Alþýðublaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
þykir hafa teflt vel útfærða
refskák í átökunum sem nú geisa
um meirihlutann í bæjarstjóminni.
Einn hvassasti ásteytingsteinninn
á mögulegu samstarfi þess og
Alþýðuflokksins var talin misklíð
Ingvars Viktorssonar, bæjar-
Ingvar Viktorsson og
Magnús Jón Árnason:
Virðast sáttir um Ingvar
sem bæjarstjóra...
stjóra og Magnúsar Jóns
Árnasonar, oddvita Alþýðu-
bandalagsins, og var álitið að
Magnús gæti aldrei sætt sig við
hann sem bæjarstjóra kæmi til
meirihluta A-flokkanna. Á heppi-
legum tfma læddi Alþýðubanda-
lagið því hinsvegar inn í um-
ræðuna að það gæti vel sætt sig
við Ingvar út kjörtímabilið. Það
styrkti stöðu þeirra krata, sem
vilja slit meirihlutans. í upphafi
núverandi ölduróts kom Alþýðu-
bandalagið því einnig á framfæri
að ryfi Alþýðuflokkurinn sam-
starfið við Jóhann G. Berg-
þórsson og félaga væri sá
möguleiki í stöðunni að Magnús
Jón og bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, Lúðvík Geirsson,
verður minnihlutastjóm Alþýðu-
flokksins falli það sem eftir lifði
kjörtímabilsins, og tryggðu sam-
þykkt fjárhagsáætlunar. Þegar
frásagnir fjölmiðla um í að-
draganda helgarinnar bentu
eindregið til að slit núverandi
meirihluta væru í vændum kom
Stöð tvö því á framfæri um munn
Hauks Hólms, fréttamanns, að
minnihlutastjórn krata væri hins-
vegar ekki hugsanleg af hálfu
Alþýðubandalagsins. Þessi tafl-
mennska bendir því eindregið til
að Magnús Jón sé ákveðinn í því
að komast aftur inn í bæjar-
stjórnina, og hefur að sögn
flokksbræðra hans í Firðinum
fullan hug á því að verða innan
skamms forseti þæjarstjómar í
meirihlutastjóm A-flokkanna...
Til skamms tíma töldu margir,
að Magnús Jón Árnason
væri á förum úr bæjarpólitíkinni í
Hafnarfirði, og við forystuhlutverk-
inu tæki þá Lúðvík Geirsson,
sem er annar bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagins í bænum. En
taflmennska Magnúsar Jóns í
tengslum við átökin um
meirihlutann í bænum benda til
að fararsnið sé að renna á hann.
Það kann meðal annars að
standa í sambandi við það, að
Alþýðubandalagsmenn í Hafnar-
firði hafa engan sérstakan áhuga
á því að Lúðvík festi sig á bæjar-
málasviðinu, því þeir ætla honum
stærri hlut. Lúðvík, sem hefur
verið formaður Blaðamanna-
Ólafur Ftagnar Grímsson:
Eftir að hann lét af þing-
mennsku...
félagsins í um það bil áratug, á
nefnilega ekki langt að sækja
pólitíska hæfileika því faðir hans
er enginn annar en Geir
Gunnarsson, sem var alþingis-
maður Alþýðubandalagsins í
Reykjanesi um áratugaskeið.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson
lét af þingmennsku eftir að hafa
verið kjörinn forseti tók við af
honum varamaður hans, Sigríður
Jóhannesdóttir, úr Keflavík.
Hafnfirsku allaballarnir telja
hinsvegar langt í frá sjálfgefið að
hún verði áfram þingmaður
kjördæmisins, og ætla Lúðvík það
hlutverk að vinna sætið undir
Hafnarfjörð við fyrsta tækifæri...
