Alþýðublaðið - 08.07.1997, Síða 1
■ Fé fæst ekki til viðgerða
Ómetanleg handrit liggja
undir skemmdum
Ögmundur Helgason: Samanburöurinn við Dani er okkur í óhag.
„Sum ómetanleg handrit eru mork-
in og skemmd, fyrir utan öll þau eyð-
andi óhreiríindi og gróm sem hefur
sest á þau,“ segir Ögmundur Helga-
son forstöðumaður handritadeildar í
Þjóðarbókhlöðu, en handritadeildin
þar er framhald af Ámasafni og
geymir yngri handrit, marga ómetan-
lega dýrgripi.
„Þegar húsið var byggt var gert ráð
fyrir fullkominni viðgerðarstofu
handrita og gamalla bóka,“ segir Ög-
mundur. „Hún stendur nú fullbúin en
ónotuð þar sem fjármagn fæst ekki til
að ráða starfsmann. Sem dæmi um
verðmætt handrit sem liggur undir
skemmdum er afrit af Passíusálmum
sem Hallgrímur Pétursson skrifaði
með breytingum sínum og er það lík-
lega sú útgáfa sem hann vildi að væri
endanleg útgáfa sálmanna. Það er
varla hægt að handfjatla þetta handrit
líkt og mörg önnur sem svipað er
ástatt um en við höfum reynt að setja
handritið í umbúðir svo að það sé
hægt að fletta því.
Hart deilt
á Þórhildi
Það er rangt hjá Þórhildi Þor-
leifsdóttur, að Leikfélag fslands
hafi ekki óskað eftir samstarfi við
Leikfélag Reykjavíkur í sumar,
segir Karl Pétur Jónsson, mark-
aðsstjóri LÍ. Við óskuðum skrif-
lega eftir því, en fengum aldrei
nein svör af eða á.
Karl Pétur telur útilokað, að
Þórhildur hafi ekki vitað um bréf
þeirra. „Þegar komið er með verk-
efni af þessari stærðargráðu getur
það varla farið ffamhjá leikhús-
stjóranum."
Hann segir einnig, að Leikfé-
lagið hafi ekki tapað á samstarfi
við aðila utan þess í fyrra.
Sjá bls. 7
Fjölnir boðar
til Málfundar
Hið fjöruga menningartímarit
Fjölnir boðar til málfundar síðdeg-
is í dag kl. 17.30 í blaðsölutumi
Fjölnis að Bankastræti 8 í Reykja-
vík. Þar munu listfræðingamir
Halldór Bjöm Runólfsson og
Hannes Sigurðsson bítast á um
samband íslenskrar menningar við
umheiminn, en Halldór Bjöm mun
ræða hvemig undiriægjuháttur ís-
lenskrar intellígensíu gagnvart er-
lendum straumum og stefnum hef-
ur komið í veg fyrir að íslendingar
meti sína eigin menningu að verð-
leikum, en Hannes ntun hreyfa
andmælum og rekja sín sjónarmið.
Við höfum verið að taka við dýr-
gripum frá Danmörku, alveg full-
komlega viðgerðum, það má reikna
þann kostnað í tugum milljóna og það
sýnir hug Dana til þessara mála því
það var hvergi í samningum að þeir
ættu að skila þeim þannig. Það verð-
„Sumarlokanimar hafa bitnað á
deildinni, segir Reynir Tómas Geirs-
son prófessor við Kvennadeild
Landsspítalans. „Þær hafa aðallega
bitnað á Kvensjúkdómadeildinni en
við emm ekki með sama magn að-
gerða og áður. Við framkvæmum
„Það ætti ekki að vera neitt því til
fyrirstöðu að þjóðgarðurinn verði
formlega stofnaður á þessu ári,“ seg-
ir Sturla Böðvarsson alþingismaður
og formaður undirbúningsnefndar
um stofnun þjóðgarðs á utanverðu
Snæfellsnesi en nefndarmenn hafa
skilað tillögum sínum til Guðmundar
Bjamasonar umhverfisráðherra.
A sínum tíma samþykkti ríkis-
stjómin tillögu Össurar Skarphéðins-
ur að segja sem svo að samanburður
við Dani er okkur í óhag. Við sitjum
sjálf á haug af gömlum handritum og
bókum hér heima sem liggja undir
skemmdum og það fæst ekki fjárveit-
ing til að ráða einn starfsmann til við-
gerða. Flest öll okkar handrit hér á
bráðaaðgerðir en hinar verða að bíða
auk þess sem við þurfum að vera
ákveðnir í að útskrifa fólk.“
Önnur sængurkvennadeildin hefur
verið lokuð vegna breytinga á hús-
næðinu en sængurkonur hafa þess í
stað verið fluttar á dagdeildina. Sam-
sonar, þáverandi umhverfisráðherra,
um nýjan þjóðgarð á utanverðu Snæ-
fellsnesi. I kjölfarið skipaði Össur
Skarphéðinsson nefnd til að undirbúa
stofnun þjóðgarðs, og skipaði Sturlu
formann hennar. Nefndin hefur nú
útfært hugmyndir að þjóðgarðinum,
og í tillögu hennar er vísað í vemdar-
áætlun fyrir svæðið þar sem hug-
myndin að þjóðgarði er rökstudd.
