Alþýðublaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 ■ Jónum Jónssonum fer óðum fækkandi Eina vanda málið er í bönkunum - segir Jón Jónsson þjóðfræðingur „Ég er virkilega stoltur af nafninu mínu,“ segir Jón Jónsson sem er síður en svo óánægður með nafhið sitt en þeim fer óðum fækkandi sem bera þetta áður algengasta nafn landsins. AUs eru 40 manns í þjóðskrá með þessu nafni, tveir þeirra elstu eru fæddir 1908 en sá yngsti er fæddur 1982. „Allir í fjölskyldunni minni heita Jón, nema konumar, þær heita eitthvað annað,“ segir Jón Jónsson sem reynd- ar er þjóðfræðingur og starfar að ferðaþjónustu á Ströndum. „Eldn bróðir minn heitir Jón Gísli, ég heiti Jón, og er þessvegna stundum kaUaður Barajón, bróðir okkar sem dó áður en við fæddumst hét Jón. Yngsti bróðirinn heitir síðan Amar, því for- eldrar mínir vom ekki nægilega hug- myndaríkir til að skíra hann Jón. Pabbi minn hét Jón, afi minn hét Jón, og þannig er um alla forfeður mína. En ástæðan fyrir því að við bræðumir heitum báðir Jón er að við heitum í höfuðið á sitthvomm manninum. Ég heiti í höfuðið á Jóni sem að ég er ekk- ert skyldur, en bróðir minn heitir eftir afa mínum. Mömmu mína dreymdi fyrir nafninu, en Jón besti vinur föður míns dó sumarið áður en ég fæddist, og hann vitjaði nalhs í draumi. í fjöl- skyldunni var þetta aldrei vandamál, við vissum alltaf við hvaða Jón var átt. Það fór eftir tóntegundinni. Eina vandamálið sem kemur upp er í bönkum. Fyrir tvítugt var mér iðu- lega hent út úr bönkum og oít var neit- að að skipta fyrir mig ávísun. Þá var ég með ávísanir sem faðir minn Jón Jónsson gaf út og ég þurfti að fram- vísa. Úr alfaraleið Forstjóri kvikmynda- húss fær reisupassann frá Hægri öfgamönnum í Vitrolles í Frakklandi Hin 43 ára gamla Regine Juin fékk reisupassann í starfi sínu sem forstjóri kvikmyndahúss bænum Vitrolles í Suður Frakklandi enda neitaði hún að breyta áætlunum kvikmyndahússins um sýningar á kvikmynd um samkynhneigða og annarri um ástir tveggja alnæmis- smitaðra einstaklinga. Borgarstjór- inn Catherine Megret og meirihluti hennar í öfgasamtökum hægri manna, Þjóðemisfylkingunni kröfð- ust þess að myndir úr kvikmyndun- um á auglýsingaplakati hússins væru teknar út en hún neitaði og var gert að fara úr starfi sínu. Frönsk yf- irvöld em slegin yfir uppsögninni og bæði heilbrigðisráðherrann og menningarmálaráðherrann hafa kallað uppsögnina „óréttláta" en enginn getur gripið fram fyrir hend- umar á bæjarstjóminni. Húsbréf Innlausn húsbréfa Frá og með 15. júlí 1997 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1991 - 22. útdráttur 3. flokki 1991 - 19. útdráttur 1. flokki 1992 - 18. útdráttur 2. flokki 1992 - 17. útdráttur 1. flokki 1993 - 13. útdráttur 3. flokki 1993 - 11. útdráttur 1. flokki 1994 - 10. útdráttur 1. flokki 1995 - 7. útdráttur 1. flokki 1996 - 4. útdráttur 2. flokki 1996 - 4. útdráttur 3. flokki 1996 - 4. útdráttur Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu, þriðjudaginn 15. júlí. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEIID • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • Sltíl 569 6900 F.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í eftirtarandi verk vegna byggingu 132 kV háspennulínu, Nesjavallalínu 1, frá Nesjavöllum yfir Mosfellsheiði og að Bringum í Mosfellsdal. Gerð vegaslóöar, áætluð lengd 16 km og fyllingarefnismagn 37.000 m3. Verkið felst í að hefla eldri slóðir, jafna undir nýja slóð, aka möl í slóðina og framkvæma tengda verk^ætti, svo sem losun efnis, ámokstur á bíla, útjöfnun í vegastæði, lagningu jarðvegsdúks, koma fyrir ræsum o.fl. Jarðvinna og gerð undirstaða fyrir 51 háspennumastur þar af 41 stagað mastur meö forsteyptum undirstöðum og 10 frístandandi möstur með staðsteyptum undirstööum. Verkið felst í að flytja forsteyptar einingar og stálhluti í mastursstæöi og aö koma þeim fyrir. Einnig að grafa fyrir og steypa undirstöður á staðnum, grafa og bora fyrir bergboltum og steypa þá niður. Ganga skal frá stagteinum og fylla að öllum einingum og undirstöðum, plægja eða grafa niður jarðskautsboröa í slóð og leggja jarðskaut að undirstöðum mastra. Verkið skal hefja 6. ágúst 1997 og skal þvi vera lokið 28. nóvember 1997. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: miðvikudaginn 23. júlí 1997, kl. 11.00 á sama staö. F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í gerö gangstétta, malbikunar, gerð gróðurbeða o.fl. tengt umhvefisbótum í Vesturhöfninni (við Grandagarð, Grunnslóð og Fiskislóö). Helstu magntölur eru: - Hellulögn (ýmsar stærðir): 1.200 m2 - Kantsteinar og jaðarsteinar: 350 m - Malbikun: 330 m2 - Malar- og gróðurbeð: 2.000 m2 - o.fl. Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 1997. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboöa: fimmtudaginn 24. júlí 1997, kl. 11.00 á sama stað. rvh 107/7 INNKA UPASTOFNUN REYKJA VÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 552 58 00 - Fax 562 26 16 Netfang: isr@rvk.is 7CT T'

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.