W
Asunnudaginn afhenti
Magnus Skaaden,
sveitarstjóri Sveio kommune, sem
í íslendingasögunum var nefnd
Sviða, Hafnfirðingum að gjöf afar
haganlega hlaðna vörðu úr fimm
tonnum af norsku grjóti. Varðan,
sem bæjarstjórinn hlóð sjálfur á
tveimur dögum ásamt norskum
múrara á Hvaleyrarholti, er ná-
kvæm eftirlíking af Flókavörðu,
sem stendur á útnesinu Ryvarden
á Sviðu. Þar lágu áður mörk
Rogalands og Hörðalands, og
þaðan segir Landnáma að Fióki
Vilgerðarson hafi á sínum tíma
lagt í fræga ferð sína til íslands,
ásamt dætrum sínum þremur,
Faxa hinum suðureyska og
Þórólfi smjör. Áður hlóð hann þó
vörðu, og norskar heimildir stað-
festa að þar sem Flókavarða
stendur nú á Ryvarden hafi
einmitt staðið varða öldum sam-
an. Áður en Flóki fór frá íslandi í
fyrri ferð sinni hingað kom hann
við í Hafnarfirði, og fann þar
dauðan hval á eyrinni, sem að
sögn Landnámu leiddi til þess að
hann skýrði hana Hvaleyri.. Af því
tilefni sagði Ingvar Viktorsson í
ræðu sinni, að samkvæmt því
ættu Hafnfirðingar innan bæjar-
marka sinna eitt allra elsta ömefni
ÖRSOQUR
á landinu. Hann gat þess líka að
gjöf vörðunnar gæti þó ekki talist
upphaf samvinnu milli Sveio og
Hafnarfjarðar, því samkvæmt
texta Landnámu hefði það þegar
staðið með nokkrum ágætum í
ellefu hundruð ár...
Undir stjórn feðganna Sveins
R. Eyjólfssonar og Eyjólfs
Sveinssonar heldur veldi Frjálsr-
ar fjölmiðlunar áfram að þenjast
út með svipuðum hraða og al-
heimurinn. Fyrir helgina tilkynnti
FF þannig um þátttöku sína í nýju
stórfyrirtæki á sviði umhverfisaug-
lýsinga, en undir það falla til
dæmis flettiskilti, auglýsingar á
strætisvögnum og skýlum SVR.
Hið nýja fyrirtæki er byggt á sam-
steypu þriggja annarra fyrirtækja
á þessu sviði. Þau eru Merkis-
menn hf sem hefur verið í eigu
Birgis Ingimarssonar og Gunn-
ars Trausta, Neonþjónustan, en
Guðmundur Baldursson raf-
virkjameistari hefur átt hana að
mestu leyti og verður stór hluthafi
í hinum nýja auglýsingarisa.
Þriðja fyrirtækið er svo Eureka,
sem Örn Sigurðsson, lögfræð-
ingur, hefur veitt forstöðu. Fyrir-
tækið verður til húsa í Súðavogin-
um þar sem Neonþjónustan var
fyrir, og hvorki meira né minna en
40 manns starfa hjá því. Þó búið
sé að stofna fyrirtækið og tilkynna
um það með pomþi og pragti vek-
ur óneitanlega athygli að ekki
virðist komin niðurstaða með nafn
á krógann...
Frjáls fjölmiðlun er þar að auki
orðin aðaleigandi öflugasta
vefmiðlara landsins sem feðgamir
stofnuðu með samruna tveggja
internetfyrirtækja, sem þeir
keyptu nýlega. Það voru fyritækin
Miðheimar og Skíma og nýja fyrir-
tækið ber einmitt heiti þess,
Skíma hf. Fyrir helgina var boðið
til veglegs teitis í tilefni þess að
nýja fyrirtækið opnaði stassjón í
Eyjólfur Sveinsson: Lét sig
ekki vanta þegar internet-
fyrirtækið Skíma tók til
starfa í nýju húsnæði...
húsakynnum Frjálsrar fjölmiðl-
unar í Brautarholti. Eyjólfur
Sveinsson lét sig að sjálfsögðu
ekki vanta, og þar sáust líka
stinga saman nefjum undir
vegg með blik hins pólitíska
samsæris í augum þau Björn
Bjarnason menntamálaráð-
herra og helsta stjaman í fjöl-
miðlastabba Eyjólfs, Kolbrún
Bergþórsdóttir, aðdáandi
Bjöms...