Nefndin gerir ráð fyrir að strax verði
handritadeildinni þarfnast aðhlynn-
ingar auk þess sem urmull bóka ligg-
ur undir skemmdum. Meðan við vor-
um í sambýli við Þjóðskjalasafnið
gátu þeir stundum bjargað okkur en
nú nýtur þess ekki lengur við.“
kvæmt heimildum blaðsins hefur
konum verið bent á að leita eftir
heimaþjónustu ef þeim finnst þessi
tilhögun óþægileg, en það getur ver-
ið ónotalegt fyrir konur sem hafa
misst fóstur að vera á sömu hæð og
sængurkonur.
ráðinn þjóðgarðsvörður til að vinna
að framgangi málsins og höfuðstöðv-
ar garðsins verði við Gufuskála.
Þjóðgarðurinn sjálfur nái frá Dag-
verðará, og umlyki jökulinn að
Gufuskálalandi.
Össur Skarphéðinsson kvaðst
mjög ánægður með stöðu málsins.
„Utfærsla nefndarinnar er prýðileg,
og ég fagna sérstaklega tillögu henn-
ar um að þjóðgarðsvörður verði ráð-
Spellvirki
við Flosagjá
Tunnum og hnullungum
fleygt í gjár á Þingvöllum
Venjulega fleygja gestir smá-
mynt niður í Flosagjá á Þingvöll-
um, öðru nafni Peningagjá, og
óska sér. En aðfaranótt sunnudags
hefur óboðnum næturgesti ef til
vill fundist sem óskir hans hafi
ekki gengið nægilega eftir, því í
skjóli nætur gekk hann berserks-
gang á brúnni yfir gjána, og
fleygði þangað öllu lauslegu niður.
Meðal þess sem hann fleygði í
Flosagjá voru ruslatunnur sem
voru á brúnni, og gríðarstórir
hnullungar, sem notaðir eru til að
koma í veg fyrir bflaumferð um
gjána. ,T>að gerist því miður af og
til að aflraunamenn úr Reykjavík
koma hingað þegar skemmtistað-
imir loka og haga sér einsog villi-
menn,“ sagði Guðrún Kristins-
dóttir, landvörður.
Hún kvað þennan óþokkagest
hafa verið af „sterkari sortinni, því
steinamir sem hann henti af
brúnni em sérhver um 60 kflóa
þungir, og þarf að hefja á loft til að
fleygja þeim niður í gjána.“
Næturvakt er í þjóðgarðinum,
sem haldið er úti þangað til kyrrð
er komin i garðinn. „Það er ekki
hægt að brýna það nógsamlega
fyrir mönnum, hvað það er mikil-
vægt að ganga vel um,“ sagði
Guðrún.
Vændiskona
stefnir danska
skattinum
Tælensk vændiskona hefur
stefnt dönskum skattayfirvöldum
vegna þess að þau hafa farið fram
á að hún greiði skatt af tekjum sín-
um, sem nema um 850 þúsund
dönskum krónum, en það þénaði
hún á veitingahúsavændi á árun-
um 1993 til 1994. Lögfræðingur
hennar kallar kröfu yfirvalda óþol-
andi tvískinnung en dönsk lög
leggja ekki blátt bann við vændi
en banna hinsvegar að fólk hafi at-
vinnu af vændi. Tælenska konan
fæddist sem karlmaður en fór í
kynskiptingu skömmu eftir að hún
fluttist til Kaupmannahafnar. Lög-
fræðingur konunnar segir að yfir-
völd séu komin í hlutverk alfons-
ins í þessu máli.
inn strax í sumar. Þetta eru snöfur-
mannleg vinnubrögð."
„Málið er nú í höndum umhverfis-
ráðherra," segir Sturla, „en við gerð
unt það að tillögu okkar í nefndinn
að náttúruvernd ríkisins yrði falið at
vinna frekar að málinu. Það þarf ti
dæmis að semja við landeigendur ei
landið er þó að mestu leyti í eigu rík
isins og Snæfellsbæjar."
Ögmundur Helgason heldur á handriti sem Hallgrímur Pétursson ritaði eigin hendi en það hefur að
geyma Passfusálmana með ýmsum breytingum Hallgríms og er sjálfsagt sú útgáfa af sálmunum sem
Hallgrímur hefði viljað að væri notuð.
■ Sumarlokanir á Kvennadeild
Einungis bráðaaðgerðir
■ Þjóðgarðstillaga Össurar verður að veruleika
Stofnum þjóðgarðinn á þessu ári
- segir Sturla Böövarsson, formaöur undirbúningsnefndar. Þjóögaröurinn mun ná frá Dagveröará
umhverfis Jökul að Gufuskálum. Össur: Líst mjög vel á útfærslu nefndarinnar.