Alþýðublaðið - 09.07.1997, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Ungur Vestmannaeyingur í starfskynningu hjá Alþingi
Þingmenn alveg
eins ogfólk erflest
í blaðinu Dagskrá í Vestmannaeyj-
um birtist á dögunum bráðskemmti-
legur pistill um störf Alþingismanna
eftir Ólaf Jóhann Borgþórsson, sem
nýlega útskrifaðist úr 10. bekk Bama-
skólans í Vestmannaeyjum.
Ólafur Jóhann brá sér í starfskynn-
ingu á Alþingi og naut þar leiðsagnar
Áma Johnsen, þingmanns Vest-
mannaeyja. Á Alþingi sat Ólafur Jó-
hann nefndarfundi og þótti það hin
merkasta h'fsreynsla.
„Fyrst fór ég á nefndarfundi og hef
ég þar brotið blað í sögu Alþingis því
að ég er fyrsti nemandinn sem sit
nefndarfundi og er það Áma að þakka
en einnig þeim Sigríði Önnu Þórðar-
dóttur og Einari K. Guðfmnssyni sem
em formenn nefndanna,“ segir Ólafur
Jóhann í grein sinni, og heldur áffam:
„Það er alveg ótrúlega mikil vinna að
vinna sem alþingismaður og þá er ég
ekki að tala um setuna í alþingishús-
inu heldur alla vinnu sem felst í því að
sitja í nefnd, þetta er mikið meira en
flestir halda... Svo sat ég þingfundi og
enn og aftur var komið aftan að mér í
sambandi við það hve fáir þingmenn
sitja í salnum, en það er ekki alveg að
marka vegna þess að allir þingmenn
hafa sjónvörp inni á skrifstofum sín-
«(
um.
Ólafur Jóhann segir frá kynnum
sínum af þingmönnum og þykir hon-
um Ámi Johnsen bera af öðmm
mönnum sem þar em við störf: „Ámi
Johnsen kynnti mig fyrir flestum sem
„Sá sem ég kynntist best á Alþingi
var hann Arni Johnsen og er hann
miklu hressari og skemmtilegri en
flestir aðrir menn sem ég þekki.
Hann kenndi mér margt.“
sitja á þingi og þótti mér það nú ekki
leiðinlegt að hitta þessa þekktu menn
sem maður sér á hveiju kvöldi í sjón-
varpinu svo alvarlegir að manni er
það næst að fara að grenja. En raunin
er sú að þetta em alveg hreint bestu
rnenn og það ótrúlega er að þeir em
flestir alveg eins og fólk er flest. En sá
sem ég kynntist best á Alþingi var
hann Ami Johnsen og er hann miklu
hressari og skemmtilegri en flestir
aðrir menn sem ég þekki. Hann
kenndi mér margt...“
Ólafur Jóhann telur það koma sér
illa fyrir þingmenn að einungis sé
kosið til Alþingis á fjögurra ára fresti
og segir: „Það er mikill ókostur fyrir
sjálfa þingmennina að kosið sé með
svona stuttu millibili, því þeir vita
ekki um hvort þeir verði kosnir á þing
um næstu kosningar, tel ég það vera
helsta ókostinn við starfið." Ólafur
Jóhann telur kostina þó meiri en gall-
ana. „Starfið er mjög fjölbreytt og em
oft mjög skemmtilegar ræður sem
fluttar em á Alþingi... Kaup og kjör
em kannski ekki mikil en auðvitað fer
það eftir því hver viðmiðunin er. Mið-
að við alla þá vinnu sem alþingismenn
leggja á sig til að stjóma landinu em
kjörin þau sem áður sagði. Ráðherrar
fá hins vegar mikil friðindi, sem mér
Ólafur Jóhantt um alþingismenn:
„En raunin er su að þetta eru alveg hreint
bestu menn og það ótrulega er að þeir eru
flestir alveg eins og fólk er flest. “
■ Haneshjónin verða ekki framseld samkvæmt
dómi Héraðsdóms
- segir Donald Hanes
en úrskurðurinn var
lesinn upp á íslensku.
„Við vomm rnjög ringluð þegar dóm-
arinn las upp úrskurðinn því það var ekki
túlkur að þessu sinni og við vissum ekki
niðurstöðuna fyrr en við vomm komin út
úr dómssalnum," segir Donald Hanes en
Jögmaður Haneshjónanna hefur lýst því
yfir að hjónin muni reyna að ná sam-
komulagi við bandarísk stjómvöld, ef
þau verði ekki framseld þýði það jafn-
framt að þeim verði ekki vísað úr landi.
Að sjálfsögðu emm við ofsalega ánægð
og einkum og sérílagi að vita það að
þetta fer ekki sjálfkrafa fyrir Hæstarétt.
Við teljum þó að bandaríska sendiráðið
muni reyna að hafa áhrif á að þessu verði
áfrýjað. Ákæmvaldið mun taka ákvörðun
um það á næstu dögum hvort niðurstöð-
unni verði áfrýjað.
vorum
ringluð
ánægð
er kunnugt um en ég ætla ekki að telja
upp hér.“
Að lokum fer Ólafur Jóhann fögr-
um orðum um starfsfólk Alþingis: „Á
Alþingi vinnur alls konar fólk, en allt
er það mjög kurteist hvort sem það er
í dyravörslu, mötuneyti eða þingmenn
og ráðherrar. Það var virkilega gaman
að tala við fólkið og það vinnur
greinilega vegna þess að það hefur
áhuga á því sem það er að gera og ég
á þeim bestu þakkir fyrir og þau hjálp-
uðu mér mikið og gerðu starfsfræðsl-
una mjög skemmtilega."