IXristilega útvarpsstöðin
f\.Ómega útvarpaði i síðustu
viku hvatningu til hlustenda að
beina bænum sínum gegn vik-
ingahátíðinni. Svo virðist sem
bænhiti stöðvarinnar sé allmikill.
bæði hellirigndi fyrri hluta hátíðar-
innar og eins gerði gemingaveður
við Færeyjar, þannig að lang-
stærstur hluti skiþalestar víkinga
frá Noregi komst ekki til landsins.
Af því tilefni sendi þekktur hag-
yrðingur úr hópi lesenda eftirfar-
andi vísu:
Norskir þreyja nauð og vd
níðskœldinna klerka,
Ómega menn argirfá
andskotann til verka.
Einn aðaleigandi hinnar nýju
Skímu hf er ung kona, Dagný
Halldórsdóttir. Framlag hennar
til inetnetfyrirtækisins var annað
fyrirtæki, undir sama nafni, sem
hún stofnaði sjálf árið 1994. Það
er óhætt að segja að Dagný sé
spútnik innan viðskiptaheimsins
þó hún hafi haft vit á að láta lítið
fara fyrir sér. Hún er aðeins 38
ára gömul, rafmagnsverkfræðing-
ur að mennt, og stofnaði gömlu
Skímu árið 1994. Dagný er gott
dæmi um sókn ungra, velmennt-
aðra kvenna innan viðskiptalifs-
ins, og nú er hún semsagt orðin
forstjóri Skímu hinnar nýrri, sem
er ein þyngsta staðan í hinni nýju
veröld upplýsingamiðlunar á ís-
landi...
Árni Johnsen: Mætti með
gítarinn í afmæli móður
sinnar og lék óskaiög fyrir
hana...
Isfðustu viku var haldið upp á 75
ára afmæli annarrar merkis-
konu, í Vestmannaeyjum. Það var
engin önnur en konan sem ber
ábyrgð á Árna Johnsen, sjálf
Ingibjörg Johnsen, móðir þing-
mannsins. Veislan var að sjálf-
sögðu haldin í Sjálfstæðishúsinu í
Eyjum, og fjöldi manns heiðraði
Ingibjörgu. Ámi var að sjálfsögðu
mættur með gítarinn, og spilaði
óskalög fyrir mömmu. Miklar og
góðar ræður voru haldnar í af-
mælinu, og meðal ræðumanna
var til dæmis hinn hressilegi leið-
togi Hvítasunnumanna í Eyjum,
Snorri Óskarsson, kenndur við
Betel. Sá sem sló þó í gegn var
:b:Gaui bæjó einsog leiðtogi Sjálf-
stæðismanna í bæjarpólitíkinni,
Guðjón Hjörleifsson er nefnd-
ur...
W
Iopnunarteiti Skímu hfvakti at-
hygli að auk Björns Bjarna-
sonar var mættur einn þingmað-
ur annar, en það var Kristján
Pálsson þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjanesi. En hann
hefur upþ á síðkastið sinnt mál-
efnum tölvuheimsins af stakri
natni. Ástæðuna má rekja til vara-
þingmanns hans, Viktors B.
