Alþýðublaðið - 09.07.1997, Side 4

Alþýðublaðið - 09.07.1997, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JULI 1997 erlent -Æ^ögreglan í Austur Evrópu hefur ekki roð við skipulögðum glæpasam- tökum, en löggur einræðisríkjanna hafa ekki langa reynslu af mafíósum. Nú hefur Bandaríska Alríkislögreglan sett upp skóla í Austur Evrópu. Það er föstudagseftirmiðdagur í Búdapest, syfjulegur tími þar sem verkamennimir hætta snemma til að búa sig undir helgina, sólin skín á Danube og ferðamennimir spóka sig með myndavélar á stóm Hapsburg torgunum, aðrir fá sér kaffi eða bjór fyrir framan kaffihúsin. I bönkum miðbæjarins er verið að telja innkomu dagsins. Hinu afslapp- aða andrúmslofti í einum banka er skyndilega ógnað, þrír vopnaðir menn ryðjast inn skömmu fyrir lok- un. Þeir em með grímur fyrir andlit- inu, veifa byssun og öskra: - Látið okkur hafa helvítis pening- ana. Þeir skipa öllum að leggjast á gólf- ið. Allir hlýða. Einn úr hópnum þrífur poka, hleypur bak við gjaldkerastúk- umar og fyllir hann af peningum. Nokkrar konur æpa, flestar liggja grafkyrrar. Því næst hlaupa þeir út og taka með sér kvenkyns gísl úr hópi viðskiptamannana. Þeir hlæja og óska hver öðmm til hamingju meðan þeir draga skelfingu lostna konuna út í bíl fyrir utan bankann. Skammt frá bankanum em 29 lög- reglumenn og ein lögreglukona, þau hafa ekki hugmynd um ránið. Þau em nemendur við nýjan skóla Banda- rísku alríkislögreglunnar, útibú henn- ar í Austur - Evrópu. Löggumar sem em allar frá Póllandi og Úkraníu, em staddar í kennslustund um yfirheyrslu og viðtalstækni, sem þrír bandarískir fíkniefnalögreglufulltrúar stjóma en þeir starfa í sérstakri deild á vegum ríkisins sem á að halda eiturlyfjum ffá Bandaríkjunum og stjóma aðgerðum þar að lútandi. Þ au vakna við hringingu klukkan fimm næsta morgun. Kennaramir segja þeim að bankinn hafi verið rændur og ungverska lögreglan hafi beðið um hjálp frá skólanum. Þeir fá þær upplýsingar að ræningjamir séu álitnir vera Bandaríkjamenn með sambönd í Ungverjalandi. Nemend- umir fara á staðinn, klæddir skóla- búningunum, ljósum buxum og póló- skyrtum. Það sem þeir ekki vita er að bankaránið var sviðsett æfing alríkis- lögreglunnar, ræningjamir voru leik- arar, byssumar tómar og peningunum og gíslunum var skilað skömmu eftir ránið. En nú reynir á hæfni nemend- anna. Þ ÆTess essi lögregluakademía, sem er betur þekkt undir nafninu Inter- national Law Enforcement Academy, hefur hægt og hljótt verið að þjálfa austur- evrópska lögreglumenn, í þeirri von að betri löggæsla muni skapa betri samfélög þar sem Banda- ríkin hafi meiri áhrif. Búdapest var kjörin staðsetning, ekki aðeins hefur hún bestu samgöngur í vestur, á ísett bankarán cislögreglumanna idapest. Eitt helsta vandamál kennarana frá Alríkislögreglunni er að undir kommúnistastjórninni var lögreglan notuð sem félagslegt kúgunartæki. Orð hennar voru aldrei dregin í efa og hugmyndir um Vestrænt lýðræði og borgarleg réttindi voru ekki til.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.