Úr alfaralQið
Glæpsamlegar
skooanir
borgarstjórans
Cathérine Mégret borgarstjóri í
Vitrolles í Frakklandi á yfir höfði
sér eins árs fangelsisdóm og ríf-
lega 3.000.000 milljóna króna sekt
fyrir ummæli sem höfð voru eftir
henni í þýska dagblaðinu Berliner
Zeitung í vor. Cathérine er ákærð
fyrir hatursfull orð sín í garð út-
lendinga sem 587 sækjendur telja
að ýti undir kynþáttahamr og kyn-
þáttamisrétti. Mál borgarstjórans
var tekið fyrir rétt í Aix-en-
Provence 30.júní síðastliðinn.
Þegar Mégret hlustaði á upp-
töku af viðtalinu sem birtist í
þýska dagblaðinu við réttarhöldin
sagði hún: „Jú, ég kannast við að
þetta sé mín rödd... Ég er ekki orð-
in minnislaus, en í dag get ég ekki
fullyrt að ég hafi sagt þetta. Enda
eru liðnir margir mánuðir frá við-
talinu. Ég er búin að gleyma því
hvað ég sagði [...] það er ekkert
sem sannar að innihaldi þessarar
segulbandsspólu hafi ekki verið
breytt." Orðin sem höfð voru eftir
Cathérine í Berliner-Zeitung og
hún er ákærð fyrir hljómuðu á
þessa leið: „Kynþættir eru mis-
munandi... Munurinn liggur í gen-
unum. Þeir innflytjendur sem
maður hittir haga sér eins og þeir
séu heima hjá sér... Þeir hugsa eins
og nýlenduherrar. Þeir eru hér að-
eins peninganna vegna.“
Tvö hundruð öryggislögreglu-
menn stóðu vörð fyrir framan
dómshúsið í Aix meðan á réttar-
höldunum stóð, enda yfir fimm
hundruð áheyrendur samankomnir
í réttarsalnum. Um helmingur
þeirra voru stuðningsmenn Mégret
og Þjóðemisfylkingarinnar. Þegar
stutt hlé var gert á vitnaleiðslum
fór hin ákærða úr réttarsalnum í
fylgd með eiginmanni sínum, Bru-
no Mégret varaformanni Þjóðem-
isfylkingarinnar, og ávarpaði
stuðningsmenn sína: „Ég fullvissa
ykkur um að við gemm allt sem í
okkar valdi stendur til að ná fram
sigri hins góða yfir hinu illa.“ Og
eiginmaðurinn bætti við: „Það er
ekkert á þessari kasettu sem ekki
samræmist stefnuskrá Þjóðemis-
fylkingarinnar."
Cathérine náði kjör borgarstjóra
þegar hún fór í framboð sem lepp-
ur eiginmanns síns í sveitastjóma-
kosningum í Vitrolles í vetur og
sigraði. Bmno Mégret var í fram-
boðsstraffi um þær mundir en
hann er einn aðal áróðursmeistari
Þjóðemisfylkingarinnar. Formað-
ur fylkingarinnar, Jean-Marie Le
Pen, hefur illan bifur á þessum
unga og metnaðargjama manni,
sem hikaði ekki við að tala um
„galdraofsóknir" áður en réttar-
höldin í máli eiginkonu hans
hófust. Le Pen vill vera einráður í
sínum flokki og líkar illa við Mé-
gret. Það var honum mikill léttir
að hann skyldi ekki ná þingkosn-
ingu í vor jafnvel þótt Fylkingin
hafi ekki fengið nema einn þing-
mann, Jean-Marie Le Chevallier,
borgarstjóra í Toulon.
Lögmaður samtakanna SOS-
kynþáttahatur (SOS Racisme) Ala-
in Lhote sem tók til máls eftir rétt-
arhlé í máli Mégret kaus að beina
athygli kviðdómenda að vitnis-
burði Cathérine; „skömmustuleg-
um kynþáttahatara sem hefur ekki
einu hugrekki til að standa við orð
sín.“ Annar sækjandi, Alain Molla,
fór fram á einn franka í skaða- og
miskabætur. „Þessi réttarhöld em
sögulegur atburður, enda hin
fyrstu sinnar tegundar í Frakk-
landi. Um leið em þau mikilvæg
því það er áríðandi að bregðast
við...; kynþátta- og útlendingahat-
ur em ekki skoðanir sem á að
vemda, þær eru glæpsamlegar."
Sækjandinn hafði varla lokið orð-
um sínunt þegar truflun varð á
framgangi réttarhaldanna. Einn
dómaranna í málinu hafði tekið
eftir því að einn af fjómm verjend-
um Cathérine Mégret var að taka
réttarhöldin upp á segulband, en
slíkt er stranglega bannað með
lögum. Veijandinn var samstundis
ákærður fyrir brotið og færður til
yfirheyrslu af dómslögreglu. Ekki
er búið að dæma í máli Cathérine
Mégret, en saksóknari fór fram á
að borgarstjórinn í Vitrolles yrði
settur í kjörbann.