Alþýðublaðið - 15.07.1997, Side 1
T
■ Hannes Hólmsteinn Gissurarson varö æfur þegar honum var
hafnað sem viömælenda í umræöur á Rás 2. Jón Baldvin vildi
ekki skiptast á skoöunum við Hannes, sem klagaði í útvarps-
stjóra og Markús Örn. Hannes Hólmsteinn kemur víða við. Er
aftur orðinn pistlahöfundur í útvarpinu, en það er ekki allt
Verður með þætti
í sjónvarpi fram
að aldamótum
- þar sem viðfangsefnið verður 20. öldin
„Hann er að vinna fyrir okkur, eða
réttara sagt fyrirtæki sem heitir Alvís
og Hannes Hólmsteinn mun koma að
þessum þáttum," sagði Helga Rein-
hardsdóttir, á skrifstofu framkvæmda-
stjóra Ríkissjónvarpsins, en skrifstof-
an hefur falið Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni ásamt fleirum, að gera
átta þátta röð um ísland á 20. öldinni.
- Nú erþað skrifstofa framkvcemda-
stjóra sem rœður harm til verksins en
ekki dagskrárstjóri, en er þaðfátítt að
skrifstofa framkvœmdastjóra ráði og
ákveði dagskrá sjónvarpsins?
„Það er ekki óalgengt þegar er ver-
ið að gera eitthvað sem við köllunt
sérstaka viðburði, stór verkefni sem
taka langan tíma. Þá þarf dagskrár-
stjóri ekki að greiða þetta af sínu
rekstrarfé. Hann er meira með dægur-
málahliðina. Þetta er verkefni sem er
gert á fleiri árum.“
- En er þetta fjárfrekt verkefni?
„Það held ég ekki. Eg vil ekki ræða
hvað við borgum fyrir þetta, en það er
ekki dýrara en við borgum fyrir svona
þætti.“
Þættimir verða átta og verða sýndir
til aldamóta. Reiknað er með að tveir
þættir verði sýndir á þessu ári, tveir á
næsta, tveir 1999 og tveir árið 2000.
Helga Reinhardsdóttir segir að ekki
hafi fleirum verið gefinn kostur á að
gera þessa þætti.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
kemur víðar við. Hann hefur kvartað
við útvarpsstjóra og Markús Öm Ant-
onsson vegna þess að hann fékk ekki
að vera með í umræðum á Rás 2.
Forsaga málsins er sú að ákveðið
var að hafa umræður urn vinstri
sveiflu í Evrópu. Helsi valkosturinn
var að fá Jón Baldvin Hannibalsson
og Geir Haarde til að skiptast á skoð-
unum. Jón Baldvin samþykkti að vera
með en ekki Geir. Þá var leitað að öðr-
um manni og eftir nokkra leit var
ákveðið að biðja Hannes Hólmstein
að mæta Jóni. Hann samþykkti það en
Jón tók ekki í mál að ræða þetta mál
við Hannes Hólmstein. Ur varð að Jón
Baldvin og Ámi M. Mathiesen skipt-
ust á skoðununt. Hannes Hólmsteinn
brást illa við, sætti sig ekki við að hafa
verið hafnað. Hann kvartaði sem fyrr
segir vegna þessa. Pétur Guðfmnsson
útvarpsstjóri sagði í samtali við Al-
þýðublaðið kannast við að Hannes
hafi ekki verið sáttur og að hann hafi
komið athugasemdum á framfæri, þó
einungis munnlega. Markús Öm Ant-
onsson brást við erindi Hannesar og
leitaði skýringa hjá starfsfólki Rásar
2.
Sigurður G. Tómasson, dagskrár-
stjóri Rásar 2, réð Hannes Hólmstein
sem pistlahöfund. Kristínu Ólafsdótt-
ur ritstjóra og Leifi Haukssyni aðstoð-
ardagskrárstjóra. sem hafa verið í
sumarfríi, var sagt að Hannes kæmi til
starfa, án alls samráðs við þau.
■ Ríkisútvarpið
Titringur á rásinni
Allt eins er búist við að margir
dagskrárgerðarmanna á Rás 2 hætti
störfum vegna fyrirhugaðra breyt-
inga hjá Ríkisútvarpinu. Það sem
helst stendur í fólkinu er ótti um að
sjálfstæði Rásar 2 muni skerðast.
