Alþýðublaðið - 09.07.1997, Side 1

Alþýðublaðið - 09.07.1997, Side 1
■ Hvað kom úr kafinu í Peningagjá á Þingvöllum? Gildum kreditkortum hent í stað brjóstahaldara Hinrik Pétursson, atvinnukafari, segir að menn séu farnir að óska sér út í reikning með því að fleygja kreditkortum í Pen- ingjagjá. Fyrir 30 árum fann hann hljómplötur, nærbuxur og brjóstahöld. Nú tínir hann upp kort af öllum toga. Peningaveski, útlend og innlend kreditkort, bankakort og símakort eru á meðal þess sem menn fleygja í Peningagjá á Þingvöllum, öðru nafni Flosagjá. Gamla krónan virðist því senn á útleið fyrir plasti og krít nýrra kynslóða, sem vilja þó engur síður en hinar eldri kaupa sér vild guðanna með því að fleygja á botn Peninga- gjár verðmætum, og óska sér um leið... Hinrik Pétursson, atvinnukafari, kafaði í Peningagjá fyrir réttum þijá- tíu árum og hreinsaði hvers konar drasl sem menn höfðu þá kastað með óskapeningunum á botn gjárinnar. Hann fór í samskonar hreinsunarleið- angur fyrir mánuði síðan. “Þetta var allt öðru vísi þegar ég fór í gamla daga. Þá komu gæjamir á köggunum úr Reykjavík, og aðal- málið var að hafa plötuspilara f bíl- unum: Það voru sérstakar litlar plöt- ur, sem dugðu bara í bílaspilarana. Strákamir sýndu dömunum hvað þeir vom svalir gæjar með því að fleygja plötunum í gjána. Það hljóta að hafa verið þúsundir slíkra platna, sem ég hirti upp fyrir 30 árum.“ „Ég fann líka á botni Peningagjár bæði brjóstahaldara og nærbuxur. Ég leyfi mér ekki þann munað að reyna að gera mér í hugarlund hvemig sá fatnaður komst þangað. En það var bersýnilega fjör hjá unga fólkinu." Þegar Hinrik kafaði aftur, fyrir réttum mánuði, blasti breytt neyslu- mynstur augljóslega við á botni gjár- innar. „Ég varð standandi hissa yfir því að nú fann ég urmul allskonar plastkorta. Það var grúi erlendra og innlendra símakorta, alls konar bankakort, debetkort og kreditkort, og meira að segja eitt í fullu gildi. Ég skilaði því inn, og fékk heilar 900 krónur f laun! Menn em greinilega famir að óska sér út á plast og krít.“ Ung grænlensk kona varð þakklát eftir síðustu köfun Hinriks. „Ég fann veski, sem ung kona frá Grænlandi hafði misst í gjána. Það var fullt af peningum, svo því hafði bersýnilega ekki verið stolið. Ég vona það hafi að lokum komist í hendur hennar." í gær var Hinrik aftur komin í Pen- ingagjána, í þetta sinn til að ná upp fjómm 60 kílóa hnullungum, sem mmmungar höfðu fleygt í hana að næturlagi. Dýr myndi frúin öll Cherie Blair forsætisráðherra- frú Breta eyddi meira en tvöþús- und pundum í hárgreiðslu er hún tók hárgreiðslumeistarann með til Bandaríkjanna vegna fundar helstu leiðtoga heims í Denver í síðasta mánuði. Andre Suard heitir hinn ómissandi hárgreiðslumaður sem vinnur undir venjulegum kring- umstæðum á stofu miðsvæðis í London. Hann flaug sérstaklega á kostnað frúarinnar til Denver þar sem hann hreiðraði um sig á Mariott hótelinu til að geta haft hendur í hári frúarinnar tvisvar á dag. Talsmaður ríkisstjómarinnar lýsti því yfir á laugardag að reikn- ingur Andre Suard, þar á meðal hótelreikningur, hefði ekki verið greiddur af hinu opinbera. Blair hjónin reiddu sjálf fram féð. Dýrgripir skemmast Borgarfirði eystra, þar sem hún hafði myndað huldufólksslóðir. In-Ah Lee sagðist þegar hafa hitt þijú huldu- fólksvitni, og var á leið í viðtal við Erlu Stefánsdóttur, sem líklega er einn þekktasti tengill íslands við hul- iðsheima. „Okkur Þjóðveijum finnst ótrúlegt að í nútíma samfélagi skuli vera til fólk, sem bindur persónulega vináttu við huldufólk. Þetta finnst okkur í senn heillandi, undarlegt og áhugavert." Alfar og huidufólk flutt út Sextán erlendar sjónvarpsstöðvar komu í fyrra til að gera efni um huliðsheima íslands. Hvorki meira né minna en sextán erlendar sjónvarpsstöðvar komu hingað til lands í fyrra til að taka upp efni um álfa og huldufólk. Nú þegar eru sjö erlendar stöðvar búnar að boða komu sína í gegnum Álfaskól- ann, segir Magnús H. Skarphéðins- son, skólastjóri, en Álfaskólinn er af- sprengi Sálarannsóknaskólans, sem hann veitir forstöðu. „Þetta er gífur- leg landkynning, þessir þættir em sýndir um alla Evrópu, og em vin- sælir,“ segir Magnús. Að sögn hans em álfar og huldu- fólk orðnir útflutningsvara. Auk tekna sem spretta af komu sjón- varpsliða, sem sum em fjölmenn og dvelja lengi við myndatökur, hefur Álfaskólinn staðið um skeið fyrir ferðum um slóðir álfa og huldufólks í Reykjvík og nágrenni. „Við emm með