Alþýðublaðið - 09.07.1997, Side 7

Alþýðublaðið - 09.07.1997, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Ungur Vestmannaeyingur í starfskynningu hjá Alþingi Þingmenn alveg eins ogfólk erflest í blaðinu Dagskrá í Vestmannaeyj- um birtist á dögunum bráðskemmti- legur pistill um störf Alþingismanna eftir Ólaf Jóhann Borgþórsson, sem nýlega útskrifaðist úr 10. bekk Bama- skólans í Vestmannaeyjum. Ólafur Jóhann brá sér í starfskynn- ingu á Alþingi og naut þar leiðsagnar Áma Johnsen, þingmanns Vest- mannaeyja. Á Alþingi sat Ólafur Jó- hann nefndarfundi og þótti það hin merkasta h'fsreynsla. „Fyrst fór ég á nefndarfundi og hef ég þar brotið blað í sögu Alþingis því að ég er fyrsti nemandinn sem sit nefndarfundi og er það Áma að þakka en einnig þeim Sigríði Önnu Þórðar- dóttur og Einari K. Guðfmnssyni sem em formenn nefndanna,“ segir Ólafur Jóhann í grein sinni, og heldur áffam: „Það er alveg ótrúlega mikil vinna að vinna sem alþingismaður og þá er ég ekki að tala um setuna í alþingishús- inu heldur alla vinnu sem felst í því að sitja í nefnd, þetta er mikið meira en flestir halda... Svo sat ég þingfundi og enn og aftur var komið aftan að mér í sambandi við það hve fáir þingmenn sitja í salnum, en það er ekki alveg að marka vegna þess að allir þingmenn hafa sjónvörp inni á skrifstofum sín- «( um. Ólafur Jóhann segir frá kynnum sínum af þingmönnum og þykir hon- um Ámi Johnsen bera af öðmm mönnum sem þar em við störf: „Ámi Johnsen kynnti mig fyrir flestum sem „Sá sem ég kynntist best á Alþingi var hann Arni Johnsen og er hann miklu hressari og skemmtilegri en flestir aðrir menn sem ég þekki. Hann kenndi mér margt.“ sitja á þingi og þótti mér það nú ekki leiðinlegt að hitta þessa þekktu menn sem maður sér á hveiju kvöldi í sjón- varpinu svo alvarlegir að manni er það næst að fara að grenja. En raunin er sú að þetta em alveg hreint bestu rnenn og það ótrúlega er að þeir em flestir alveg eins og fólk er flest. En sá sem ég kynntist best á Alþingi var hann Ami Johnsen og er hann miklu hressari og skemmtilegri en flestir aðrir menn sem ég þekki. Hann kenndi mér margt...“ Ólafur Jóhann telur það koma sér illa fyrir þingmenn að einungis sé kosið til Alþingis á fjögurra ára fresti og segir: „Það er mikill ókostur fyrir sjálfa þingmennina að kosið sé með svona stuttu millibili, því þeir vita ekki um hvort þeir verði kosnir á þing um næstu kosningar, tel ég það vera helsta ókostinn við starfið." Ólafur Jóhann telur kostina þó meiri en gall- ana. „Starfið er mjög fjölbreytt og em oft mjög skemmtilegar ræður sem fluttar em á Alþingi... Kaup og kjör em kannski ekki mikil en auðvitað fer það eftir því hver viðmiðunin er. Mið- að við alla þá vinnu sem alþingismenn leggja á sig til að stjóma landinu em kjörin þau sem áður sagði. Ráðherrar fá hins vegar mikil friðindi, sem mér Ólafur Jóhantt um alþingismenn: „En raunin er su að þetta eru alveg hreint bestu menn og það ótrulega er að þeir eru flestir alveg eins og fólk er flest. “ ■ Haneshjónin verða ekki framseld samkvæmt dómi Héraðsdóms - segir Donald Hanes en úrskurðurinn var lesinn upp á íslensku. „Við vomm rnjög ringluð þegar dóm- arinn las upp úrskurðinn því það var ekki túlkur að þessu sinni og við vissum ekki niðurstöðuna fyrr en við vomm komin út úr dómssalnum," segir Donald Hanes en Jögmaður Haneshjónanna hefur lýst því yfir að hjónin muni reyna að ná sam- komulagi við bandarísk stjómvöld, ef þau verði ekki framseld þýði það jafn- framt að þeim verði ekki vísað úr landi. Að sjálfsögðu emm við ofsalega ánægð og einkum og sérílagi að vita það að þetta fer ekki sjálfkrafa fyrir Hæstarétt. Við teljum þó að bandaríska sendiráðið muni reyna að hafa áhrif á að þessu verði áfrýjað. Ákæmvaldið mun taka ákvörðun um það á næstu dögum hvort niðurstöð- unni verði áfrýjað. vorum ringluð ánægð er kunnugt um en ég ætla ekki að telja upp hér.