Sviðsstjóri samfélagssviðs, sem mun
taka við af dagskrárstjórum rásar eitt
og rásar tvö, mun heyra beint undir
framkvæmdastjóra útvarpsins, Mark-
ús Öm Antonsson, og hann mun,
samkvæmt þessu, verða ígildi yfirrit-
stjóra.
Þetta ásamt öðru hefur orðið til
þess að fólk hugsar sér til hreyfings.
Innan útvarpsins er talið víst að
hvorki Margrét Oddsdóttir, dagskrár-
stjóri Rásar eitt, né Sigurður G. Tóm-
asson, dagskrárstjóri Rásar tvö, komi
til greina sem sviðsstjórar samfélags-
sviðs.
Maxim Gorki
slær í gegn
„Bókin hefur rokselst. Margir
þeir sem kaupa bókina hafa lesið
hana áður og eru að rifja upp göm-
ul kynni, aðrir em að nálgast hana
í fyrsta sinn. Ein kona keypti fjög-
ur eintök og sagðist ætla að gefa
sonum sínum til að minna þá á að
vera ævinlega góðir við móður
sína,“ segir Ami Einarsson versl-
unarstjóri Máls og menningar um
metsölu á Móðurinni eftir Maxim
Gorki.
í tilefni 60 ára afmælis síns lét
forlagið endurprenta fyrstu skáld-
söguna sem það gaf út, Móðurina
eftir Maxim Gorki. Af þeim
10.000 eintökum sem komu til
landsins 10. júní eru einungis um
450 eftir. Bókin er seld á táknrænu
afmælisverði, kostar einungis 60
krónur, og ætti því engum að vera
um megn að fjárfesta í henni.
Það er ekki einungis hægt að
gera góð kaup í Gorki því sérstakt
afmælisverð er nú á kiljum Uglu-
klúbbsins og eru þær seldar á tæp-
ar 500 krónur stykkið. Kiljumar
rjúka út og einn viðskiptavinur lét
sig ekki muna um að festa kaup á
35 kiljum í einni og sömu búðar-
ferð.
Að sögn Áma Einarssonar em
söluhæstu kiljumar Haustskip og
Falsarinn eftir Bjöm Th. Björns-
son, Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason, Ofvitinn eftir
Þórberg Þórðarson, Veröld sem
var eftir Stefan Zweig, Hús and-
anna eftir Isabel Allende og Lesið
í snjóinn eftir Peter Höeg.
■ Guðmundur Marinósson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á ísafirði, um óeiningu innan
flokksins og umræður um nýtt framboð næsta vor
Kaffihúsakjaftæði og athyg I issýki
- á meðan engin rök koma fram, segir formaðurinn
„Ég hef heyrt af þessu, það er alltaf
til fólk sem ekki er sátt. Þetta kemur
aðallega frá einum manni sem er hald-
inn athyglissýki. Ég afgreiði þetta
sem kaffihúsakjaftæði á meðan engin
rök koma fram. Meirihlutinn er nánast
búinn að efna öll sín kosningaloforð
og mun ljúka eða hefja allar fram-
kvæmdir sem talað var unt áður en
kjörtfmabilinu lýkur,“ sagði Guð-
mundur Marinósson, formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Isa-
firði, vegna óánægju með störf
flokksins í meirihlutasamstarfi í bæj-
arstjóm, en hana skipa ftmm sjálf-
stæðismenn og einn krati. 1990 buðu
sjálfstæðismenn fram tvo lista, D-lista
og í-lista.
Þegar Guðmundur var spurður
hvort þær væringar væru að koma aft-
ur upp á yftrborðið, sagði hann þetta
snúast fyrst og fremst um einn mann.
“Þetta er einn maður sem talar um
að allir séu vondir við sig, þetta er at-
hyglissýki. Ég hef heyrt að verið sé að
tala um sérframboð, en blæs á það
meðan ég hef fæ engin rök,“ sagði
Guðmundur og benti á að auðvelt sé
að koma af stað sögum.
Óli Lúðvíksson sagðist hafa heyrt
af óánægju, en kannaðist ekki við að
menn væm famir að ræða saman af
alvöru um sérframboð. “Ég vil reyna
til þrautar í eigin flokki áður en ég
geri nokkuð annað," sagði Óli.