þrjár ferðir í viku. Það em næst- um eingöngu útlendingar, við aug- lýsum ekkert, en samt em 5-10 manns í hverri ferð. Túrinn kostar 2,900 og við lofum að sannfæra efa- semdarmenn um tilvist huldufólks- I gær var statt á vegum Álfaskól- ans tökulið frá norðurþýsku sjón- varpsstöðinni Vox. Sjónvarpsmenn tóku þá viðtal við Jónínu Guðbjörgu Bjömsdóttur á Kjóavöllum. Hún er ein af mörgum fslendingum sem hef- ur hitt huldufólk, hefur einnig heim- sótt það í híbýli sín, og þegið af því veitingar. „Þjóðveijar em afar spenntir íyrir efni af þessu tagi,“ sagði tökustjór- inn, In-Ah Lee. Hún var nýkomin frá segir Rannver Hannesson „Við stöndum mörgum ljósámm á eftir nágrannaþjóðunum í öllu for- vamarstarfi," segir Rannver Hannes- son forvörður sem var til ráðgjafar þegar viðgerðarstofa handritadeildar Þjóðarbókhlöðu var byggð en eins og kom fram í fréttum Alþýðublaðsins í gær liggja margir ómetanlegir dýr- gripir undir skemmdum vegna þess að ekki fæst fé til að ráða viðgerðar- mann. „Það er illa staðið að þessu hjá öll- um söfnum," segir Rannver. „For- vamarpólitík er nánast ekki til. Nú hef ég unnið hjá flestum borgar og ríkissöfnunum og get fullyrt það. Er- lendis er veitt miklu fé í rannsóknir og þróun á aðferðum til viðgerða en hér hefur ekkert gerst síðustu tvo til þijá áratugi. Það ber öllum söfnum að hafa menn sem hafa þekkingu á þessum efnum, hvemig eigi að ganga frá þeim, líka nýjum bókum, umbúðum og efnum til geymslu sem þarf að fylgjast með. Það em afar brýn verkefni sem blasa við, ég hef verið á þjóðdeild- inni í sérverkefni við viðgerðir á gömlum kortum sem var verið að skanna inn á intemetið. Það var grip- ið inn í strax og hægt var en þau em stórskemmd. Þau hefðu getað verið ónýt, það var spuming um nokkura mánuði.“ ■ Pólitísk átök í Hafnarfirði Líkur á stjórn A-flokkanna Meirihlutinn hangir á bláþræði. Úrslitafundur boðaður næsta þriðjudag. Alþýðubandalagið sam- þykkir Ingvar sem bæjarstjóra A- flokkanna, slíti Alþýðuflokkurinn núverandi samstarfi. Blaðamaður fíflar pólitíkus Stjómmálamenn mega hugsa sig um tvisvar áður en þeir fara í meið- yrðamál við blaðamenn og aðra sem seilast í myrkviði tungumáls- ins til að finna yfir þá heppileg lýs- ingarorð. Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði í síðustu viku að það séu mannréttindi að fá að kalla stjómmálamenn fffl, ef að þeir ögra til þess með hegðun sinni. Það er í fyrsta sinn sem slíkt mál kemur til kasta dómstólsins. Það var austurrískur blaðamaður sem höfðaði málið eftir að hann kallaði hægriöfgmann fífl og var dæmdur fyrir meiðyrði. Meirihluti bæjarstjómar í Hafnar- firði, sem samanstendur af Alþýðu- flokknum og hluta Sjálfstæðisflokks undir forystu Jóhanns Gunnars Berg- þórssonar, verkfræðings, hangir á bláþræði. Framtíð hans skýrist að líkindum á fundi fullrúaráðs Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði, sem verður næstkomandi þriðjudag. Vaxandi andstaða virðist innan Alþýðuflokks- ins um að halda samstarfinu við Jó- hann Gunnar áfram. Óvissa var um hvað tæki við, ef núverandi samstarf slitnaði, og var helst rætt um minni- hlutastjóm Alþýðuflokksins, sem Al- þýðubandalag verði falli. Heimildir úr innsta hring Alþýðu- bandalagsins í Firðinum staðfestu hinsvegar í gær, að svo fremi Al- þýðuflokkurinn ryfi núverandi sam- starf væri fátt til fyrirstöðu að nýr meirihluti A-flokkanna tæki til starfa innan mjög skamms tíma. Alþýðu- bandalagið myndi þá sætta sig við að Ingvar Viktorsson yrði áfram bæjar- stjóri. Komið sem fyllti mæli þeirra sem era andvígir núverandi meirihluta vom kaup Jóhanns G. Bergþórssonar á húseigninni að Strandgötu 28, sem bærinn hafði að sögn áhuga á að kaupa. Áhrifamenn í forystu flokks- ins í Hafnarfirði segja hinsvegar að það mál eitt og sér skipti ekki höfúð- máli, heldur sé að bijótast út lang- vinn gremja og óánægja með sam- starfið. Alþýðubandalagið hafði áður sagt, að ekki kæmi til greina að ræða þátt- töku í nýjum meiríhluta á meðan nú- verandi meirihluti væri enn við lýði. Sömuleiðis var talið, að innan flokksins væri andstaða við að nú- verandi bæjarstjóri, Ingvar Viktors- son, héldi þeirri stöðu áfram, en gmnnt var því góða milli hans og Magnúsar Jóns Ámasonar þegar Al- þýðubandalagið gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn um stjóm bæjarins. Svo er ekki lengur, sam- kvæmt mjög áreiðanlegum heimild- um Alþýðublaðsins í gær.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.