar eru Börkur NK með kvótaverðmæti upp á 620 millj- ónir og Hólmaborg SU með verð- mæti upp á 580 milljónir króna.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.