Kjartanssonar í Keflavík (sem er
bróðir hljómlistarmannsins Magn-
úsar Kjartanssonar aðalstuðn-
ingsmanns Jóhanns Gunnars
Bergþórssonar í innanflokksdeil-
um íhaldsins í Hafnarfirði). Viktor
kom inn á Alþing á síðasta vetri
og vakti athygli fyrir að gagnrýna
harkalega sjálfan samgönguráð-
herrann, Halldór Blöndal fyrir
slælega framgöngu gagnvart sól-
risugreinum sem tengdust tölvu-
heiminum. Viktor þótti slá margar
keilur með framgöngu sinni og
stuðningsmenn Kristjáns töldu að
hann kynni að sækja að Kristjáni
í næsta prófkjöri. Þessvegna hef-
ur nú Kristján tekið upp málsvöm
fyrir tölvuheiminn til að vera ekki
síðri en varaþingmaðurinn. Mál
manna er þó að hann þurfi ekki
að óttast um sinn hag, því fáir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafi styrkt sig jafn mikið og hann
síðasta vetur...
hinumegin
“FarSide” eftir Gary Larson
Sérhæfðar dánartilkynningar.
Ferð þú í bíó yfir sumarmánuðina?
Þór Bæring Ólafsson:
Ég fer alveg rosaleg oft í
bíó. Líka á sumrin. Ætli ég
hafi ekki séð One fine day
síðast þegar ég fór.
Gyða Björg Jóhannsdótt-
ir:
Já frekar. Ég fór síðast á
Con Air.
Steinn Kári Ragnarsson:
Já, mjög oft. Men in black
er síðasta myndin sem ég sá.
Sigurlín Helgadóttir: Kolbeinn Björgvinsson:
Já, ef ég á pening. Síðast sá Nei, nánast aldrei.
ég First wife's club.
v i t i m e n n
Ég er þakklátur fyrir þann tíma
sem ég fengið að njóta undan-
farna daga sem frjáls maður
með fjölskyldu minni og dóttur
og vona að almannaheill hafi
ekki beðið skaða af.
Ólafur Kristjánsson, meintur ræningi, í DV.
Hvalveiðimenn eru ekkert ann-
að en sjóræningjar og öll
versiun með hvalaafurðir er
ólögleg.
Paul Watson í DV.
Ég kem af fjöllum. Það hefur
ekkert verið rætt við mig og
ég hef engan heyrt minnast á
þetta nema Hreggvið.
Ásgeir Hannes Eirfksson, ein af fyrrver-
andi stoðum Borgaraflokksins, um vænt-
anlegt framboð í borgarstjórnarkosningun-
um, í DV.
Ég kannast ekkert við þetta.
Ingi Björn Albertsson um sama mál í sama
blaði.
Bændur eru íhaldssamasta
stéttin í öllum löndum og við
búum að því að hafa verið
lengi algert bændaþjóðfélag.
JMG í DV.
Það er engin samkeppnisöfl
sem knýja kvótaeigendur til að
leka gróðanum til almennings.
Markús Möller í DV.
Hafið er ekki kjörbúð þangað
sem við getum sótt ákveðna
tegund í ákveðnu magni þegar
okkur hentar.
Grétar Mar Jónsson skipstjóri, í DV.
Það er oft mikilvægara að
vera í réttum flokki, koma úr
réttri ætt eða hafa verið í rétt-
um menntaskóla á réttum tíma
- eða jafnvel hafa spilað fór-
bolta með réttu liði - frekar en
það sem menn hafa annars til
brunns að bera.
Marjatta ísberg í DV.
Ég er svo mikið landsbyggðar-
barn að mér fannst sumarið
aldrei koma þegar ég var í
Reykjavík.
Sólborg Steinþórsdóttir, hótelstjóri á Höfn,
Ég held því ákveðið fram að betra
sé að vera djarfur en varkár og hik-
andi, því að gæfan er kona og ef
þvinga á hana til undirgefni verða
menn að beita hana valdi og þjarma
að henni. Reynslan sýnir að hún
þýðist oftar þá menn sem svo fara að
en hina sem láta stjómast af kaldri
yfirvegun.
Úr Fursta Machiavellis.