“ Að lokum fer Ólafur Jóhann fögr- um orðum um starfsfólk Alþingis: „Á Alþingi vinnur alls konar fólk, en allt er það mjög kurteist hvort sem það er í dyravörslu, mötuneyti eða þingmenn og ráðherrar. Það var virkilega gaman að tala við fólkið og það vinnur greinilega vegna þess að það hefur áhuga á því sem það er að gera og ég á þeim bestu þakkir fyrir og þau hjálp- uðu mér mikið og gerðu starfsfræðsl- una mjög skemmtilega." Úr alfaralQið Glæpsamlegar skooanir borgarstjórans Cathérine Mégret borgarstjóri í Vitrolles í Frakklandi á yfir höfði sér eins árs fangelsisdóm og ríf- lega 3.000.000 milljóna króna sekt fyrir ummæli sem höfð voru eftir henni í þýska dagblaðinu Berliner Zeitung í vor. Cathérine er ákærð fyrir hatursfull orð sín í garð út- lendinga sem 587 sækjendur telja að ýti undir kynþáttahamr og kyn- þáttamisrétti. Mál borgarstjórans var tekið fyrir rétt í Aix-en- Provence 30.júní síðastliðinn. Þegar Mégret hlustaði á upp- töku af viðtalinu sem birtist í þýska dagblaðinu við réttarhöldin sagði hún: „Jú, ég kannast við að þetta sé mín rödd... Ég er ekki orð- in minnislaus, en í dag get ég ekki fullyrt að ég hafi sagt þetta. Enda eru liðnir margir mánuðir frá við- talinu. Ég er búin að gleyma því hvað ég sagði [...] það er ekkert sem sannar að innihaldi þessarar segulbandsspólu hafi ekki verið breytt." Orðin sem höfð voru eftir Cathérine í Berliner-Zeitung og hún er ákærð fyrir hljómuðu á þessa leið: „Kynþættir eru mis- munandi... Munurinn liggur í gen- unum. Þeir innflytjendur sem maður hittir haga sér eins og þeir séu heima hjá sér... Þeir hugsa eins og nýlenduherrar. Þeir eru hér að- eins peninganna vegna.“ Tvö hundruð öryggislögreglu- menn stóðu vörð fyrir framan dómshúsið í Aix meðan á réttar- höldunum stóð, enda yfir fimm hundruð áheyrendur samankomnir í réttarsalnum. Um helmingur þeirra voru stuðningsmenn Mégret og Þjóðemisfylkingarinnar. Þegar stutt hlé var gert á vitnaleiðslum fór hin ákærða úr réttarsalnum í fylgd með eiginmanni sínum, Bru- no Mégret varaformanni Þjóðem- isfylkingarinnar, og ávarpaði stuðningsmenn sína: „Ég fullvissa ykkur um að við gemm allt sem í okkar valdi stendur til að ná fram sigri hins góða yfir hinu illa.“ Og eiginmaðurinn bætti við: „Það er ekkert á þessari kasettu sem ekki samræmist stefnuskrá Þjóðemis- fylkingarinnar." Cathérine náði kjör borgarstjóra þegar hún fór í framboð sem lepp- ur eiginmanns síns í sveitastjóma- kosningum í Vitrolles í vetur og sigraði. Bmno Mégret var í fram- boðsstraffi um þær mundir en hann er einn aðal áróðursmeistari Þjóðemisfylkingarinnar. Formað- ur fylkingarinnar, Jean-Marie Le Pen, hefur illan bifur á þessum unga og metnaðargjama manni, sem hikaði ekki við að tala um „galdraofsóknir" áður en réttar- höldin í máli eiginkonu hans hófust. Le Pen vill vera einráður í sínum flokki og líkar illa við Mé- gret. Það var honum mikill léttir að hann skyldi ekki ná þingkosn- ingu í vor jafnvel þótt Fylkingin hafi ekki fengið nema einn þing- mann, Jean-Marie Le Chevallier, borgarstjóra í Toulon. Lögmaður samtakanna SOS- kynþáttahatur (SOS Racisme) Ala- in Lhote sem tók til máls eftir rétt- arhlé í máli Mégret kaus að beina athygli kviðdómenda að vitnis- burði Cathérine; „skömmustuleg- um kynþáttahatara sem hefur ekki einu hugrekki til að standa við orð sín.“ Annar sækjandi, Alain Molla, fór fram á einn franka í skaða- og miskabætur. „Þessi réttarhöld em sögulegur atburður, enda hin fyrstu sinnar tegundar í Frakk- landi. Um leið em þau mikilvæg því það er áríðandi að bregðast við...; kynþátta- og útlendingahat- ur em ekki skoðanir sem á að vemda, þær eru glæpsamlegar." Sækjandinn hafði varla lokið orð- um sínunt þegar truflun varð á framgangi réttarhaldanna. Einn dómaranna í málinu hafði tekið eftir því að einn af fjómm verjend- um Cathérine Mégret var að taka réttarhöldin upp á segulband, en slíkt er stranglega bannað með lögum. Veijandinn var samstundis ákærður fyrir brotið og færður til yfirheyrslu af dómslögreglu. Ekki er búið að dæma í máli Cathérine Mégret, en saksóknari fór fram á að borgarstjórinn í Vitrolles yrði settur í kjörbann.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.